Vill hækka þakið á erlendum eignum lífeyrissjóða í 65 prósent í skrefum til 2036

Fjármála- og efna­hags­ráð­herra hefur birt frum­varp á vef Alþingis þar sem líf­eyr­is­sjóðum verður heim­ilt að auka eignir sínar erlendis upp í 65 pró­sent af heild­ar­eignum fyrir árið 2036. Sam­bæri­legt frum­varp var lagt fram í vor en ekki afgreitt.

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins.
Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Mynd: Eyþór Árnason

Líf­eyr­is­sjóðir lands­ins munu fá að auka hlut­fall eigna sinna utan Íslands um 1,5 pró­sentu­stig í fjögur ár frá 2024 verði nýtt frum­varp Bjarna Bene­dikts­sonar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, um rýmkun á heim­ildum þeirra að lögum.

[links]Eftir það mun heim­ild þeirra hækka um eitt pró­sentu­stig á ári þangað til að hún verður orðin 65 pró­sent árið 2036.

Líf­eyr­is­sjóð­irnir mega í dag verða með 50 pró­sent eigna sinna erlendis. Þegar drög að sam­bæri­legu frum­varpi var lagt fram í vor stóð til að hlut­fallið myndi hækka um eitt pró­sentu­stig á ári frá byrjun árs 2024 og til loka árs 2038.

Þetta þótti allt of hægur taktur að mati ýmissa líf­eyr­is­sjóða. Í umsögn Lands­sam­taka líf­eyr­is­sjóða um drögin kom fram að djúp­stæð óánægja væri meðal full­trúa þeirra sjóða sem væru þegar komnir nálægt núgild­andi þaki með hvers hægt ætti að rýmka heim­ild­irn­ar. Kallað var eftir því að hækka heim­ild­ina strax um næstu ára­­mót og hækka hana um tvö til þrjú pró­­sent­u­­stig á ári þangað til að 65 pró­­sent mark­inu yrði náð. Ef farið hefði verið að ítr­­ustu kröfum sjóð­anna myndi það tak­­mark nást í árs­­lok 2027 að óbreytt­u.

[adspot]Þegar frum­varpið var lagt fram í apríl síð­ast­liðnum hafði verið gerð sú breyt­ing á því að heim­ildin yrði hækkuð um 1,5 pró­sentu­stig á árunum 2024, 2025 og 2026 og yrði þannig 54,5 pró­sent í lok síð­asta árs­ins. Það frum­varp náði ekki í gegn fyrir þing­lok snemm­sum­ars en er nú lagt fram að nýju með sama upp­takti í rýmkun heim­ilda.

Í umsögn sem Lands­sam­taka líf­eyr­is­sjóða skil­aði um frum­varpið í maí síð­ast­liðnum kom fram að breyt­ing­arnar sem gerðar höfðu verið frá því að drögin voru birt í sam­ráðs­gátt stjórn­valda væru til bóta, en að afstaða sam­tak­anna hefði hins vegar ekk­ert breyst. Þau teldu áfram sem áður að ganga mætti hraðar í þessum efnum enda liggi fyrir að rýmkunin varði aðeins nokkra sjóði. Aðrir séu enn vel undir núgild­andi mörkum.

Nokkrir sjóðir komnir nálægt hámarki

Lengi hefur legið fyrir að það þurfi að hækka hámark á erlendum eignum líf­eyr­is­­sjóða þannig að íslenska líf­eyr­is­­sjóða­­kerfið geti dreift áhættu sinni bet­­ur. Kerfið er þegar orðið risa­­vax­ið, en eignir þess námu alls 6.655 millj­­örðum króna í lok ágúst. Erlendu eign­­irnar voru metnar á 2.257 millj­­­arða króna, sem þýðir að þær voru 34 pró­­­sent allra eigna sjóð­anna. Þær hafa tvö­­­fald­­­ast í krónum talið á rúmum þremur árum.

Í vor voru um tíu líf­eyr­is­­sjóðir komnir með hlut­­fall eigna sinna erlendis í um 35 pró­­sent af heild­­ar­­eignum eða meira. Þar af voru þrír sjóðir komnir með hlut­­fallið yfir 40 pró­­sent og einn, Líf­eyr­is­­sjóður verzlunarmanna, var kom­inn með það nálægt 45 pró­­sent. Sjóð­irnir þora illa að fara með hlut­­fallið hærra þar sem skynd­i­­leg breyt­ing á gengi krónu eða hækk­­­anir á ákveðnum bréfum geta ýtt þeim yfir lög­­­legt hámark.

Miklu fleiri eru að borga inn í sjóð­ina en að taka út úr þeim, og þeir því, undir venju­­legum kring­um­­stæð­um, alltaf að stækka að umfangi óháð því hvernig fjár­­­fest­ingar þeirra ganga.

[adspot]Til að mæta þess­ari stöðu er lagt til í frum­varp­inu sem kynnt var á föstu­dag sú breyt­ing að líf­eyr­is­sjóðir þurfi ekki að vera undir hámarki erlendra eigna á hverjum tíma heldur skuli þeir við kaup og sölu á eignum ganga úr skugga um að þeir séu innan leyfi­legra marka þannig að við­skiptin sem slík geri þá ekki brot­lega við hámarkið. Sveiflur í gengi eigna eða gjald­miðla eftir að við­skiptin hafa átt sér stað hafa því ekki áhrif á hvort þeir telj­ist upp­fylla skil­yrði lag­anna.

Líf­eyr­is­­sjóð­irnir voru bundnir í fjár­­­magns­höftum meira og minna frá haustinu 2008 og til 2017, þótt þeir hafi fengið und­an­þágur til að fara út með eitt­hvað fé. Eignir þeirra í dag eru næstum fimm þús­und millj­­örðum króna meira virði en þær voru síðla árs 2008. Á meðan að á hafta­­tíma­bil­inu stóð þurftu sjóð­irnir því að kaupa nán­­ast allt sem þeir gátu hér inn­­an­lands til að tryggja ávöxt­un. Fyrir vikið eiga þeir, beint og óbeint allt að helm­ing allra skráðra hluta­bréfa í land­inu og stóran hluta af útgefnum skulda­bréf­­um.

Vilja verja „stöð­ug­­leika“

Yfir­­lýst ástæða þess að fjár­­­mála- og efna­hags­ráð­herra vill fara var­­lega í að hleypa sjóð­unum út í fjár­­­fest­ing­­ar, og hækka hámarkið í var­­færnum skrefum yfir langt tíma­bil, er að stærri skref gætu ógnað stöð­ug­­leika gjald­eyr­is­­mark­aðar og greiðslu­­jöfnuð þjóð­­ar­­bús­ins. Því meiri af pen­ingum sem þarf að skipta úr íslenskum krónum yfir í erlenda gjald­miðla fyrir líf­eyr­is­­sjóð­ina því fleiri erlenda pen­inga þarf til að skipta í krónur svo það skap­ist ekki ójafn­­vægi sem veiki íslensku krón­una.

Sam­tök atvinn­u­lífs­ins voru á meðal þeirra sem skil­uðu umsögn um frum­varps­drögin í vor og studdu þar nálgun fjár­­­mála- og efna­hags­ráð­herra um að hækka þakið á erlendum fjár­­­fest­ingum líf­eyr­is­­sjóða var­­færn­is­­lega og yfir langt tíma­bil. Hlið­­ar­á­hrif af því verða enda þau að stærri hluti af fjár­­munum líf­eyr­is­­sjóða þarf að leita í íslenskt atvinn­u­líf eftir ávöxt­un.

Seðla­­banki Íslands gerði heldur ekki athuga­­semd í sinni umsögn um drögin við helstu atriði þeirrar leiðar sem ráð­herr­ann vill fara í mál­inu.

Tals­verð hætta á bólu­myndun

Það gerðu hins vegar, líkt og áður sagði, Lands­sam­tök líf­eyr­is­sjóða. Í umsögn þeirra sagði að full­­trúar þeirra sjóða sem væru næst hámarks­­hlut­­falli eigna erlendis teldu ein­fald­­lega að boðuð skref væru allt of var­­færin og ná yfir of langt tíma­bil. Afar brýnt væri að fara hraðar í breyt­ingar „með hags­muni sjóð­­fé­laga að leið­­ar­­ljósi“.

Í umsögn­inni sagði að ef „hömlur á fjár­­­fest­ingar í erlendum gjald­miðlum gera það að verkum að stórir sjóðir neyð­­ast til að fjár­­­festa í inn­­­lendum eignum umfram það sem þeir telja æski­­legt út frá hags­munum sinna sjóð­­fé­laga verður að sama skapi tals­verð hætta á ruðn­­ings­á­hrifum og bólu­­myndun á inn­­­lendum eigna­­mark­aði sem getur leitt til þess að inn­­­lend eigna­­söfn líf­eyr­is­­sjóða verði að ein­hverju leyti ósjálf­­bær til fram­­tíð­­ar­“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár