Eignir lífeyrissjóða aldrei vaxið jafn mikið í einum mánuði og í júlí, eða um 237 milljarða

Eignir líf­eyr­is­sjóða­kerf­is­ins lækk­uðu um 361 millj­arð króna á fyrri hluta árs­ins 2022, vegna styrk­ingar krón­unnar og fallandi hluta­bréfa­verðs. Í júlí varð mik­ill við­snún­ingur.

Krónunum í hirslum íslenskra lífeyrissjóða fjölgaði umtalsvert í júlímánuði.
Krónunum í hirslum íslenskra líf­eyr­is­sjóða fjölg­aði umtals­vert í júlí­mán­uði. Mynd: Pexels

Eignir íslenskra líf­eyr­is­sjóða hækk­uðu um 236,7 millj­arða króna í júlí­mán­uði. Það er mesta hækkun sem orðið hefur á virði eigna þeirra á einum mán­uði frá upp­hafi. Þessi mikla hækkun er fyrst og síð­ast til­komin vegna þess að erlendar eignir líf­eyr­is­sjóð­anna juk­ust um 157 millj­arða króna í júlí­mán­uði einum saman. Innlendu eign­irnar hækk­uðu á sama tíma um 79,7 millj­arða króna.

Þetta má lesa út úr hag­tölum Seðla­banka Íslands um stöðu líf­eyr­is­sjóða­kerf­is­ins sem birtar voru í dag. Alls var hrein eign líf­eyr­is­sjóða 6.611 millj­arðar króna í lok júlí síð­ast­lið­ins. Hún hefur tví­vegis verið meiri í lok mán­aðar. Fyrst í des­em­ber í fyrra, þegar virði eigna­safns­ins náði met­hæðum og var metið á 6.747 millj­arða króna, og svo í mars á þessu ári þegar virðið náði að vera 6.653 millj­arðar króna.

Búast má við því að erlendu eign­irnar hafi hækkað enn frekar í virði í ágúst vegna veik­ingar krón­unnar í þeim mán­uði.

Til að setja þá hækkun sem varð á virði eigna líf­eyr­is­sjóða­kerf­is­ins í júlí­mán­uði einum saman í sam­hengi má benda á að sam­kvæmt fjár­lögum árs­ins 2022 er áætlað að rúmir 300 millj­arðar króna renni til þess að reka heil­brigð­is­kerfið á Íslandi í ár. Í sömu fjár­lögum var gert ráð fyrir að allar inn­heimtar skatt­tekjur rík­is­ins á árinu yrðu 955 millj­arðar króna. Virð­is­aukn­ing eigna íslenskra líf­eyr­is­sjóða í einum mán­uði er því um fjórð­ungur af öllum áætl­uðum inn­heimtum skatt­tekjum rík­is­sjóðs í ár.

Lækkuðu um 361 milljarð á fyrri hluta árs

Sá við­snún­ingur sem varð í júlí kom í kjöl­far þess að eignir íslenska líf­eyr­is­sjóða­kerf­is­ins lækk­uðu alls um 361 millj­arð króna á fyrstu sex mán­uðum árs­ins. Sú lækkun var fyrst og síð­ast til­komin vegna þess að virði hluta­bréfa í eigu þeirra, jafnt inn­an­lands sem erlendis, lækk­aði.

Þessi lækkun kom í kjöl­far mik­illar hækk­un­ar­hr­inu á árinu 2021 þegar eignir kerf­is­ins juk­ust um 1.791 millj­arð króna, eða um 36 pró­sent.

[adspot]Hluti þeirrar aukn­ingar var til­­kom­inn vegna inn­­greiðslna sjóðs­fé­laga en langstærsti hluti hennar var vegna þess að fjár­­­fest­ing­­ar, aðal­­­lega hluta­bréf, hækk­­uðu í virði. Heild­­ar­­vísi­tala skráðra hluta­bréfa á Íslandi hækk­­aði til að mynda um 24,3 pró­­sent 2020 og um 40,2 pró­­sent í fyrra. Íslenskir líf­eyr­is­­sjóðir eru langstærstu eig­endur slíkra bréfa, og eiga um helm­ing þeirra beint eða óbein­t.

Alls eiga sjóð­irnir íslensk hluta­bréf og hlut­deild­ar­skír­teini sem metin voru á 1.115 millj­arða króna í lok júli. Virði eign­ar­flokks­ins hefur þó lækkað um 47 millj­arða króna frá ára­mót­um.

Betri gangur erlendis takmarkar möguleika

Alls eru um 66,3 pró­­sent eigna líf­eyr­is­­sjóð­anna inn­­­lendar eign­­ir. Hlut­­fallið hefur hækkað á þessu ári vegna þess verð­­falls sem varð á erlendu eign­un­um framan af ári, en auk hluta­bréfa sam­anstendur inn­­­lenda eignin að upp­i­­­stöðu af skulda­bréfum og lánum sem sjóð­irnir hafa veitt sjóðs­fé­lögum til hús­næð­is­­kaupa.

[links]Um liðin ára­­mót voru erlendu eign­­irnar orðnar tæp­­lega 36 pró­­sent af heild­­ar­­eignum sjóð­anna en það hlut­­fall hefur nú fallið niður í 33,7 pró­­sent. Þær hafa þó nán­­ast tvö­­fald­­ast í krónum talið á rúmum þremur árum.

Sam­­kvæmt gild­andi lögum hafa líf­eyr­is­­sjóð­irnir heim­ild til að vera með 50 pró­­sent eigna sinna erlend­­is. Þeir hafa lengi kallað eftir að þetta hlut­­fall verði hækkað þar sem nokkrir sjóðir eru komnir ískygg­i­­lega nálægt hámark­inu. Í vor voru tíu líf­eyr­is­­­­sjóðir komnir með hlut­­­­fall eigna sinna erlendis í um 35 pró­­­­sent af heild­­­­ar­­­­eignum eða meira. Þar af voru þrír sjóðir komnir með hlut­­­­fallið yfir 40 pró­­­­sent og einn, Líf­eyr­is­­­­sjóður verzlunarmanna, var kom­inn með það nálægt 45 pró­­­­sent. Sjóð­irnir þorðu illa að fara með hlut­­­­fallið hærra þar sem skynd­i­­­­leg breyt­ing á gengi krónu eða hækk­­­­­­­anir á ákveðnum bréfum geta ýtt þeim yfir lög­­­­­­­legt hámark.

Sam­­kvæmt gild­andi lögum hafa líf­eyr­is­­sjóð­irnir heim­ild til að vera með 50 pró­­sent eigna sinna erlend­­is. Þeir hafa lengi kallað eftir að þetta hlut­­fall verði hækkað þar sem nokkrir sjóðir eru komnir ískygg­i­­lega nálægt hámark­inu. Í vor voru tíu líf­eyr­is­­­­sjóðir komnir með hlut­­­­fall eigna sinna erlendis í um 35 pró­­­­sent af heild­­­­ar­­­­eignum eða meira. Þar af voru þrír sjóðir komnir með hlut­­­­fallið yfir 40 pró­­­­sent og einn, Líf­eyr­is­­­­sjóður verzlunarmanna, var kom­inn með það nálægt 45 pró­­­­sent. Sjóð­irnir þorðu illa að fara með hlut­­­­fallið hærra þar sem skynd­i­­­­leg breyt­ing á gengi krónu eða hækk­­­­­­­anir á ákveðnum bréfum geta ýtt þeim yfir lög­­­­­­­legt hámark.

Djúpstæð óánægja

Bjarni Bene­dikts­­son, fjár­­­mála- og efna­hags­ráð­herra, lagði fram frum­varp fyrr á þessu ári sem rýmka átti heim­ildir líf­eyr­is­­sjóða til að fjár­­­festa erlend­­is.

Þegar drög að frum­varp­inu voru kynnt í sam­ráðs­­­gátt stjórn­­­­­valda stóð til að hlut­­­fallið myndi hækka um eitt pró­­­­sent­u­­­­stig á ári frá byrjun árs 2024 og til loka 2038. Heim­ildin yrði þá 65 pró­­­­sent í lok þess árs.

Í umsögn Lands­­­sam­­­taka líf­eyr­is­­­sjóða um drögin kom fram að djúp­­­stæð óánægja væri meðal full­­­trúa þeirra sjóða sem væru þegar komnir nálægt núgild­andi þaki með hvers hægt ætti að rýmka heim­ild­irn­­­ar. Kallað var eftir því að hækka heim­ild­ina strax um næstu ára­­­­mót og hækka hana um tvö til þrjú pró­­­­sent­u­­­­stig á ári þangað til að 65 pró­­­­sent mark­inu yrði náð. Ef farið yrði að ítr­­­­ustu kröfum sjóð­anna myndi það tak­­­­mark nást í árs­­­­lok 2027 að óbreytt­u.

Í frum­varp­inu eins og það var lagt fram á Alþingi var gerð sú breyt­ing að á árinum 2024, 2025 og 2026 yrði heim­ild sjóð­anna í erlendum eignum hækkuð um 1,5 pró­­­sent­u­­­stig á ári og yrði þannig 54,5 pró­­­sent í lok síð­­­asta árs­ins. Eftir það ætti hámarkið að aukast um eitt pró­­­sent­u­­­stig á ári þar til það nær 65 pró­­­sentum í byrjun árs 2036. Í frum­varp­inu stóð enn fremur að ráð­herra ætti í síð­­­asta lagi á árinu 2027 að leggja mat á hvort til­­­efni sé til að leggja til aðrar breyt­ing­­­ar.

Frum­varpið var ekki afgreitt fyrir þing­­lok. Búist er við því að það verði tekið til afgreiðslu snemma á næsta þingi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár