Trump lætur 9/11 snúast um sig

Í Hvíta hús­inu var við­bragðs­að­ila sem lét­ust í hryðju­verka­árásum á Banda­ríkin árið 2001 minnst. Donald Trump lét við­burð­inn og sög­una snú­ast um sjálfan sig. „Aftur,“ segir AFP og bendir á að frá­sögn for­set­ans hafi tekið breyt­ingum í gegnum árin og verið dregin í efa af björg­un­ar­að­ilum á vett­vangi.

Trump lætur 9/11 snúast um sig

Donald Trump Banda­ríkja­for­seti segir tvo slökkvi­liðs­menn hafa gripið sig og komið sér í öruggt skjól nærri bygg­ingu sem ótt­ast var að myndi hrynja eftir hryðju­verka­árás­irnar 11. sept­em­ber 2001.

Trump greindi frá þessu á við­burði við Hvíta húsið í gær, þar sem minnst var við­bragðs­að­ila sem lét­ust í árás­unum.

„Ég mun aldrei gleyma þessu,“ sagði Trump. „Við héldum að bygg­ingin væri að fara að hrynja yfir okkur. Þá komu tveir slökkvi­liðs­menn, stórir og sterkir menn – og ég er nú ekki minnsti maður í heimi – gripu undir hand­legg­ina á mér og sögðu: ‚Við verðum að koma okkur héðan!‘“

Frá­sögnin er nýjasta útgáfan af sögu sem Trump hefur ítrekað sagt um aðkomu sína að björg­unar- og hreins­un­ar­starfi í New York eftir árás­irnar. Frásögn hans hefur tekið breyt­ingum í gegnum tíð­ina og banda­rískir fjöl­miðlar hafa greint frá því að björg­un­ar­menn og aðrir sem voru á vett­vangi hafi dregið hluta hennar í efa. …

Kjósa
13
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    Hversu sjúkt er samfélag sem velur sér persónu til forustu sem leyfir sér að mikla sjálfa sig á kostnað þeirra 2.977 sem fórust við þetta hrillilega verk sem kom ekki til að ástæðulausu. 25 árum síðar er viðkomandi og þjóðin enn að stiðja þjóðarmorð.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Bandaríki Trumps

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigðis­kerf­inu

Eng­inn á Ís­landi hef­ur lif­að af jafn al­var­leg­an mænusk­aða og Katla Guðna­dótt­ir sem lenti í dul­ar­fullu bíl­slysi 22 ára göm­ul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerf­ið hef­ur ekki af­greitt beiðni henn­ar um heima­þjón­ustu. Bar­átta henn­ar hef­ur þeg­ar skil­að for­dæma­lausri ákvörð­un í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líð­ur henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lif­að slys­ið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár