Fjármálaeftirlitið hnýtir í tvo lífeyrissjóði eftir vettvangsathuganir

Í kjöl­far vett­vangs­at­hug­ana Fjár­mála­eft­ir­lits­ins hjá Íslenska líf­eyr­is­sjóðnum og Eft­ir­launa­sjóði FÍA fyrr á þessu ári voru gerðar nokkrar athuga­semdir við ákveðna þætti í rekstri beggja sjóða.

Fjármálaeftirlit Seðlabankans gerði í september athugasemdir við nokkra þætti í rekstri tveggja lífeyrissjóða.
Fjár­mála­eft­ir­lit Seðla­bank­ans gerði í sept­em­ber athuga­semdir við nokkra þætti í rekstri tveggja líf­eyr­is­sjóða. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Fjár­mála­eft­ir­litið hefur gert athuga­semdir við nokkra þætti í starf­semi tveggja líf­eyr­is­sjóða, Íslenska líf­eyr­is­sjóðs­ins og Eft­ir­launa­sjóði FÍA, eftir að hafa fyrr á árinu ráð­ist í vett­vangs­at­hug­anir hjá báðum sjóð­unum, meðal ann­ars til þess að kanna þætti tengda útvistun á rekstri sjóð­anna.

Íslenski líf­eyr­is­sjóð­ur­inn er rek­inn af Lands­bank­anum og Eft­ir­launa­sjóður FÍA (Félags íslenskra atvinnu­flug­manna) er rek­inn af Arion banka.

Hjá báðum sjóðum gerir Fjár­mála­eft­ir­litið athuga­semdir við það að sjóð­irnir hafi ekki með full­nægj­andi hætti greint og metið hugs­an­lega hags­muna­á­rekstra vegna útvist­unar á innri end­ur­skoðun sjóðs­ins til rekstr­ar­að­ila hans.

Að auki eru gerðar athuga­semdir við að skrif­legir verk­ferlar vegna til­kynn­inga á frá­vikum í rekstri upp­lýs­inga­kerfa sjóð­anna voru ekki til staðar á þeim tíma sem athug­unin var fram­kvæmd. Eft­ir­launa­sjóður FÍA hefur þegar brugð­ist við þessu með við­un­andi hætti, sam­kvæmt því sem segir í gagn­sæ­istil­kynn­ingu Fjár­mála­eft­ir­lits­ins sem birt var í dag.

Seta framkvæmdastjóra á fundum endurskoðunarnefnda gegn lögum

Fjár­mála­eft­ir­litið gerir svo athuga­semdir við það, hjá báðum sjóðum, að fram­kvæmda­stjórar sjóð­anna sætu alla fundi end­ur­skoð­un­ar­nefndar líf­eyr­is­sjóðs­ins frá upp­hafi til enda.

Þetta telur Fjár­mála­eft­ir­litið að sam­rým­ist ekki ákvæðum laga um árs­reikn­inga.

Enn frekari athugasemdir hjá Íslenska

Í gagn­sæ­istil­kynn­ingu frá Fjár­mála­eft­ir­lit­inu má sjá að gerðar voru fleiri athuga­semdir við Íslenska líf­eyr­is­sjóð­inn en Eft­ir­launa­sjóð FÍA.

Fjár­mála­eft­ir­litið segir að hjá Íslenska hafi útvist­un­ar­stefnu skort á þeim tíma sem skoð­unin átti sér stað, auk þess sem við­bún­að­ar­um­gjörð til að bregð­ast við mögu­legum áföllum upp­lýs­inga­kerfa hafi ekki verið til staðar.

Þá seg­ist Fjár­mála­eft­ir­litið hafa gert athuga­semdir við það að fund­ar­gerðir sjóðs­ins voru ekki nægi­lega ítar­legar, auk þess sem grein­ing á hags­muna­á­rekstrum vegna rekstr­ar­fyr­ir­komu­lags sjóðs­ins hafi ekki verið til staðar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár