Ætla ekki að birta úttekt á samningi við Init í heild sinni

Fram­kvæmda­stjóri Reikni­stofu líf­eyr­is­sjóða seg­ist ekki geta afhent úttekt á samn­ingi við Init ehf. um rekstur hug­bún­að­ar­kerf­is­ins Jóakims í heild sinni. Stjórn RL hefur enn ekki kom­ist að nið­ur­stöðu um næstu skref.

Almar Guðmundsson, framkvæmdastjóri RL.
Almar Guð­munds­son, fram­kvæmda­stjóri RL. Mynd: Úr safni

Stjórn Reikni­stofu líf­eyr­is­sjóða hf. (RL) hefur ekki tekið ákvörðun um það hvort grípa þurfi til aðgerða eftir að nið­ur­stöður úttektar á samn­ingi milli RL og Init ehf. um rekstur hug­bún­að­ar­kerf­is­ins Jóakims birt­ust í byrjun júlí. Þetta segir Almar Guð­munds­son fram­kvæmda­stjóri RL í sam­tali við Kjarnann.

Kjarninn óskaði eftir því að fá úttekt­ina í heild sinni en RL birti ein­ungis nið­ur­stöð­urnar þegar þær lágu fyrir fyrr í sumar. Í skrif­legu svari fram­kvæmda­stjór­ans kemur fram að hann geti ekki sent blaða­manni úttekt­ina í heild sinni. „Nið­ur­stöður hennar eru aðgengi­legar á vef okkar,“ segir í svar­inu.

Tæpur milljarður fór út úr Init til Init-reksturs á sex árum

Kveikur fjall­aði um málið í lok apríl síð­ast­lið­ins en þar kom fram að þjón­ustu­fyr­ir­tækið Init hefði rukkað líf­eyr­is­sjóði og verka­lýðs­fé­lög um vinnu sem efa­semdir væru um að stæð­ist lög.

Í þætti Kveiks kom fram að hund­ruð millj­óna króna hefðu streymt út úr félag­inu Init og til ann­ars félags í eigu stjórn­enda Init. Það félag heitir Init-rekstur. Á árunum 2013 til 2019 fór tæpur millj­arður króna út úr Init til Init-rekst­urs.

Init ann­að­ist rekstur tölvu­kerfis, sem kall­ast Jóakim og heldur meðal ann­ars utan um öll rétt­indi þeirra sem greiða í líf­eyr­is­sjóði. Jóakim er í eigu tíu líf­eyr­is­sjóða og ýmis verka­lýðs­fé­lög greiða fyrir notkun á kerf­inu.

Samningsbrot af hálfu Init

Ernst & Young ehf. (EY) skil­aði, eins og áður segir, af sér úttekt á samn­ingi milli RL og Init ehf. um rekstur hug­bún­að­ar­kerf­is­ins Jóakims en þess má geta að RL sagði upp samn­ingi sínum við Init í byrjun júní. Í fyrr­nefndri úttekt kom meðal ann­ars fram að Init hefði brotið samn­inga við RL. Fram kom hjá RL að þar hefði vegið þyngst við­skipta­sam­band Init ehf. við und­ir­verk­taka án heim­ildar RL, ann­ars vegar við félag með sama eign­ar­hald, Init rekstur ehf., og hins vegar við nokkur félög í eigu stjórn­enda Init.

Fram kom í úttekt­inni að ekki yrði séð að eðli­legur rekstr­ar­til­gangur hefði að öllu leyti legið að baki greiðslum milli umræddra félaga.

Stjórn RL vinnur enn að málinu

Í til­kynn­ingu RL, sem birt­ist með nið­ur­stöð­unum, kom fram að stjórn RL myndi „á næstu vikum fara ítar­lega yfir þessar nið­ur­stöður úttekt­ar­innar og skoða hvort gripið verði til aðgerða á grunni þeirra“.

[links]Fram­kvæmda­stjóri RL, Almar Guð­munds­son, segir í sam­tali við Kjarnann að enn sé verið að vinna að mál­inu. Stjórnin hafi enn ekki tekið ákvörðun um fram­haldið en að sér­fræð­ingar á þeirra vegum skoði nú málið.

Varðandi það að birta skýrsl­una í heild sinni þá segir Almar að þau hafi lagt áherslu á að allar nið­ur­stöður væru opin­ber­aðar og að það hafi þau gert. „Við teljum að það sé nóg,“ segir hann. Hann segir enn fremur að Jóakim sé gríð­ar­lega mik­il­vægt kerfi og þess vegna vinni þau hjá RL að mál­inu nú af festu.

Hann getur ekki nefnt hvenær nákvæm­lega von sé á nið­ur­stöðu stjórnar RL.

Segir lestur úttektarinnar skilja eftir margar spurningar

Viðar Þor­steins­son fram­kvæmda­stjóri Eflingar gerði úttekt­ina að umræðu­efni á Facebook-síðu sinni þegar hún kom út en þar gagn­rýnir hann ýmsa anga máls­ins.

„Því miður er það svo, að lestur þess­arar sam­an­tektar skilur margar spurn­ingar eftir ósvar­aðar, rétt eins og maður ótt­að­ist. Hvers vegna birta líf­eyr­is­sjóð­irnir til að byrja með ekki skýrslu Ernst & Young í heild sinni, óstytta? Það sem er birt á net­inu er efn­is­rýr, loð­inn og almennur texti, þar sem les­and­inn á þess engan kost að leggja sjálf­stætt mat á eitt eða neitt. Til upp­rifj­unar varð­andi efn­is­at­riði máls­ins, þá er stærsta spurn­ingin sú hvers eðlis fjár­magnstil­færsl­urnar milli Init og ann­arra fyr­ir­tækja í eigu starfs­manna Init, sem end­uðu sem arð­greiðslur í vasa þeirra, voru í reynd,“ skrif­aði hann.

Spyr hann hvaða skýr­ingar hafi komið fram á því við vinnslu úttekt­ar­innar. „Hver er trú­verð­ug­leiki þeirra skýr­inga? Er ástæða til að ætla að t.d. bók­halds­laga­brot eða skatta­laga­brot hafi verið framin?“ spyr hann.

„Þessu er ekki í svarað í þess­ari skýrslu sem líf­eyr­is­sjóð­irnir bera nú á borð. Maður hefði haldið að þetta væri aðal­við­fangs­efni skýrsl­unnar, það sem málið snýst um. Í raun er það afrek að það hafi tek­ist að svara ekki þessum spurn­ingum! Hvað fengu Ernst & Young borgað fyrir þetta? Í stað­inn fyrir að svara þessum spurn­ingum tekst þeim þó að þyrla upp ryki í kringum alls kyns auka­at­riði, eins og t.d. „heild­ar­um­gjörð samn­ings­mála er varða per­sónu­vernd­ar­mál“ sem sögð er hafa verið „óljós“!“

Bendir hann að end­ingu á að ekki hafi verið haft sam­band við hann af hálfu Ernst & Young vegna þess­arar úttektar en að frum­kvæði stjórnar Eflingar hefði hann haft sam­band við Gildi sum­arið 2020 til að koma á fram­færi sömu upp­lýs­ingum um Init og þeim sem fjallað var um í þætti Kveiks fyrr á þessu ári.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár