Hófst þegar þeir stýrðu Actavis Íslenska sam­heita­lyfja­fyr­ir­tækið Actavis hóf sókn sína inn á ópíóða­mark­að­inn í Banda­ríkj­unum árið 2005 þegar Björgólfur Thor Björg­ólfs­son var leið­andi hlut­hafi í fyr­ir­tæk­inu og **Róbert Wessman var for­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins. Actavis varð meðal stærstu ópíóða­fram­leið­enda í Banda­ríkj­unum á tíma­bili þar sem mis­notkun á slíkum lyfjum varð að stóru vanda­máli í land­inu. Fyr­ir­tækið sem end­aði á því að hafa eign­ast Actavis hefur sagst ætla að greiða hund­ruð millj­arða skaða­bætur til Banda­ríkj­anna vegna þessa en fyrri stjórn­endur og eig­endur Actavis hafa ekki þurft að sæta ábyrgð, hvorki laga­legri né sið­ferði­legri. Mynd: Stundin / JIS

Svona græddi Actavis á ópíóðafaraldrinum

Actavis seldi 32 millj­arða taflna af mor­fín­lyfjum í Banda­ríkj­unum 2006 til 2012, og var næst­stærsti selj­andi slíkra lyfja á meðan notkun slíkra lyfja varð að far­aldri í land­inu. Fyr­ir­tæk­inu var stýrt af Róberti Wessman hluta tím­ans og var í eigu Björg­ólfs Thors Björg­ólfs­sonar allan tím­ann. Actavis hefur nú sam­þykkt að greiða skaða­bætur vegna ábyrgðar sinnar á mor­fín­far­aldr­inum í Banda­ríkj­unum en fyrr­ver­andi stjórn­endur félags­ins við­ur­kenna ekki ábyrgð á þætti Actavis.

Íslenska lyfja­fyr­ir­tækið Actavis er eitt af tugum lyfja­fyr­ir­tækja sem greitt hafa skaða­bætur til yfir­valda í banda­rískum ríkjum vegna ábyrgðar þess á ópíóða­far­aldr­inum þar í landi frá árinu 2005. Ópíóða­far­ald­ur­inn í Banda­ríkj­unum er tal­inn hafa valdið and­látum á milli 400 og 500 þús­und manns þar í landi á síð­ustu rúm­lega tveimur ára­tugum. Lyfja­fyr­ir­tækin, meðal ann­ars Actavis, greiða skaða­bæt­urnar vegna þess að þau mark­aðs­settu þessi lyf með röngum og fölskum hætti; þau drógu úr því hversu ávana­bind­andi þau eru og ýktu jákvæða virkni þeirra. Fyrir vikið héldu not­endur lyfj­anna að þau væru minna hættu­leg en þau eru.

Í til­felli mark­aðs­setn­ingar Actavis þá gagn­rýndi Banda­ríska lyfja­eft­ir­litið (FDA) sam­heita­lyfja­fyr­ir­tækið meðal ann­ars fyrir falska mark­aðs­setn­ingu gagn­vart læknum á einu þess­ara ópíóða­lyfja, Kadian, árið 2010. Lyfja­eft­ir­litið taldi að Actavis setti fram stað­hæf­ingar um lyfið sem stæð­ust ekki skoðun. Til­gangur mark­aðs­setn­ing­ar­innar var meðal ann­ars að fá lækna til að skrifa Kadian út fyrir við­skipta­vini sína. Ein stað­hæf­ingin …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Ásgeir Överby skrifaði
    Alltaf gaman að sjá mynd af fullum milljarðamæringum. Slíkt er sjaldan í boði.
    0
  • Siggi Rey skrifaði
    Jakkafataklæddir dópsalar!
    2
  • Jónsson Höskuldur skrifaði
    Þessi skaðabóta krafa FRÁ bna ER BARA BROT Í HAFIÐ HJÁ SVONA GLAPAMÖNNUM OG ÞEIR HLAEJA ÁBYIIGILEGA AF ÞESSU SMAAURUM Í ÞEIRRA AUGUM .
    Það aetti að taka af svona eiturlifjasölumönnum dauðans leifi til framleislu lifja til varnar mannkyni .en verður ábyggilega ekki gert .
    Þeir eru of ríkir til að eiithvað vaerði gert af viti í því efni ,það er nú bara svo
    1
  • Sigurður Haraldsson skrifaði
    Þessir tveir eru ekki neitt sem nokkur ætti að vera stolltur af því báðir eru þeir ótínndir glæpamenn og sem slíkir léleg tegund mankyns.
    Sorglega í þessu er að það eru til aðilar sem þá verja þrátt fyrir auglósan viðbjóð sem þeir hafa stundað og stunda enn.
    3
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Stórveldi sársaukans

Lífeyrissjóður harmar ábyrgð sína á ópíóðafaraldri
ViðskiptiStórveldi sársaukans

Líf­eyr­is­sjóður harmar ábyrgð sína á ópíóða­far­aldri

Líf­eyr­is­sjóð­irnir sem fjár­festu í Actavis þegar fyr­ir­tækið var stór­tækt á ópíóða­mark­að­inum í Banda­ríkj­unum segj­ast ekki hafa vitað um skað­semi og vill­andi mark­aðs­setn­ingu mor­fín­lyfj­anna. Íslenskir líf­eyr­is­sjóðir högn­uð­ust um 27 millj­arða þegar þeir seldu fjár­fest­ing­ar­fé­lagi Björg­ólfs Thors Björg­ólfs­sonar hluta­bréf í Actavis árið 2007, eftir að fyr­ir­tækið var farið að selja mor­fín­lyf í stórum stíl.
Actavis borgar 30 milljarða króna bætur í Texas vegna ópíóðafaraldursins
FréttirStórveldi sársaukans

Actavis borgar 30 millj­arða króna bætur í Texas vegna ópíóða­far­ald­urs­ins

Íslenska lyfja­fyr­ir­tækið Actavis seldi hvergi fleiri ópíóða­töflur en í Texas-fylki á árunum 2006 til 2014. Um var að ræða rúm­lega þrjá millj­arða taflna. Í byrjun febr­úar var greint frá því að fyr­ir­tækið hefði sæst á að greiða skaða­bætur í rík­inu út af fram­leiðslu og sölu sinni á ópíóðum í fylk­inu. Eigandi Actavis-félag­anna í dag, Teva, við­ur­kennir hins vegar ekki sekt sína þrátt fyrir skaða­bæt­urnar.
Fékk 490 töflur frá heimilislækni á tveimur mánuðum: „Hún hættir aldrei á þessu OxyContin“
FréttirStórveldi sársaukans

Fékk 490 töflur frá heim­il­is­lækni á tveimur mán­uðum: „Hún hættir aldrei á þessu OxyContin“

Sjötug kona á Akureyri kynnt­ist OxyContin þegar mað­ur­inn hennar var krabba­meins­sjúk­lingur fyrir að verða 20 árum. Konan hefur þannig lang­vinna, króníska verki sem hæpið er að ávísa mor­fín­lyfjum fyrir sam­kvæmt læknum sem Stundin hefur rætt við. Dóttir kon­unnar segir að mamma sín muni aldrei hætta á OxyContin því frá­hvörfin séu „við­bjóður“.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár