Framkvæmdastjóri Gildis neitar að mæta á fund um Init-málið

Fram­kvæmda­stjóri Gildis hafði áður fall­ist á boð um að koma á fund Eflingar um Init-málið en sam­kvæmt stétt­ar­fé­lag­inu dró hann það til baka þegar honum var til­kynnt að Aðal­steinn Kjart­ans­son blaða­maður yrði fund­ar­stjóri.

Aðalsteinn Kjartansson, blaðamaður á Stundinni, og Árni Guðmundsson, framkvæmdastjóri Gildis.
Aðal­steinn Kjart­ans­son, blaða­maður á Stund­inni, og Árni Guð­munds­son, fram­kvæmda­stjóri Gildis. Mynd: Samsett mynd

Árni Guð­munds­son fram­kvæmda­stjóri Gildis – líf­eyr­is­sjóðs hefur hafnað boði trún­að­ar­ráðs­fé­laga og stjórnar Eflingar um að koma á fund með félags­mönnum Eflingar til umræðu um Init-málið. Þetta kemur fram í frétta­bréfi trún­að­ar­ráðs Eflingar en þar segir jafn­framt að hann hafi dregið boðið til baka þegar honum var til­kynnt að Aðal­steinn Kjart­ans­son, blaða­maður á Stund­inni, yrði fund­ar­stjóri en hann starf­aði áður við frétta­skýr­inga­þátt­inn Kveik sem fjall­aði um Init-málið fyrr á þessu ári.

Í skrif­legu svari til Kjarnans stað­festir Árni að hafa hafnað boði um að koma á fund­inn. „Nálgun for­svars­manna Eflingar á við­fangs­efn­inu og fyr­ir­komu­lag fund­ar­ins var með þeim hætti að það var að mínu mati ekki ásætt­an­legt,“ segir Árni.

Þá kemur fram hjá fram­kvæmda­stjór­anum að for­maður Eflingar, Sólveig Anna Jóns­dóttir, hafi jafn­framt verið upp­lýst um að Efl­ing­ar­fé­lögum og öðrum sjóð­fé­lögum Gildis yrðu veittar upp­lýs­ingar um málið, meðal ann­ars á sjóð­fé­laga­fundi sem hald­inn verður 25. nóv­em­ber næst­kom­andi.

Kjarninn spurði hvort ákvörðun hans hefði eitt­hvað með nær­veru Aðal­steins að gera en Árni svar­aði því ekki beint. „Eins og fram kom í fyrra svari mínu þá var það nálgun Efl­ing­ar­for­yst­unnar á efn­inu og heild­ar­um­gjörð fund­ar­ins sem var ástæða þess að ég hafn­aði því að mæta. Taldi síðan að það væri eðli­legra að fjalla um málið á sjóð­fé­laga­fundi þar sem allir sjóð­fé­lagar Gildis fengju upp­lýs­ingar um málið og gætu spurt.“

Telur framkvæmdastjórann hafa sýnt sjóðsfélögum lítilsvirðingu

Í frétta­bréfi trún­að­ar­ráðs Eflingar segir að í sam­skiptum við Sólveigu Önnu hafi Árni áður fall­ist á boð um að koma á fund. Hann hafi dregið það til baka, eins og áður segir, þegar honum var til­kynnt að fund­ar­stjóri yrði Aðal­steinn Kjart­ans­son, blaða­maður á Stund­inni, sem áður starf­aði við frétta­skýr­inga­þátt­inn Kveik og vann umfjöllun þátt­ar­ins um Init-málið.

„Mörg hund­ruð millj­ónir af líf­eyr­is­ið­gjöldum okkar hurfu í vasa skúffu­fyr­ir­tækis á vakt Árna. Engar skýr­ingar hafa komið fram frá honum á því hvernig þetta gat gerst. Það er þörf á upp­lýstri og trú­verð­ugri umræðu um þetta við Efl­ing­ar­fé­laga, sem eiga þessa pen­inga. Ég tel að fram­kvæmda­stjóri Gildis sýni sjóð­fé­lögum og Efl­ing­ar­fé­lögum lít­ils­virð­ingu með því að hafna boði um að koma á fund okkar,“ segir Sólveig Anna Jóns­dóttir for­maður Eflingar í frétta­bréf­inu.

Tæpur millj­arður fór út úr Init til Ini­t-­rekst­urs á sex árum

Kveikur fjall­aði um Init-málið í lok apríl síð­ast­lið­ins en þar kom fram að þjón­ustu­fyr­ir­tækið Init hefði rukkað líf­eyr­is­sjóði og verka­lýðs­fé­lög um vinnu sem efa­semdir væru um að stæð­ist lög.

Í þætti Kveiks kom fram að hund­ruð millj­óna króna hefðu streymt út úr félag­inu Init og til ann­ars félags í eigu stjórn­enda Init. Það félag heitir Ini­t-­rekst­ur. Á árunum 2013 til 2019 fór tæpur millj­arður króna út úr Init til Ini­t-­rekst­urs.

Init ann­að­ist rekstur tölvu­kerf­is, sem kall­ast Jóakim og heldur meðal ann­ars utan um öll rétt­indi þeirra sem greiða í líf­eyr­is­sjóði. Jóakim er í eigu tíu líf­eyr­is­sjóða og ýmis verka­lýðs­fé­lög greiða fyrir notkun á kerf­inu.

Samn­ings­brot af hálfu Init

Ernst & Young ehf. (EY) skil­aði af sér úttekt á samn­ingi milli RL og Init ehf. um rekstur hug­bún­að­ar­kerf­is­ins Jóakims í byrjun júlí en þess má geta að RL sagði upp samn­ingi sínum við Init fyrr um sum­arið. Í úttekt­inni kom meðal ann­ars fram að Init hefði brotið samn­inga við RL. Fram kom hjá RL að þar hefði vegið þyngst við­skipta­sam­band Init ehf. við und­ir­verk­taka án heim­ildar RL, ann­ars vegar við félag með sama eign­ar­hald, Init rekstur ehf., og hins vegar við nokkur félög í eigu stjórn­enda Init.

Fram kom í úttekt­inni að ekki yrði séð að eðli­legur rekstr­ar­til­gangur hefði að öllu leyti legið að baki greiðslum milli umræddra félaga.

Í til­kynn­ingu RL, sem birt­ist með nið­ur­stöð­un­um, kom fram að stjórn RL myndi „á næstu vikum fara ítar­lega yfir þessar nið­ur­stöður úttekt­ar­innar og skoða hvort gripið verði til aðgerða á grunni þeirra“.

Lífeyrissjóðir taka yfir rekstur Jóakims

Nýjustu vend­ingar í mál­inu eru þær að RL hyggst taka yfir rekstur á hug­bún­að­ar­kerf­inu Jóakim og hefur starfs­fólk fyr­ir­tæk­is­ins Init verið upp­lýst um þá nið­ur­stöðu. Þetta kom fram í til­kynn­ingu frá RL þann 21. októ­ber.

„Er þetta gert í fram­haldi þess að samn­ingi RL og Init var sagt upp í júní­mán­uði. Í vinn­unni fram undan verður lögð áhersla á að tryggja áfram öruggan rekstur hug­bún­að­ar­kerf­is­ins Jóakim og öryggi þeirra gagna sem kerfið heldur utan um. Samhliða er stefnt að því að draga úr kostn­aði við rekstur á Jóakim kerf­inu til lengri tíma meðal ann­ars með því að ein­falda rekstr­ar­fyr­ir­komu­lag.

Á næstu mán­uðum verður unnið að yfir­færslu rekstr­ar­ins með starfs­fólki Inits sem hafa síð­ustu árin séð um rekstur og þróun Jóakim tölvu­kerf­is­ins. Mik­il­vægt er að tryggja áfram­hald­andi aðkomu þeirra að rekstr­inum, enda býr starfs­fólkið yfir yfir­grips­mik­illi þekk­ingu á Jóakim kerf­inu sem og líf­eyr­is­kerf­inu í heild sinni,“ sagði í til­kynn­ingu RL.

Fram kom hjá RL að yfir­takan væri aðeins eitt skref í umfangs­mik­illi vinnu sem unnin hefði verið innan Reikni­stofu líf­eyr­is­sjóða og þeirra líf­eyr­is­sjóða sem aðild eiga að Jóakim kerf­inu, en auk­inn kraftur hefði verið settur í verk­efnið eftir að upp komst um brot Inits á samn­ingi fyr­ir­tæk­is­ins við RL sem voru síðar stað­fest í óháðri úttekt. „Þar hafa nán­ast öll atriði sem snúa að rekstri og þróun kerf­is­ins ásamt samn­ingum við Init verið teknir til skoð­unar. Sú vinna mun halda áfram næstu mán­uði og miss­eri og verða sjóð­fé­lagar upp­lýstir um þróun ein­stakra mála eftir því sem efni og aðstæður leyfa.“

Sagði samantektina skilja eftir margar spurningar

Viðar Þor­steins­son fram­kvæmda­stjóri Efl­ingar gerði úttekt­ina að umræðu­efni á Face­book-­síðu sinni í byjun júlí þegar hún kom út en þar gagn­rýndi hann ýmsa anga máls­ins.

„Því miður er það svo, að lestur þess­arar sam­an­tektar skilur margar spurn­ingar eftir ósvar­að­ar, rétt eins og maður ótt­að­ist. Hvers vegna birta líf­eyr­is­sjóð­irnir til að byrja með ekki skýrslu Ernst & Young í heild sinni, óstytta? Það sem er birt á net­inu er efn­is­rýr, loð­inn og almennur texti, þar sem les­and­inn á þess engan kost að leggja sjálf­stætt mat á eitt eða neitt. Til upp­rifj­unar varð­andi efn­is­at­riði máls­ins, þá er stærsta spurn­ingin sú hvers eðlis fjár­magnstil­færsl­urnar milli Init og ann­arra fyr­ir­tækja í eigu starfs­manna Init, sem end­uðu sem arð­greiðslur í vasa þeirra, voru í reynd,“ skrif­aði hann.

Spurði hann hvaða skýr­ingar hefðu komið fram á því við vinnslu úttekt­ar­inn­ar. „Hver er trú­verð­ug­leiki þeirra skýr­inga? Er ástæða til að ætla að t.d. bók­halds­laga­brot eða skatta­laga­brot hafi verið fram­in?“ spurði hann.

„Þessu er ekki í svarað í þess­ari skýrslu sem líf­eyr­is­sjóð­irnir bera nú á borð. Maður hefði haldið að þetta væri aðal­við­fangs­efni skýrsl­unn­ar, það sem málið snýst um. Í raun er það afrek að það hafi tek­ist að svara ekki þessum spurn­ing­um! Hvað fengu Ernst & Young borgað fyrir þetta? Í stað­inn fyrir að svara þessum spurn­ingum tekst þeim þó að þyrla upp ryki í kringum alls kyns auka­at­riði, eins og t.d. „heild­ar­um­gjörð samn­ings­mála er varða per­sónu­vernd­ar­mál“ sem sögð er hafa verið „óljós“!“

Benti hann að end­ingu á að ekki hefði verið haft sam­band við hann af hálfu Ernst & Young vegna þess­arar úttektar en að frum­kvæði stjórnar Efl­ingar hefði hann haft sam­band við Gildi sum­arið 2020 til að koma á fram­færi sömu upp­lýs­ingum um Init og þeim sem fjallað var um í þætti Kveiks fyrr á þessu ári.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár