Ætla að breyta félagaformi Orkuveitunnar

Umsögn fjár­mála- og áhættu­stýr­ing­ar­sviðs vegna fyr­ir­hug­aðra breyt­inga á félaga­formi Orku­veit­unnar var lögð fram á fundi borg­ar­ráðs í gær.

Ætla að breyta félagaformi Orkuveitunnar
Breyt­ingar Unnið er að því að umbreyta félaga­formi Orku­veit­unnar. Borgin, sem er undir stjórn Bjargar Magn­ús­dóttur, for­seta borg­ar­stjórnar, Hildar Björns­dóttur borg­ar­stjóra og Einars Þor­steins­sonar, for­manns borg­ar­ráðs, er langstærsti eig­andi fyr­ir­tæk­is­ins. Mynd: Golli

Breyt­ingar á félaga­formi Orku­veitu Reykja­víkur (OR) eru fyr­ir­hug­aðar, að því er fram kemur í fund­ar­gerð borg­ar­ráðs­fundar sem fram fór í gær. Á fund­inum var lögð fram trún­að­ar­merkt umsögn fjár­mála- og áhættu­stýr­ing­ar­sviðs og borg­ar­lög­manns sem var í fund­ar­gerð­inni sögð vera „Vegna fyr­ir­hug­aðra breyt­inga á félaga­formi Orku­veitu Reykja­víkur“.

Heim­ildin hefur fengið það stað­fest að verið sé að skoða að breyta félaga­form­inu úr sam­eign­ar­fé­lagi í opin­bert hluta­fé­lag og kanna mögu­legt skatta­legt hag­ræði sem til þarf svo að breyt­ingin sé hag­kvæm. Sú vinna nær til Alþingis og því þarf málið að fá sína með­ferð þar en ekki er ljóst að öðru leyti hvert efni áhættu­mats­ins var.

Skoruðu á fyrri meirihluta

Stjórn Orku­veitu Reykja­víkur skor­aði á meiri­hluta borg­ar­stjórnar árið 2023 að hefja vinnu við að breyta félaga­form­inu úr sam­eign­ar­fé­lagi (sf.) í opin­bert hluta­fé­lag (ohf.). Lítið þok­að­ist í þá átt hjá síð­asta meiri­hluta, sem til­nefndi til að mynda ekki full­trúa sinn í sér­stakan starfs­hóp um málið …

Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár