Í fyrsta skipti mun heimskautarefurinn, eina landspendýrið í íslensku dýraríki sem kom sjálft til landsins, skipa sæti á válista spendýra og mun flokkast sem tegund í nokkurri hættu. Náttúrufræðistofnun Íslands vinnur nú að uppfærðum válista sem von er á í vetur. Fyrri listinn kom út árið 2018.
Fjörutíu prósenta fækkun hefur orðið á stofni heimskautarefsins á Íslandi yfir síðustu þrjár kynslóðir. „Þessi mikla fækkun kom okkur á óvart enda vorum við heillengi að samþykkja þetta sjálf og módelin voru keyrð aftur og aftur,“ segir Ester Rut Unnsteinsdóttir, fagstjóri spendýravistfræði hjá Náttúrufræðistofnun. Sem stendur er ekki vitað hvað hefur valdið fækkuninni sem Ester segir óþægilegt. „Ef við vissum ástæðuna þá gætum við brugðist við.“
„Við eigum þennan ref, sem er alveg einstakt
Stofnmati Náttúrufræðistofnunar var breytt við gerð þess í ár …
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.













































Þegar minkar voru fluttir hingað til lands á sínum tíma, þá var þeim sleppt þar sem bændur uppgötvuðu að þeir hefðu keypt köttinn í sekknum og minkategundin var með öllu verðmætalaus. Einhver prangarinn hafði talið bændum trú um að þetta væru eftirsótt tegund sem gæfu af sér mikil verðmæti.
Mjög miður sín slepptu bændurninr minkunum og töldu að þeir gætu ekki lifað af hinn langa og erfiða vetur. En það tókst minkunum og náðu að dreifa sér um allt land nema þar sem refir voru fyrir eins og á Hornströndum þar sem refir sjá um að halda þeim minkalausum.
Þegar ljóst var að minkar áttu auðvelt með að lifa af langa islenska veturinn þá hefði verið skynsamlegt að hætta refaveiðum. Þær héldu áfram og það verður að teljast mikið óráð. Ljóst er að bæði minkar og refir eru veiðidýr og lifa af bæði fuglum og ýmsum hræjum af dýrum sem þeir ýmist veiða sjálf eða finna í náttúrunni. Fyrir veiðimenn eru refir auðveldari skotmörk enda eru þeir töluvert stærri en fummvaxnir minkar.
Nú er spurning hvort refir verði ekki friðaðir jafnframt að vera settir á válista?