Lífeyrissjóðirnir vilja fara miklu hraðar út – Óttast annars bólumyndun innanlands

Frum­varps­drög fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra um að hækka þak á erlendar fjár­fest­ingar líf­eyr­is­sjóða hafa valdið djúp­stæðri óánægju á meðal stærri sjóða. Þeir telja að hækk­unin verði að ganga mun hraðar fyrir sig.

Bjarni Benediktsson er fjármála- og efnahagsráðherra. Hann kynnti drög að frumvarpi sem á að hækka þak á erlendra fjárfestingar lífeyrissjóða í hægum skrefum í samráðsgátt stjórnvalda fyrr í þessum mánuði.
Bjarni Bene­dikts­son er fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra. Hann kynnti drög að frum­varpi sem á að hækka þak á erlendra fjár­fest­ingar líf­eyr­is­sjóða í hægum skrefum í sam­ráðs­gátt stjórn­valda fyrr í þessum mán­uði. Mynd: Bára Huld Beck

Djúpstæð óánægja ríkir innan líf­eyr­is­sjóða­kerf­is­ins um það hversu hægt er stefnt að því að rýmka heim­ildir þeirra til að fjár­festa erlendis.

Eins og staðan er í dag hafa þeir heim­ild til að vera með 50 pró­sent eigna sinna erlendis en Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, kynnti nýverið drög að frum­varpi sem myndi hækka það hlut­fall um eitt pró­sentu­stig á ári frá byrjun árs 2024 og til loka 2038. Heim­ildin yrði þá 65 pró­sent í lok þess árs.

[links]Í umsögn Lands­sam­taka líf­eyr­is­sjóða um frum­varps­drögin segir að æski­legt sé að byrja að hækka heim­ild­ina strax um næstu ára­mót og hækka hana um tvö til þrjú pró­sentu­stig á ári þangað til að 65 pró­sent mark­inu yrði náð. Ef farið yrði að ítr­ustu kröfum sjóð­anna myndi það tak­mark nást í árs­lok 2027 að óbreyttu.

Full­trúar þeirra sjóða sem eru næst hámarks­hlut­falli eigna erlendis telja ein­fald­lega að boðuð skref séu allt of var­færin og ná yfir of langt tíma­bil. Afar brýnt sé að fara hraðar í breyt­ingar „með hags­muni sjóð­fé­laga að leið­ar­ljósi“.

Í umsögn­inni segir að ef „hömlur á fjár­fest­ingar í erlendum gjald­miðlum gera það að verkum að stórir sjóðir neyð­ast til að fjár­festa í inn­lendum eignum umfram það sem þeir telja æski­legt út frá hags­munum sinna sjóð­fé­laga verður að sama skapi tals­verð hætta á ruðn­ings­á­hrifum og bólu­myndun á inn­lendum eigna­mark­aði sem getur leitt til þess að inn­lend eigna­söfn líf­eyr­is­sjóða verði að ein­hverju leyti ósjálf­bær til fram­tíðar“.

Hafa neyðst til að kaupa eignir innanlands

Lengi hefur legið fyrir að það þurfi að hækka hámark á erlendum eignum líf­eyr­is­sjóða þannig að íslenska líf­eyr­is­sjóða­kerfið geti dreift áhættu sinni betur. Kerfið er þegar orðið risa­vaxið, en eignir þess námu alls 6.550 millj­örðum króna í jan­úar. Erlendu eign­irnar voru metnar á 2.244 millj­arða króna, sem þýðir að þær voru 34,3 pró­sent allra eigna sjóð­anna. Þær hafa tvö­fald­ast í krónum talið á rúmum þremur árum.

[adspot]Alls eru um tíu líf­eyr­is­sjóðir komnir með hlut­fall eigna sinna erlendis í um 35 pró­sent af heild­ar­eignum eða meira. Þar af eru þrír sjóðir komnir með hlut­fallið yfir 40 pró­sent og einn, Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna, er kom­inn með það nálægt 45 pró­sent. Sjóð­irnir þora illa að fara með hlut­fallið hærra þar sem skyndi­leg breyt­ing á gengi krónu eða hækk­anir á ákveðnum bréfum geta ýtt þeim yfir lög­legt hámark.

Miklu fleiri eru að borga inn í sjóð­ina en að taka út úr þeim, og þeir því, undir venju­legum kring­um­stæðum, alltaf að stækka að umfangi óháð því hvernig fjár­fest­ingar þeirra ganga.

Líf­eyr­is­sjóð­irnir voru bundnir í fjár­magns­höftum meira og minna frá haustinu 2008 og til 2017, þótt þeir hafi fengið und­an­þágur til að fara út með eitt­hvað fé. Eignir þeirra í dag eru næstum fimm þús­und millj­örðum króna meira virði en þær voru síðla árs 2008. Á meðan að á hafta­tíma­bil­inu stóð þurftu sjóð­irnir því að kaupa nán­ast allt sem þeir gátu hér inn­an­lands til að tryggja ávöxtun. Fyrir vikið eiga þeir, beint og óbeint allt að helm­ing allra skráðra hluta­bréfa í land­inu og stóran hluta af útgefnum skulda­bréfum.

Már skrifaði skýrslu

Við und­ir­bún­ing að gerð frum­varps­ins fékk fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra Má Guð­munds­son, fyrr­ver­andi seðla­banka­stjóra, til að greina við­mið og for­sendur við mat á heim­il­aðri gjald­mið­lá­hættu líf­eyr­is­sjóða í des­em­ber 2021. Már skil­aði skýrslu með grein­ingum sínum og til­lögum í febr­úar 2022.

Þar kemur fram að erlendar fjár­fest­ingar séu nauð­syn­legar til þess að sem mestur árangur náist af sjóð­söfnun til að létta líf­eyr­is­byrði starf­andi, draga úr álagi á inn­lenda fjár­mála­mark­aði og ruðn­ings­á­hrifum í þjóð­ar­bú­inu og stuðla að betri áhættu­dreif­ingu eigna. „Erlendar fjár­fest­ingar séu þó ekki síður áhættu­samar en inn­lendar og inn­lendar fjár­fest­ingar hafi jafn­framt sína kosti. Þar ber sér­stak­lega að nefna að þær geta leitt til fram­leiðni­aukn­ingar í innviðum, tækni og fram­leiðslu­tækjum sem styðja við iðgjalda­grunn­inn. Því sé best að eigna­safn líf­eyr­is­sjóða sé blanda inn­lendra og erlendra fjár­fest­inga.“

Vilja verja „stöðugleika“

Yfirlýst ástæða þess að fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra vill fara var­lega í að hleypa sjóð­unum út í fjár­fest­ingar, og hækka hámarkið í var­færnum skrefum yfir langt tíma­bil, er að stærri skref gætu ógnað stöð­ug­leika gjald­eyr­is­mark­aðar og greiðslu­jöfnuð þjóð­ar­bús­ins. Því meiri af pen­ingum sem þarf að skipta úr íslenskum krónum yfir í erlenda gjald­miðla fyrir líf­eyr­is­sjóð­ina því fleiri erlenda pen­inga þarf til að skipta í krónur svo það skap­ist ekki ójafn­vægi sem veiki íslensku krón­una. Líkt og segir í grein­ar­gerð með frum­varps­drög­unum þá á mark­mið þrepa­skiptrar lækk­unar að vera „að nýta svig­rúm greiðslu­jöfn­uðar fyrir erlendar fjár­fest­ingar líf­eyr­is­sjóða án þess að stefna stöð­ug­leika í hættu“.

Samtök atvinnu­lífs­ins eru á meðal ann­arra sem skil­uðu umsögn um frum­varps­drögin og styðja þar nálgun fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra um að hækka þakið á erlendum fjár­fest­ingum líf­eyr­is­sjóða var­færn­is­lega og yfir langt tíma­bil. Hlið­ar­á­hrif af því verða enda þau að stærri hluti af fjár­munum líf­eyr­is­sjóða þarf að leita í íslenskt atvinnu­líf eftir ávöxtun.

Seðla­banki Íslands gerir heldur ekki athuga­semd í sinni umsögn við helstu atriði þeirrar leiðar sem ráð­herr­ann vill fara í mál­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár