AGS hækkar hagvaxtarspá fyrir heiminn árið 2026

Í nýrri skýrslu gerir Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóð­ur­inn ráð fyrir 3,1 pró­sents hag­vexti á heims­vísu. Horfur eru ólíkar eftir því hvort ríki njóta upp­sveifl­unnar í gervi­greind eða treysta á inn­flutta orku. „Mót­vindur vegna lang­vinns stríðs og við­var­andi spennu í alþjóða­málum gæti kynt undir verð­bólgu á ný,“ segir í skýrsl­unni.

AGS hækkar hagvaxtarspá fyrir heiminn árið 2026
Öryggi Fram­kvæmda­stjóri Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðs­ins, Krist­al­ina Georgi­eva, segir að nú þurfi einnig að taka til­lit til örygg­is­sjón­ar­miða í efna­hags­málum. Mynd: LILLIAN SUWANRUMPHA / AFP

Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóð­ur­inn spáir því að það hægi minna á hag­vexti í heim­inum í ár en áður var búist við. Ástæðan væri „við­náms­þróttur“ þró­aðra hag­kerfa gagn­vart hækkun orku­verðs vegna stríðs­á­taka. Sjóð­ur­inn var­aði þó við því að lág­tekju­ríki væru áfram ber­skjölduð fyrir trufl­unum á fram­boði.

Í skýrslu sinni um efna­hags­horfur í heim­inum (WEO), sem kom út á árs­fundum sjóðs­ins í Bangkok, hækk­aði Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóð­ur­inn hag­vaxt­ar­spá sína fyrir heim­inn árið 2026 um 0,1 pró­sentu­stig, í 3,1 pró­sent. Hag­vöxtur árið 2025 var 3,5 pró­sent.

Sjóð­ur­inn var­aði við því að þótt aukin fjár­fest­ing í gervi­greind­ar­tækni hefði stutt við mörg þróuð hag­kerfi stæðu fátæk­ari ríki, sem nytu ekki góðs af þeirri upp­sveiflu, frammi fyrir erf­iðum kostum vegna hás orku­verðs af völdum stríðs­ins í Íran.

„Efna­hags­lífið í heim­inum hefur sýnt við­náms­þrótt, en á hann reynir nú og hættan er einkum á verri nið­ur­stöðu,“ sagði Silvana Tenreyro, aðal­hag­fræð­ingur Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðs­ins, við blaða­menn í Bangkok.

Skuldir í …

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Íransstríðið

Mest lesið

2
Erlent

Olíu­risarnir græða stórfé á stríð­inu í Mið-Aust­ur­löndum

Hagnaður þriggja stærstu olíu- og gas­fyr­ir­tækja Evrópu nam sam­tals rúm­lega 25 millj­örðum Banda­ríkja­dala á þriðja árs­fjórð­ungi. Stríðið í Mið-Aust­ur­löndum hefur leitt til hækk­andi orku­verðs og auk­innar fram­legðar í olíu­hreinsun. Fyr­ir­tækin hagn­ast á sama tíma og hærra elds­neyt­is­verð og aukin verð­bólga þrengja að heim­ilum og fyr­ir­tækjum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár