Trump fordæmir „sjúkt samsæri“ gegn gervigreind

Forseti Banda­ríkjanna neitar að auka regluverk um gervi­greind því það myndi veita Kínverjum forskot. Hann ræðst að forstjórum tækni­fyrirtækja sem hafa viðhaft varnaðarorð og beðið um að hægt verði á þróuninni og sakar þá um landráð og svik.

DDonald Trump Bandaríkja­forseti réðst í dag gegn því sem hann kallaði „sjúkt samsæri“ gegn gervi­greind og hafnaði kröfum um aukið regluverk þrátt fyrir vaxandi áhyggjur af því að tæknin geti ógnað mann­kyninu.

Trump sagði Banda­ríkin þurfa að halda forystu á sviði gervi­greindar til að hafa betur gegn stór­veldinu Kína og gagnrýndi harðlega forstjóra Anthropic, fyrir­tækisins á bak við Claude, sem hefur kallað eftir því að hægt verði á þróuninni.

„Eina eftir­litið eða þær „varúðar­ráðstafanir“ sem gervi­greind þarfnast er STERKUR OG KLÁR (með háa greindar­vísitölu!) FORSETI, og Banda­ríkin hafa slíkan forseta svo um munar!“ sagði Trump í færslu á samfélags­miðli sínum Truth Social.

Vísar varnarorðum á bug 

Trump hefur á síðastliðinni viku ítrekað vísað á bug fjölda viðvarana frá stjórn­endum tækni­fyrirtækja um hættur gervi­greindar, með þeim rökum að með bandarísku reglu­verki yrði keppinautnum í Peking gefið forskot.

„Það er SJÚKT samsæri í gangi gegn gervi­greind …

Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Bandaríki Trumps

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár