Lífeyrissjóðirnir hafa einungis einu sinni lánað meira óverðtryggt innan mánaðar

Líf­eyr­is­sjóðir lands­ins eru að snúa aftur af krafti á hús­næð­is­lána­markað. Þeir lán­uðu fleiri ný útlán í febr­úar en þeir hafa gert síðan í nóv­em­ber 2020. Hægari vaxta­hækk­anir og nýjar teg­undir óverð­tryggðra lána laða við­skipta­vini að.

Lífeyrissjóðirnir hafa ekki lánað jafn mörgum síðan í nóvember 2020.
Líf­eyr­is­sjóð­irnir hafa ekki lánað jafn mörgum síðan í nóv­em­ber 2020. Mynd: Andrea Pacquadio/Pexels

Líf­eyr­is­sjóðir lands­ins lán­uðu alls 5,9 millj­arða króna í ný óverð­tryggð hús­næð­is­lán til sjóðs­fé­laga, að frá­dregnum upp- og umfram­greiðslum, í febr­úar síð­ast­liðnum. Það er næst hæsta upp­hæð sem þeir hafa lánað í óverð­tryggð hús­næð­is­lán á einum mán­uði. Eina skiptið sem útlánin voru hærri var í októ­ber 2019, þegar líf­eyr­is­sjóðir lands­ins lán­uðu sam­tals um 7,1 millj­arð króna í óverð­tryggð hús­næð­is­lán.

Óverð­tryggðu lánin rúm­lega tvö­föld­uð­ust milli jan­úar og febr­ú­ar­mán­aða.

Á saman tíma heldur nið­ur­greiðsla verð­tryggðra lána líf­eyr­is­sjóða áfram. Alls lækk­aði eign þeirra í slíkum lánum um 2,6 millj­arða króna í febr­úar.

Líf­eyr­is­sjóð­irnir, sem bjóða nú margir hverjir upp á betri vaxta­kjör en stóru við­skipta­bank­arnir, lán­uðu alls út 500 ný útlán í febr­úar. Það er mesta magn útlána sem þeir hafa lánað frá því í nóv­em­ber 2020.

Bankarnir stórjuku markaðshlutdeild sína í faraldrinum

Bank­arnir tóku yfir íslenska íbúð­ar­lána­mark­að­inn eftir að kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn skall á. Það sem gerði þeim það kleift voru aðgerðir Seðla­banka Íslands, sem lækk­aði stýri­vexti niður í 0,75 pró­sent og afnam tíma­bundið hinn svo­kall­aða sveiflu­jöfn­un­ar­auka, og rík­is­stjórn Íslands, sem lækk­aði banka­skatt þannig að tekjur rík­is­sjóðs af honum rýrn­uðu um sex millj­arða króna á ári.

Frá mars 2020 og fram í febr­úar síð­ast­lið­inn juk­ust hrein ný útlán Lands­­bank­ans, Íslands­­­banka og Arion banka, með veði í íbúð, gríð­ar­lega. Mark­aðs­hlut­­deild bank­anna í öllum úti­stand­andi lánum til íbúð­­ar­­kaupa hefur vaxið úr 55 í meira en 70 pró­­sent.

Þessi miklu útlána­vöxtur mynd­aði grunn­inn að gríð­ar­legum hagn­aði bank­anna þriggja í fyrra, sem sam­tals var 81,2 millj­arðar króna. Hann hafði líka mikil ruðn­ings­á­hrif á hús­næð­is­verð sem hefur hækkað um tugi pró­senta á skömmum tíma.

Kerf­is­lega mik­il­vægu bank­arnir þrír lán­uðu minna í íbúða­lán umfram upp- og umfram­greiðslur í febr­úar 2022 en þeir höfðu gert frá því fyrir far­ald­ur. Ný útlán voru samt sem áður 9,6 millj­arðar króna þannig að þeir eru enn að bæta við mark­aðs­hlut­deild sína. Til sam­an­burðar voru þeir að lána á fimmta tug millj­arða króna á mán­uði í ný útlán að frá­dregnum upp- og umfram­greiðslum þegar best lét á kór­ónu­veiru­tíma­bil­inu.

Lífeyrissjóðirnir snúa aftur

Við­snún­ingur hefur verið á útlánum líf­eyr­is­sjóð­anna til sjóðs­fé­laga sinna vegna íbúð­ar­kaupa frá því seint á síð­asta ári. Frá júní­mán­uði árið 2020 og út októ­ber í fyrra, alls í 16 mán­uði, þá voru upp- eða umfram­greiðslur lána sjóð­anna meiri en ný útlán. Alls voru greidd upp lán fyrir 66,7 millj­arða króna umfram ný lán, jafnt verð­tryggð og óverð­tryggð, á tíma­bil­inu. Frá byrjun nóv­em­ber og út febr­úar­mánuð lán­uðu líf­eyr­is­sjóð­irnir hins vegar 8,5 millj­arð króna meira en upp- og umfram­greiðsl­ur.

Þar skiptir senni­lega mestu að Líf­eyr­is­­­sjóður verzlunarmanna, næst stærsti líf­eyr­is­­­sjóður lands­ins, ákvað í haust að stofna nýjan lána­­­flokk sjóðs­­­fé­laga­lána og lánar nú óverð­­­tryggð lán til íbúð­­­ar­­­kaupa með breyt­i­­­legum vöxt­­­um.

Um er að ræða þá teg­und lána sem notið hefur mestra vin­­­sælda hjá íslenskum hús­næð­is­­­kaup­endum síð­­­ast­liðin ár. Vext­irnir eru nú mun betri en þeir bestu sem bank­­arnir bjóða upp á og þeir hækka ekki jafn skarpt og hjá bönk­un­um, sem elta hverja til­kynnta stýri­vaxta­hækk­un. Frá því að nýi lána­flokk­ur­inn var til­kynntur í októ­ber í fyrra hafa vextir ein­ungis verið hækk­aðir einu sinni, og sú hækkun tók gildi í febr­úar 2022.

Sem stendur eru vextir á breyti­legum óverð­tryggðum vöxtum hjá Líf­eyr­is­sjóði verzlunarmanna 4,13 pró­sent á grunn­láni á meðan að þeir eru 4,7 pró­sent hjá Lands­bank­an­um, sem hefur verið allra banka stór­tæk­astur á íbúða­lána­mark­aði und­an­farin tvö ár. Breyti­legir óverð­tryggðir vextir Líf­eyr­is­sjóðs verzlunarmanna munu fara upp í 4,32 pró­sent 1. maí næst­kom­andi.

Líf­eyr­is­­sjóð­irnir njóta þess fram yfir banka að bera engan kostnað vegna fjár­­­mögn­un­­ar. Bankar þurfa að fá lán­aða pen­inga, annað hvort hjá við­­skipta­vinum sínum í formi inn­­lána eða frá fjár­­­festum með skulda­bréfa­út­gáfu, og greiða vexti af því fé. Líf­eyr­is­­sjóðir eru áskrif­endur að fé almenn­ings sem flæðir inn í hirslur þeirra um hver ára­­mót án vaxta, þótt krafa sé gerð um að þeir ávaxti það fé. Það gefur sjóð­unum tæki­­færi á að bjóða upp á betri við­­skipta­­kjör.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár