Yfirborðsleg nálgun á ljóðum Elísabetar

Þorvaldur S. Helgason skrifar um kammer­óperuna Ástin ein tauga­hrúga: Enginn dans við Ufsaklett eftir Elísabetu Jökuls­dóttur og Önnu Halldórs­dóttur, sem sýnd er í Tjarnar­bíói.

Leikhús

Ástin ein tauga­hrúga: Enginn dans við Ufsaklett

Höfundur Elísabet Jökulsdóttir
Leikstjórn Bergdís Júlía Jóhannsdóttir
Leikarar Tinna Þorvalds Önnudóttir (mezzo-sópran) og Júlía Mogensen (selló)

Höfundur tónlistar: Anna Halldórsdóttir

Leikgerð: Bergdís Júlía Jóhannsdóttir

Tónlistarstjóri: Anna Halldórsdóttir

Búninga- og leikmyndahönnun: Sara Hjördís Blöndal

Ljósahönnun: Juliette Louste

Framleiðsla: Nanna Gunnarsdóttir og Spindrift Theatre

Aðstoðarleikstjóri: Unnur Guðrún Þórarinsdóttir

Dramatúrgar: Anna Halldórsdóttir, Tinna Þorvalds Önnudóttir og Bergdís Júlía Jóhannsdóttir

Spindrift Theatre
Niðurstaða:

Frábært líbrettó og fín tónlist bjarga annars yfirborðslegri sýningu.

Gefðu umsögn

Elísabet Jökuls­dóttir er óðum að verða eitt mest aðlagaða skáld íslenskra sviðs­lista það sem af er þessari öld en sviðsverk byggð á skrifum hennar hafa verið mjög áberandi undan­farin ár. Má þar helst nefna einleikinn Saknaðarilm í Þjóð­leikhúsinu, sýninguna Innkaupa­pokann í Borgar­leikhúsinu, leikritið Blóðugu kanínuna í Tjarnarbíó og nú síðast kammer­óperuna Ástin ein tauga­hrúga: Enginn dans við Ufsaklett sem sviðslista­hópurinn Spindrift Theatre frumsýndi í Tjarnar­bíói síðastliðna helgi. Verkið er byggt á samnefndri ljóðabók Elísabetar sem vakti mikla athygli þegar hún kom út árið 2014 og var meðal annars tilnefnd til Bókmennta­verðlauna Norður­landaráðs. Ástin ein tauga­hrúga er í senn kraft­mikil, sláandi og óhugnanlega hversdagsleg frásögn konu sem er föst í ofbeldis­sambandi. Það sama verður ekki sagt um aðlögun Spindrift Theatre af bókinni.

Leik­stjórinn Bergdís Júlía Jóhanns­dóttir fer þá leið að einblína á hið kómíska og kaldhæðna í ljóðum Elísabetar en skilur að mestu undan það sem gerir ljóða­bókina svo sláandi; …

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár