Fréttamál

Ópíóðafaraldurinn og Actavis

Greinar

Lífeyrissjóður harmar ábyrgð sína á ópíóðafaraldri
ViðskiptiStórveldi sársaukans

Líf­eyr­is­sjóður harmar ábyrgð sína á ópíóða­far­aldri

Líf­eyr­is­sjóð­irnir sem fjár­festu í Actavis þegar fyr­ir­tækið var stór­tækt á ópíóða­mark­að­inum í Banda­ríkj­unum segj­ast ekki hafa vitað um skað­semi og vill­andi mark­aðs­setn­ingu mor­fín­lyfj­anna. Íslenskir líf­eyr­is­sjóðir högn­uð­ust um 27 millj­arða þegar þeir seldu fjár­fest­ing­ar­fé­lagi Björg­ólfs Thors Björg­ólfs­sonar hluta­bréf í Actavis árið 2007, eftir að fyr­ir­tækið var farið að selja mor­fín­lyf í stórum stíl.
Actavis borgar 30 milljarða króna bætur í Texas vegna ópíóðafaraldursins
FréttirStórveldi sársaukans

Actavis borgar 30 millj­arða króna bætur í Texas vegna ópíóða­far­ald­urs­ins

Íslenska lyfja­fyr­ir­tækið Actavis seldi hvergi fleiri ópíóða­töflur en í Texas-fylki á árunum 2006 til 2014. Um var að ræða rúm­lega þrjá millj­arða taflna. Í byrjun febr­úar var greint frá því að fyr­ir­tækið hefði sæst á að greiða skaða­bætur í rík­inu út af fram­leiðslu og sölu sinni á ópíóðum í fylk­inu. Eigandi Actavis-félag­anna í dag, Teva, við­ur­kennir hins vegar ekki sekt sína þrátt fyrir skaða­bæt­urnar.
Fékk 490 töflur frá heimilislækni á tveimur mánuðum: „Hún hættir aldrei á þessu OxyContin“
FréttirStórveldi sársaukans

Fékk 490 töflur frá heim­il­is­lækni á tveimur mán­uðum: „Hún hættir aldrei á þessu OxyContin“

Sjötug kona á Akureyri kynnt­ist OxyContin þegar mað­ur­inn hennar var krabba­meins­sjúk­lingur fyrir að verða 20 árum. Konan hefur þannig lang­vinna, króníska verki sem hæpið er að ávísa mor­fín­lyfjum fyrir sam­kvæmt læknum sem Stundin hefur rætt við. Dóttir kon­unnar segir að mamma sín muni aldrei hætta á OxyContin því frá­hvörfin séu „við­bjóður“.
Notaði morfínlyf í sex ár: „Ég horfði á mömmu og vildi líða eins og henni“
FréttirStórveldi sársaukans

Notaði mor­fín­lyf í sex ár: „Ég horfði á mömmu og vildi líða eins og henni“

Banda­ríkja­maður á sex­tugs­aldri, sem er hálfur Íslend­ingur, varð háður mor­fín­skyldum verkja­lyfjum og not­aði þau í fimm ár. Maðurinn er einn af þeim sem náði hins vegar að vera fún­ker­andi þjóð­fé­lags­þegn, stunda vinnu sem yfir­maður í iðn­fyr­ir­tæki og lifa fjöl­skyldu­lífi og sjá um börn sín allan þann tíma sem hann not­aði lyfin. Hann býr í Illinois-fylki þar sem íslenska lyfja­fyr­ir­tækið Actavis var með lang­mestu mark­aðs­hlut­deild­ina á ópíóða­mark­aðnum á árunum 2006 til 2014.
Íslenskir fjárfestar fengu 180 milljarða eftir að Actavis fór inn á ópíóðamarkaðinn í Bandaríkjunum
ViðskiptiStórveldi sársaukans

Íslenskir fjár­festar fengu 180 millj­arða eftir að Actavis fór inn á ópíóða­mark­að­inn í Banda­ríkj­unum

Alls fengu 4.000 íslenskir fjár­festar, sem voru í hlut­hafa­hópi Actavis, greidda sam­tals 180 millj­arða króna þegar fjár­fest­ing­ar­fé­lag Björg­ólfs Thors Björg­ólfs­sonar keypti þá út úr Actavis árið 2007. Um var að ræða það sem Björgólfur Thor kall­aði rétti­lega sjálfur „stærstu við­skipti Íslands­sög­unnar frá stríðslokum“. Verðmat á Actavis hefði aldrei verið það sem það var nema vegna þess að fyr­ir­tækið hafði náð fót­festu á verkja­lyfja­mark­að­inum í Banda­ríkj­unum.
Purdue Pharma og Actavis: Svipuð saga af blekkingum og ábyrgðarleysi
GreiningStórveldi sársaukans

Purdue Pharma og Actavis: Svipuð saga af blekk­ingum og ábyrgð­ar­leysi

Þegar horft er á við­skipti íslenska lyfja­fyr­ir­tæk­is­ins Actavis á ópíóða­mark­aðnum í Banda­ríkj­unum á árunum 2005 til 2012 kemur í ljós mynstur sem er líkt við­skipta­háttum banda­ríska lyfja­fyr­ir­tæk­is­ins Purdue Pharma, fjöl­skyldu­fyr­ir­tæk­is­ins sem talið er bera mesta ábyrgð á ópíóða­far­aldr­inum í Banda­ríkj­unum. Actavis dró úr því hversu ávana­bind­andi mor­fín­lyfin eru, ýkti jákvæða virkni þeirra, hunds­aði eft­ir­lits­hlut­verk sitt við sölu lyfja og tók ekki mark á gagn­rýni banda­rískra stjórn­valda.
Actavis og ópíóðafaraldurinn: Eigandinn Björgólfur segist ekki „búa yfir upplýsingum“
ViðskiptiStórveldi sársaukans

Actavis og ópíóða­far­ald­ur­inn: Eig­and­inn Björgólfur seg­ist ekki „búa yfir upp­lýs­ingum“

Björgólfur Thor Björg­ólfs­son, fjár­festir og fyrrum stærsti hlut­hafi og stjórn­ar­for­maður Actavis, svarar ekki efn­is­lega spurn­ingum um þatt­töku Actavis á ópíóða­mark­aðnum í Banda­ríkj­unum á árunum 2006 til 2012. Á meðan Björgólfur Thor átti félagið seldi það tæp­lega 1 af hverjum 3 ópíóða­töflum sem seldar voru í Banda­ríkj­unum, tekjur félaga­ins marg­föld­uð­ust og banda­rísk yfir­völd gagn­rýndu félagið fyrir mark­aðs­setn­ingu á mor­fín­lyfjum og báðu Actavis um að snar­minnka fram­leiðslu á þeim.
Róbert dregur úr ábyrgð sinni: Seldu hlutfallslega mest af ópíóðum þegar hann var forstjóri
ViðskiptiStórveldi sársaukans

Róbert dregur úr ábyrgð sinni: Seldu hlut­falls­lega mest af ópíóðum þegar hann var for­stjóri

Fyrr­ver­andi for­stjóri Actavis, Róbert Wessman, segir að hann hafi ætíð haft það að leið­ar­ljósi sem lyfja­for­stjóri að bæta líf fólks. Hann vill meina að stefna Actavis í sölu á ópíóðum í Banda­ríkj­unum hafi breyst eftir að hann hætti hjá félag­inu. Mark­aðs­hlut­deild Actavis á lands­vísu í Banda­ríkj­unum var hins vegar mest árið 2007, 38.1 pró­sent á lands­vísu, þegar Róbert var enn for­stjóri félags­ins.
Svona græddi Actavis á ópíóðafaraldrinum
ÚttektStórveldi sársaukans

Svona græddi Actavis á ópíóða­far­aldr­inum

Actavis seldi 32 millj­arða taflna af mor­fín­lyfjum í Banda­ríkj­unum 2006 til 2012, og var næst­stærsti selj­andi slíkra lyfja á meðan notkun slíkra lyfja varð að far­aldri í land­inu. Fyr­ir­tæk­inu var stýrt af Róberti Wessman hluta tím­ans og var í eigu Björg­ólfs Thors Björg­ólfs­sonar allan tím­ann. Actavis hefur nú sam­þykkt að greiða skaða­bætur vegna ábyrgðar sinnar á mor­fín­far­aldr­inum í Banda­ríkj­unum en fyrr­ver­andi stjórn­endur félags­ins við­ur­kenna ekki ábyrgð á þætti Actavis.

Mest lesið undanfarið ár