Eignir lífeyrissjóðanna lækkuðu um 361 milljarða á fyrri hluta ársins

Fallandi hluta­bréfa­verð, jafn inn­an­lands sem erlendis, og styrk­ing krón­unnar eru lyk­il­þættir í því að eignir íslensku líf­eyr­is­sjóð­anna hafa lækkað umtals­vert það sem af er ári. Eign­irnar hafa vaxið mikið á síð­ustu árum. Í fyrra juk­ust þær um 36 pró­sent.

Verðfall á mörkuðum erlendis er lykilbreyta í þróun eignarsafns íslenskra lífeyrissjóða. Myndin tengist fréttinni ekki beint.
Verðfall á mörk­uðum erlendis er lyk­il­breyta í þróun eign­ar­safns íslenskra líf­eyr­is­sjóða. Myndin teng­ist frétt­inni ekki beint. Mynd: Úr safni

Eignir íslenskra líf­eyr­is­sjóða voru 6.386 millj­arðar króna í lok júní síð­ast­lið­ins og lækk­uðu um 36 millj­arða króna á milli mán­aða. Þær hafa lækkað um 361 millj­arð króna frá síð­ustu ára­mótum þegar eignir kerf­is­ins voru í met­hæðum, 6.747 millj­arðar króna.

Þrátt fyrir umtals­verðar lækk­aðir á fyrstu sex mán­uðum árs­ins, aðal­lega vegna lækk­unar á hluta­bréfa­verði inn­an­lands og erlendis, er langt í að sá vöxtur sem sjóð­irnir hafa upp­lifað á síð­ustu árum sé að étast upp. Á árinu 2021 einu saman juk­ust eignir þeirra um 1.791 millj­arð króna, eða um 36 pró­sent.

Hluti þeirrar aukn­ingar var til­kom­inn vegna inn­greiðslna sjóðs­fé­laga en langstærsti hluti hennar var vegna þess að fjár­fest­ing­ar, aðal­lega hluta­bréf, hækk­uðu í virði. Heild­ar­vísi­tala skráðra hluta­bréfa á Íslandi hækk­aði til að mynda um 24,3 pró­sent 2020 og um 40,2 pró­sent í fyrra. Íslenskir líf­eyr­is­sjóðir eru langstærstu eig­endur slíkra bréfa, og eiga um helm­ing þeirra beint eða óbein­t. Alls eiga sjóð­irnir íslensk hluta­bréf og hlut­deild­ar­skír­teini sem metin voru á 1.059 millj­arða króna í lok júni. Virði eign­ar­flokks­ins hefur lækkað um 102 millj­arða króna frá ára­mótum.

Styrking krónu lækkar virði erlendra bréfa

Það sem af er þessu ári hefur úrvals­vísi­tala Kaup­hallar Íslands, sem er sam­an­sett úr gengi bréfa þeirra tíu félaga sem hafa mestan selj­an­leika, lækkað um tæp 16 pró­sent. Mest lækk­aði hún í maí þegar vísi­talan lækk­aði um 10,9 pró­sent. Það er mesta lækkun innan mán­aðar síðan í maí 2010, eða í tólf ár. Lækkun á virði bréfa í Mar­el, lang­verð­mætasta skráða félags­ins á íslenskum hluta­bréfa­mark­aði, hefur leitt þessa þró­un.

Síðan þá hefur úrvals­vísi­talan þó hækkað, alls um 5,6 pró­sent.

Erlendar eignir líf­eyr­is­sjóð­anna eru að lang­mestu leyti hluta­bréf og hlut­deild­ar­skír­teini í fjár­fest­ing­ar­sjóðum. Alls eru 96 pró­sent erlendra eigna sjóð­anna í því formi.

Virði erlendra hluta­bréfa og hlut­deild­ar­skír­teina hefur lækkað enn meira en inn­lendu eign­irnar. Í lok síð­asta árs var eign­ar­flokk­ur­inn met­inn á 2.317 millj­arða króna en um mitt þetta ár var virðið komið niður í 1.982 millj­arða króna. Á hálfu ári lækk­aði það því um 335 millj­arða króna.

Lækkun erlendra eigna má bæði rekja til við­snún­ings á erlendum eigna­mörk­uðum og til styrk­ingar krón­unnar gagn­vart erlendum gjald­miðlum.

Farnir að kitla þakið

Alls eru um 67,5 pró­sent eigna líf­eyr­is­sjóð­anna inn­lendar eign­ir. Hlut­fallið hefur hækkað vegna þess verð­falls sem orðið hefur á erlendu eign­un­um, en auk hluta­bréfa sam­anstendur inn­lenda eignin að uppi­stöðu af skulda­bréfum og lánum sem sjóð­irnir hafa veitt sjóðs­fé­lögum til hús­næð­is­kaupa.

Um liðin ára­mót voru erlendu eign­irnar orðnar tæp­lega 36 pró­sent af heild­ar­eignum sjóð­anna en það hlut­fall hefur nú fallið niður í 32,5 pró­sent. Þær hafa þó nán­ast tvö­fald­ast í krónum talið á rúmum þremur árum.

Sam­kvæmt gild­andi lögum hafa líf­eyr­is­sjóð­irnir heim­ild til að vera með 50 pró­sent eigna sinna erlend­is. Þeir hafa lengi kallað eftir að þetta hlut­fall verði hækkað þar sem nokkrir sjóðir eru komnir ískyggi­lega nálægt hámark­inu. Í vor voru tíu líf­eyr­is­­­sjóðir komnir með hlut­­­fall eigna sinna erlendis í um 35 pró­­­sent af heild­­­ar­­­eignum eða meira. Þar af voru þrír sjóðir komnir með hlut­­­fallið yfir 40 pró­­­sent og einn, Líf­eyr­is­­­sjóður verzlunarmanna, var kom­inn með það nálægt 45 pró­­­sent. Sjóð­irnir þorðu illa að fara með hlut­­­fallið hærra þar sem skynd­i­­­leg breyt­ing á gengi krónu eða hækk­­­­­anir á ákveðnum bréfum geta ýtt þeim yfir lög­­­­­legt hámark.

Sam­kvæmt gild­andi lögum hafa líf­eyr­is­sjóð­irnir heim­ild til að vera með 50 pró­sent eigna sinna erlend­is. Þeir hafa lengi kallað eftir að þetta hlut­fall verði hækkað þar sem nokkrir sjóðir eru komnir ískyggi­lega nálægt hámark­inu. Í vor voru tíu líf­eyr­is­­­sjóðir komnir með hlut­­­fall eigna sinna erlendis í um 35 pró­­­sent af heild­­­ar­­­eignum eða meira. Þar af voru þrír sjóðir komnir með hlut­­­fallið yfir 40 pró­­­sent og einn, Líf­eyr­is­­­sjóður verzlunarmanna, var kom­inn með það nálægt 45 pró­­­sent. Sjóð­irnir þorðu illa að fara með hlut­­­fallið hærra þar sem skynd­i­­­leg breyt­ing á gengi krónu eða hækk­­­­­anir á ákveðnum bréfum geta ýtt þeim yfir lög­­­­­legt hámark.

Frum­varp sem þótti ekki ganga nógu langt ekki afgreitt fyrir þing­lok

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, lagði fram frum­varp fyrr á þessu ári sem rýmka átti heim­ildir líf­eyr­is­sjóða til að fjár­festa erlend­is.

Þegar drög að frum­varp­inu voru kynnt í sam­ráðs­­gátt stjórn­­­valda stóð til að hlut­­fallið myndi hækka um eitt pró­­­sent­u­­­stig á ári frá byrjun árs 2024 og til loka 2038. Heim­ildin yrði þá 65 pró­­­sent í lok þess árs.

Í umsögn Lands­­sam­­taka líf­eyr­is­­sjóða um drögin kom fram að djúp­­stæð óánægja væri meðal full­­trúa þeirra sjóða sem væru þegar komnir nálægt núgild­andi þaki með hvers hægt ætti að rýmka heim­ild­irn­­ar. Kallað var eftir því að hækka heim­ild­ina strax um næstu ára­­­mót og hækka hana um tvö til þrjú pró­­­sent­u­­­stig á ári þangað til að 65 pró­­­sent mark­inu yrði náð. Ef farið yrði að ítr­­­ustu kröfum sjóð­anna myndi það tak­­­mark nást í árs­­­lok 2027 að óbreytt­u.

Í frum­varp­inu eins og það var lagt fram á Alþingi var gerð sú breyt­ing að á árinum 2024, 2025 og 2026 yrði heim­ild sjóð­anna í erlendum eignum hækkuð um 1,5 pró­­sent­u­­stig á ári og yrði þannig 54,5 pró­­sent í lok síð­­asta árs­ins. Eftir það ætti hámarkið að aukast um eitt pró­­sent­u­­stig á ári þar til það nær 65 pró­­sentum í byrjun árs 2036. Í frum­varp­inu stóð enn fremur að ráð­herra ætti í síð­­asta lagi á árinu 2027 að leggja mat á hvort til­­efni sé til að leggja til aðrar breyt­ing­­ar.

Frum­varpið var ekki afgreitt fyrir þing­lok. Búist er við því að það verði tekið til afgreiðslu snemma á næsta þingi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár