Aðili

Lífeyrissjóðir

Greinar

Úttekt

Bláa gullið við hraunjað­ar­inn: Dreifa áhætt­unni og sér um leið

Eigendur Bláa lóns­ins hafa grætt millj­arða á að selja ferða­mönnum aðgengi að lón­inu, sem er í raun affalls­vatn af virkjun í Svarts­engi. Eftir að eldsum­brot hófust í bak­garði lóns­ins, sem þó er varið gríð­ar­stórum varn­ar­görðum, hafa stjórn­endur leitað leiða til að dreifa áhættu og fjár­fest í ferða­þjón­ustu fjarri hættu á renn­andi hrauni. Tug­millj­arða hags­munir eru á áfram­hald­andi vel­gengni lóns­ins en nær allir líf­eyr­is­sjóðir lands­ins hafa fjár­fest í því.

17 mín. lestur

ViðskiptiStórveldi sársaukans

Íslenskir fjár­festar fengu 180 millj­arða eftir að Actavis fór inn á ópíóða­mark­að­inn í Banda­ríkj­unum

Alls fengu 4.000 íslenskir fjár­festar, sem voru í hlut­hafa­hópi Actavis, greidda sam­tals 180 millj­arða króna þegar fjár­fest­ing­ar­fé­lag Björg­ólfs Thors Björg­ólfs­sonar keypti þá út úr Actavis árið 2007. Um var að ræða það sem Björgólfur Thor kall­aði rétti­lega sjálfur „stærstu við­skipti Íslands­sög­unnar frá stríðslokum“. Verðmat á Actavis hefði aldrei verið það sem það var nema vegna þess að fyr­ir­tækið hafði náð fót­festu á verkja­lyfja­mark­að­inum í Banda­ríkj­unum.
ÚttektBDV-ríkisstjórnin

Nýtt úrræði fyrir eldri borg­ara nýt­ist helst vel stæðum körlum

Tæplega 30% ein­stak­linga sem fá elli­líf­eyri í dag frá Trygg­inga­stofnun rík­is­ins mæta skil­yrðum um sveigj­an­lega töku elli­líf­eyris sem félags- og jafn­rétt­is­ráð­herra sam­þykkti á síð­ustu dögum síð­asta árs. Hags­muna­að­illar eru ósáttir við kjör aldr­aðra og að ráð­ist sé í svona sér­tækar aðgerðir á meðan að almennir elli­líf­eyr­is­þegar geta ekki þegið mikil laun.
FréttirThorsil-málið

Líf­eyr­is­sjóður starfs­manna rík­is­ins íhugar að fjár­festa í fjöl­skyldu­fyr­ir­tæki fjár­mála­ráð­herra

Kís­il­verk­smiðjan Thorsil, sem er meðal ann­ars í eigu fjöl­skyldu­með­lima Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála­ráð­herra, á í vanda með fjár­mögnun. Stuðn­ingur stjórn­ar­manna Líf­eyr­is­sjóðs starfs­manna rík­is­ins, sem skip­aðir eru af Bjarna Bene­dikts­syni getur orðið lyk­ill­inn að lausn á vanda verk­smiðj­unnar. Meðal ann­arra hlut­hafa Thorsil er Eyþór Arnalds og Guð­mundur Ásgeirs­son sem hefur verið við­skipta­fé­lagi föður Bjarna í ára­tugi.
FréttirPanamaskjölin

Panama-skjölin: „Þessi reynsla varð mér per­sónu­lega mjög erfið“

Eggert Claessen, fram­kvæmda­stjóri Frumtaks, átti fyr­ir­tæki í skatt­skjól­inu Tortólu sem fékk lán til fjár­fest­inga á árunum fyrir hrun. Hann segir að félagið hafi verið stofnað að und­ir­lagi Lands­bank­ans í Lúx­em­borg. Frumtak sér um rekstur tveggja fjár­fest­ing­ar­sjóða þar sem líf­eyr­is­sjóð­irnir eru stórir hlut­hafar.
FréttirSala banka á fyrirtækjum

Líf­eyr­is­sjóð­ur­inn varð af um tveimur millj­örðum í við­skipt­unum við Bakka­var­ar­bræður

Líf­eyr­is­sjóður starfs­manna rík­is­ins seldi nærri 6 pró­senta hlut sinn í mat­væla­fyr­ir­tæk­inu Bakkavör á lágu verði árið 2012. Bræð­urnir og fjár­fest­inga­sjóð­ur­inn Baupost kaupa aðra hlut­hafa út á sex sinnum hærra verði. Bræð­urnir leggja ekki til reiðufé í kaup­unum heldur búa til sér­stakt eign­ar­halds­fé­lag með Baupost utan um Bakkavör og leggja sinn 38 pró­senta hlut inn í þetta félag.
FréttirEinkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Stjórn­ar­maður Fjár­mála­eft­ir­lits­ins á fjár­fest­ing­ar­fé­lag með líf­eyr­is­sjóð­unum

Ásta Þór­ar­ins­dóttir, stjórn­ar­for­maður Fjár­mála­eft­ir­lits­ins, á og rekur fjár­fest­ing­ar­fé­lag með tólf líf­eyr­is­sjóðum. Byggja upp einka­fyr­ir­tæki á sviði heima­hjúkr­unar og lækn­inga í Ármúl­anum. Stjórn­sýslu­lög ná meðal ann­ars yfir stjórn­ar­menn FME.

Mest lesið undanfarið ár