Aðili

Actavis

Greinar

ViðskiptiStórveldi sársaukans

Líf­eyr­is­sjóður harmar ábyrgð sína á ópíóða­far­aldri

Líf­eyr­is­sjóð­irnir sem fjár­festu í Actavis þegar fyr­ir­tækið var stór­tækt á ópíóða­mark­að­inum í Banda­ríkj­unum segj­ast ekki hafa vitað um skað­semi og vill­andi mark­aðs­setn­ingu mor­fín­lyfj­anna. Íslenskir líf­eyr­is­sjóðir högn­uð­ust um 27 millj­arða þegar þeir seldu fjár­fest­ing­ar­fé­lagi Björg­ólfs Thors Björg­ólfs­sonar hluta­bréf í Actavis árið 2007, eftir að fyr­ir­tækið var farið að selja mor­fín­lyf í stórum stíl.
FréttirStórveldi sársaukans

Notaði mor­fín­lyf í sex ár: „Ég horfði á mömmu og vildi líða eins og henni“

Banda­ríkja­maður á sex­tugs­aldri, sem er hálfur Íslend­ingur, varð háður mor­fín­skyldum verkja­lyfjum og not­aði þau í fimm ár. Maðurinn er einn af þeim sem náði hins vegar að vera fún­ker­andi þjóð­fé­lags­þegn, stunda vinnu sem yfir­maður í iðn­fyr­ir­tæki og lifa fjöl­skyldu­lífi og sjá um börn sín allan þann tíma sem hann not­aði lyfin. Hann býr í Illinois-fylki þar sem íslenska lyfja­fyr­ir­tækið Actavis var með lang­mestu mark­aðs­hlut­deild­ina á ópíóða­mark­aðnum á árunum 2006 til 2014.
ViðskiptiStórveldi sársaukans

Íslenskir fjár­festar fengu 180 millj­arða eftir að Actavis fór inn á ópíóða­mark­að­inn í Banda­ríkj­unum

Alls fengu 4.000 íslenskir fjár­festar, sem voru í hlut­hafa­hópi Actavis, greidda sam­tals 180 millj­arða króna þegar fjár­fest­ing­ar­fé­lag Björg­ólfs Thors Björg­ólfs­sonar keypti þá út úr Actavis árið 2007. Um var að ræða það sem Björgólfur Thor kall­aði rétti­lega sjálfur „stærstu við­skipti Íslands­sög­unnar frá stríðslokum“. Verðmat á Actavis hefði aldrei verið það sem það var nema vegna þess að fyr­ir­tækið hafði náð fót­festu á verkja­lyfja­mark­að­inum í Banda­ríkj­unum.
ViðskiptiStórveldi sársaukans

Róbert dregur úr ábyrgð sinni: Seldu hlut­falls­lega mest af ópíóðum þegar hann var for­stjóri

Fyrr­ver­andi for­stjóri Actavis, Róbert Wessman, segir að hann hafi ætíð haft það að leið­ar­ljósi sem lyfja­for­stjóri að bæta líf fólks. Hann vill meina að stefna Actavis í sölu á ópíóðum í Banda­ríkj­unum hafi breyst eftir að hann hætti hjá félag­inu. Mark­aðs­hlut­deild Actavis á lands­vísu í Banda­ríkj­unum var hins vegar mest árið 2007, 38.1 pró­sent á lands­vísu, þegar Róbert var enn for­stjóri félags­ins.

Mest lesið undanfarið ár