Stefnt að því að rýmka heimildir lífeyrissjóða til að fjárfesta erlendis upp í 65 prósent

Fjármála- og efna­hags­ráðu­neytið hefur birt drög að frum­varpi sem hækkar þakið á heim­ild líf­eyr­is­sjóða til að fjár­festa erlendis um eitt pró­sentu­stig á ári frá árinu 2024 til 2038.

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra.
Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Drög að frum­varpi sem rýmkar veru­lega heim­ildir líf­eyr­is­sjóða til að fjár­festa erlendis hefur verið birt í sam­ráðs­gátt stjórn­valda. Þar er lagt til að heim­ild líf­eyr­is­sjóða til að fjár­festa í erlendum gjald­miðlum verði færð úr 50 í 65 pró­sent í fimmtán jafn stórum skrefum frá árinu 2024 til 2038.

Í lok jan­úar síð­ast­lið­ins átti íslenska líf­eyr­is­sjóða­kerfið erlendar eignir sem metnar voru á 2.244 millj­arða króna. Þær voru 34,3 pró­sent allra eigna sjóð­anna og hafa tvö­fald­ast í krónum talið á rúmum þremur árum.

Líf­eyr­is­sjóðir lands­ins hafa þrýst mjög á að heim­ild­irnar verði hækk­aðar þar sem margir sjóðir eru komnir ansi nálægt hámarks­hlut­fall­inu nú þegar. Viðbúnar sveiflur á gengi íslensku krón­unnar gera það að verkum að sjóðir geta tæp­lega farið mikið yfir 45 pró­sent hverju sinni.

[adspot]Í erindi sem Agni Ásgeirs­son, for­maður áhættu­nefndar Lands­sam­taka líf­eyr­is­sjóða, hélt á stefnu­mót­un­ar­fundi sam­tak­anna 6. sept­em­ber í fyrra kom fram að hlut­fall erlendra fjár­fest­inga flestra íslenskra líf­eyr­is­sjóða væri komið yfir 35 pró­sent og mest í 43 pró­sent. Sumir sjóðir gætu því lítið hreyft sig sem stendur utan land­stein­ana.

Í erindi Agna var því velt upp hvort það ætti yfir­höfuð að hafa til­tekið hámark á erlendum eignum íslenskra líf­eyr­is­sjóða. Í mörgum grann­ríkjum sé ekki kveðið á um neitt hámark á erlendum eignum líf­eyr­is­sjóða, til dæmis í Danmörku, Noregi, Belgíu, Írlandi og Hollandi.

Komið í veg fyrir að gengisþróun þrýsti sjóðum í að selja

Í frum­varps­drög­unum sem birt voru í sam­ráðs­gátt­inni í dag er einnig lagt til að líf­eyr­is­sjóðir þurfi að lág­marki að eiga eignir í sama gjald­miðli og væntar líf­eyr­is­greiðslur þeirra til næstu þriggja ára.

Auk þess er þar að finna til­lögu um að hámark gjald­eyr­is­á­hættu verði ein­göngu bind­andi á við­skipta­degi fjár­fest­ingar. Það hefur í för með sér að ef geng­is­þróun eða verð­þróun á mörk­uðum leiðir til þess að erlendar eignir líf­eyr­is­sjóða fara umfram hámarkið verður sjóðum ekki gert að selja eignir til þess að kom­ast niður fyrir hámarkið líkt og nú er. Það hefur í för með sér að ef geng­is­þróun eða verð­þróun á mörk­uðum leiðir til þess að erlendar eignir líf­eyr­is­sjóða fara umfram hámarkið verður sjóðum ekki gert að selja eignir til þess að kom­ast niður fyrir hámarkið líkt og nú er.

Í frum­varp­inu er líka að finna til­lögu sem varðar afleiðu­við­skipti líf­eyr­is­sjóða sem eiga að auka mögu­leika þeirra til að nýta afleiður til gjald­eyr­is­varna.

Að lokum er þar lögð til sú meg­in­regla að líf­eyr­is­sjóðir birti sjóð­fé­lögum yfir­lit og upp­lýs­ingar með raf­rænum hætti á vef­svæði sem krefst raf­rænnar auð­kenn­ingar sjóð­fé­laga. Sjóð­fé­lagar geti þó áfram óskað eftir því að fá send gögn og upp­lýs­ingar þeim að kostn­að­ar­lausu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár