Íslenskir fjárfestar fengu 180 milljarða eftir að Actavis fór inn á ópíóðamarkaðinn í Bandaríkjunum

Alls fengu 4.000 íslenskir fjár­festar, sem voru í hlut­hafa­hópi Actavis, greidda sam­tals 180 millj­arða króna þegar fjár­fest­ing­ar­fé­lag Björg­ólfs Thors Björg­ólfs­sonar keypti þá út úr Actavis árið 2007. Um var að ræða það sem Björgólfur Thor kall­aði rétti­lega sjálfur „stærstu við­skipti Íslands­sög­unnar frá stríðslokum“. Verðmat á Actavis hefði aldrei verið það sem það var nema vegna þess að fyr­ir­tækið hafði náð fót­festu á verkja­lyfja­mark­að­inum í Banda­ríkj­unum.

Íslenskir fjárfestar fengu 180 milljarða eftir að Actavis fór inn á ópíóðamarkaðinn í Bandaríkjunum
Líf­eyr­is­sjóð­irnir sem græddu 27 millj­arða á sölu Actavis Íslenskir líf­eyr­is­sjóðir högn­uð­ust vel á sölu Actavis til fjár­fest­ing­ar­fé­lags Björg­ólfs Thors Björg­ólfs­sonar árið 2007. Actavis hafði þá hafið sölu á mor­fín­lyfjum í Banda­ríkj­unum og var með 38,1 pró­sents mark­aðs­hlut­deild í sölu á mor­fín­lyfjum árið 2006. Novator greiddi 27 millj­arða króna til líf­eyr­is­sjóð­anna.

Alls fengu 4.000 íslenskir fjár­festar greidda 180 millj­arða króna þegar Björgólfur Thor Björg­ólfs­son fjár­festir keypti aðra hlut­hafa út úr Actavis í gegnum félag sitt Novator árið 2007. Þetta gerð­ist tveimur árum eftir að Actavis keypti tvö banda­rísk lyfja­fyr­ir­tæki og hóf með því inn­reið sína á „verkja­stjórn­un­ar­mark­að­inn“ í Banda­ríkj­unum, eins og fyr­ir­tækið orð­aði það sjálft í árs­reikn­ingi. 

Með öðrum orðum: Actavis byrj­aði að selja mor­fín­skyld verkja­lyf í Banda­ríkj­unum í stórum stíl. Fyr­ir­tækið var leið­andi á þessum mark­aði að eigin sögn og var með næst­mestu mark­aðs­hlut­deild á lands­vísu á árunum 2006 til 2012 þegar Actavis seldi 1/3 af hverjum þremur ópíóða­töflum. 

Líf­eyr­is­sjóðir og ein­stak­lingar í hópnumMeðal 20 stærstu hlut­hafa Actavis voru líf­eyr­is­sjóðir, nokkir ein­stak­lingar og fjár­fest­ing­ar­fé­lagið Milestone.

Við­skiptin áttu sér stað eftir að Actavis hafði átt sitt stærsta ár hlut­falls­lega í sölu mor­fín­lyfja í Banda­ríkj­unum en árið 2006 nam mark­aðs­hlut­deild félags­ins á lands­vísu 38,1 …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Thordis Arnadottir skrifaði
    https://rapdictionary.com/meaning/actavis/
    0
  • Siggi Rey skrifaði
    Maður spyr sig hvernig þessum ríkustu mönnum íslands líði vitandi að þessi eiturlyf drepa þúsundir. En staðreyndin er sú að margur veður af aurum api!
    0
  • Flosi Guðmundsson skrifaði
    „stærstu við­skipti Ís­lands­sög­unn­ar frá stríðs­lok­um“ með fíkiefni.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Stórveldi sársaukans

Lífeyrissjóður harmar ábyrgð sína á ópíóðafaraldri
ViðskiptiStórveldi sársaukans

Líf­eyr­is­sjóður harmar ábyrgð sína á ópíóða­far­aldri

Líf­eyr­is­sjóð­irnir sem fjár­festu í Actavis þegar fyr­ir­tækið var stór­tækt á ópíóða­mark­að­inum í Banda­ríkj­unum segj­ast ekki hafa vitað um skað­semi og vill­andi mark­aðs­setn­ingu mor­fín­lyfj­anna. Íslenskir líf­eyr­is­sjóðir högn­uð­ust um 27 millj­arða þegar þeir seldu fjár­fest­ing­ar­fé­lagi Björg­ólfs Thors Björg­ólfs­sonar hluta­bréf í Actavis árið 2007, eftir að fyr­ir­tækið var farið að selja mor­fín­lyf í stórum stíl.
Actavis borgar 30 milljarða króna bætur í Texas vegna ópíóðafaraldursins
FréttirStórveldi sársaukans

Actavis borgar 30 millj­arða króna bætur í Texas vegna ópíóða­far­ald­urs­ins

Íslenska lyfja­fyr­ir­tækið Actavis seldi hvergi fleiri ópíóða­töflur en í Texas-fylki á árunum 2006 til 2014. Um var að ræða rúm­lega þrjá millj­arða taflna. Í byrjun febr­úar var greint frá því að fyr­ir­tækið hefði sæst á að greiða skaða­bætur í rík­inu út af fram­leiðslu og sölu sinni á ópíóðum í fylk­inu. Eigandi Actavis-félag­anna í dag, Teva, við­ur­kennir hins vegar ekki sekt sína þrátt fyrir skaða­bæt­urnar.
Fékk 490 töflur frá heimilislækni á tveimur mánuðum: „Hún hættir aldrei á þessu OxyContin“
FréttirStórveldi sársaukans

Fékk 490 töflur frá heim­il­is­lækni á tveimur mán­uðum: „Hún hættir aldrei á þessu OxyContin“

Sjötug kona á Akureyri kynnt­ist OxyContin þegar mað­ur­inn hennar var krabba­meins­sjúk­lingur fyrir að verða 20 árum. Konan hefur þannig lang­vinna, króníska verki sem hæpið er að ávísa mor­fín­lyfjum fyrir sam­kvæmt læknum sem Stundin hefur rætt við. Dóttir kon­unnar segir að mamma sín muni aldrei hætta á OxyContin því frá­hvörfin séu „við­bjóður“.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár