Lífeyrissjóðir senda út upplýsingar á pappír fyrir 200 milljónir króna á ári

Í nýfram­lögðu frum­varpi er lagt til að líf­eyr­is­sjóðum verði gert heim­ilt að birta sjóðs­fé­lögum sínum upp­lýs­ingar með raf­rænum hætti. Sér­stak­lega þarf að óska eftir því að fá þær á pappír. Ef eng­inn velur það spar­ast um 200 millj­ónir króna á ári.

Samkvæmt þeim lögum sem gilda í land­inu í dag er líf­eyr­is­sjóðum ekki heim­ilt að birta sjóðs­fé­lögum sínum upp­lýs­ingar raf­rænt nema þeir óski eftir því. Sjóð­irnir þurfa því að senda upp­lýs­ingar um stöðu líf­eyr­is­sparn­aðar, sem er lög­bund­inn, út á papp­írs­formi til allra sjóðs­fé­laga sem hafa ekki lagt fram slíka ósk. Kostn­aður vegna þeirra send­inga er um 200 millj­ónir króna á ári.

Nú hefur verið lagt fram frum­varp um breyt­ingar á lögum um líf­eyr­is­sjóði. Einn angi þeirra breyt­inga er að sjóð­unum verði gert heim­ilt að birta sjóðs­fé­lögum upp­lýs­ingar raf­rænt en að þeir geti áfram sem áður óskað eftir því að fá upp­lýs­ingar og yfir­lit send á pappír. Verði frum­varpið sam­þykkt þá munu sjóðs­fé­lagar því þurfa að biðja um papp­írs­send­ing­arnar, í stað þess að óska sér­stak­lega eftir að þeim verði hætt. Ef eng­inn óskar eftir að fá upp­lýs­ingar og yfir­lit á pappír þá spara líf­eyr­is­sjóð­irnir því um 200 millj­ónir króna á ári, en í lok síð­asta árs voru greið­endur í sam­trygg­ing­ar­deild sjóð­anna 223.654 tals­ins.

Umtals­verð jákvæð umhverf­is­á­hrif fylgja þessu einnig, enda þurfa sjóð­irnir ekki að kaupa gríð­ar­legt magn af pappír til að prenta út og senda.

Ekki fallist á tillögu um að rukka fyrir pappírinn

Frum­varpið var lagt fram á síð­asta þingi í lít­il­lega breyttri mynd en náði ekki fram að ganga. Þá bár­ust hins vegar fjöl­margar umsagnir um það. Ein slík kom frá Arion banka. Í henni var lagt til að heim­ild yrði bætt við til gjald­töku fyrir þá sem vildu áfram frá iðgjalda­yf­ir­lit og upp­lýs­ingar á papp­írs­formi,s em myndi taka gildi þremur árum eftir að heim­ild til raf­rænnar birt­ingar yrði lög­fest.

Í frum­varp­inu sem var birt á vef Alþingis á föstu­dag kemur fram í grein­ar­gerð að fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið, sem leggur frum­varpið fram, fall­ist ekki á þá til­lögu. „Í því sam­bandi lítur ráðu­neytið m.a. til þess að iðgjöld til líf­eyr­is­sjóðs eru lög­bundin, þau varða mik­il­væg rétt­indi sjóð­fé­lag­ans til fram­tíðar auk þess sem sjóð­fé­lagar eru mis­vel settir með að nýta sér staf­ræna tækni, þ.m.t. þeir sem eldri eru.“

Innleiða lögbundna skyldu um frekari upplýsingagjöf

Í nýja frum­varp­inu er líka lagt til að líf­eyr­is­sjóðum verði skylt að upp­lýsa sjóð­fé­laga um helstu rétt­indi sem fel­ast í aðild að sjóðnum og um skipu­lag hans og stefnu. „Betri skiln­ingur sjóð­fé­laga á líf­eyr­is­sjóða­kerf­inu er til þess fall­inn að þeir taki upp­lýst­ari ákvarð­anir um líf­eyr­is­sparnað sinn, þar sem það er mögu­legt. Líf­eyr­is­sparn­aður er ein af stærstu eignum hvers Íslend­ings og sam­fé­lagið allt hefur gagn af auk­inni þekk­ingu á líf­eyr­is­kerf­inu.“

Þá séu líkur á að sú upp­lýs­inga­gjöf sem lögð sé til leiði til þess að Ísland verði hæst í öllum þeim þremur flokkum sem alþjóð­leg úttekt Mercer á líf­eyr­is­sjóð­kerfum nær til, þ.e. sjálf­bærni, nægj­an­leika og heil­inda. „Ísland var í fyrsta sæti í tveimur fyrr­nefndu flokk­unum árið 2021, en í sjö­unda sæti þegar kom að heil­indum, að miklu leyti vegna þess að upp­lýs­inga­gjöf til nýrra sjóð­fé­laga skorti.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár