Fleiri hótelherbergi en færri gistinætur

Framboð hót­el­her­bergja jókst um 1,7 pró­sent í ágúst en gistin­óttum á hót­elum fækk­aði um 2,5 pró­sent. Gistin­óttum á öðrum skráðum gisti­stöðum, eins og tjald­svæðum og sum­ar­húsum, fjölg­aði hins vegar og jókst heild­ar­fjöld­inn um 3,3 pró­sent á milli ára.

Fleiri hótelherbergi en færri gistinætur
Fjölgað Alls voru 186 hótel starf­andi í ágúst með 12.817 her­bergi, en hót­elin voru 182 í sama mán­uði í fyrra. Mynd: EPA

Gistin­óttum á hót­elum lands­ins fækk­aði í ágúst þrátt fyrir að hót­elum og her­bergjum hefði fjölgað frá sama tíma í fyrra. Samkvæmt bráða­birgða­tölum Hagstofu Íslands voru gistinæt­urnar rúm­lega 653 þús­und, sam­an­borið við tæp­lega 670 þús­und í ágúst 2025. Það jafn­gildir 2,5 pró­senta fækkun á milli ára. 

12.817
her­bergi
á hót­elum í ágúst

Á öðrum skráðum gisti­stöðum fjölg­aði gistin­óttum hins vegar. Þegar allir gisti­staðir eru taldir með, meðal ann­ars gisti­heim­ili, tjald­svæði og orlofs­hús, var áætl­aður heild­ar­fjöldi gistin­átta rúm­lega 1.549 þús­und í ágúst. Það var 3,3 pró­senta aukn­ing frá sama mán­uði í fyrra.

Þar af voru rúm­lega 192 þús­und gistinætur á gisti­heim­ilum og um 704 þús­und á öðrum teg­undum skráðra gisti­staða, svo sem tjald­svæðum og í orlofs­húsum.

Framboð hót­el­her­bergja jókst á sama tíma um 1,7 pró­sent. Alls voru 186 hótel starf­andi í ágúst með 12.817 her­bergi, en hót­elin voru 182 í sama mán­uði í fyrra. Her­bergj­a­nýt­ing dróst saman um 1,1 pró­sentu­stig á lands­vísu. …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár