Kristrún segir bankana geta tekið skattahækkunina á sig

For­sæt­is­ráð­herra segir bank­ana geta brúað fyr­ir­hug­aða hækkun banka­skatts án þess að velta kostn­að­inum yfir á við­skipta­vini. Sigríður Andersen segir skatt­inn geta dregið úr útlána­getu bank­anna og haft áhrif á líf­eyr­is­sjóði og lán­tak­endur.

Kristrún Frosta­dóttir for­sæt­is­ráð­herra segir íslensku bank­ana geta tekið á sig fyr­ir­hug­aða hækkun banka­skatts án þess að velta kostn­að­inum yfir á við­skipta­vini sína.

„Ég veit alveg að bank­arnir geta vel brúað þetta án þess að varpa þessu yfir á neyt­endur,“ sagði Kristrún í óund­ir­búnum fyr­ir­spurnum á Alþingi í gær.

Sigríður Á. Andersen, þing­maður Mið­flokks­ins, spurði for­sæt­is­ráð­herra út í fyr­ir­hug­aða hækkun banka­skatts í tengslum við fjár­lög næsta árs. Hún sagði sex millj­arða króna við­bót­ar­skatt á bank­ana geta haft víð­tæk­ari áhrif en stjórn­völd létu í veðri vaka.

Sigríður vís­aði til fundar Samtaka fyr­ir­tækja í fjár­mála­þjón­ustu fyrr um dag­inn þar sem fram hefði komið að sex millj­arða króna auk­inn skattur gæti dregið úr útlána­getu bank­anna um allt að 50 millj­arða króna.

„Það munar um minna þegar þarf að fjár­magna hús­næð­is­lán fjöl­skyldn­anna,“ sagði Sigríður. Hún gagn­rýndi að ekki lægi fyrir nægi­legt mat á áhrifum skatta­hækk­un­ar­innar á bank­ana, við­skipta­vini þeirra og …

Kjósa
16
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fjárlög 2027

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár