Minni hlutabréf og meiri húsnæðislán

Virði hluta­bréfa í eigu íslensku líf­eyr­is­sjóð­anna dróst mikið saman í nóv­em­ber, á meðan þeir juku við sig í skulda­bréfum. Ásókn í hús­næð­is­lán hjá sjóð­unum jókst sömu­leiðis í mán­uð­inum, í fyrsta skipti frá því í maí 2020.

Alls dróst heild­ar­virði hluta­bréfa líf­eyr­is­sjóð­anna um 75 millj­arða króna í nóv­em­ber. Á sama jókst hlut­deild þeirra í inn­lendum og erlendum skulda­bréfum um 36 millj­arða króna, auk þess sem útlán þeirra til heim­ila juk­ust um 7,6 millj­arða króna. Þetta kemur fram í nýjum tölum Seðla­bank­ans um stöðu líf­eyr­is­sjóð­anna.

Ásókn í óverðtryggð húsnæðislán

Líkt og Kjarninn hefur áður fjallað um buðu Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna, Gildi og Brú upp á óverð­tryggð hús­næð­is­lán í nóv­em­ber á svip­uðum kjörum og buð­ust hjá við­skipta­bönk­unum. Saman eiga þeir rúm­lega helm­ing af allri hreinni eign íslenska líf­eyr­is­sjóða­kerf­is­ins.

Líkt og mán­uð­ina á undan minnk­aði áhug­inn á verð­tryggðum hús­næð­is­lánum líf­eyr­is­sjóð­anna, þar sem ný lán voru 2,2 millj­örðum krónum minni en upp­greiðslur á gömlum lánum. Á sama tíma jókst hins vegar áhug­inn á óverð­tryggðum útlánum, þar sem ný lán voru 3,7 millj­örðum meiri en upp­greiðslur gam­alla lána.

Nóvember var fyrsti mán­uð­ur­inn þar sem heild­ar­virði nýrra lána var meira en upp­greiðslur frá því í maí árið 2020, en þá stórjókst ásókn í hús­næð­is­lán hjá bönk­unum í kjöl­far vaxta­lækk­ana Seðla­bank­ans.

Úr hlutabréfum í skuldabréf

Stærstu breyt­ing­arnar í eignum líf­eyr­is­sjóð­anna á milli mán­aða var hins vegar í hluta­bréfa- og skulda­bréfa­safni þeirra. Virði inn­lendra hluta­bréfa í eigu sjóð­anna dróst saman 4 pró­sent, eða um 43 millj­arða króna í nóv­em­ber. Þennan sam­drátt má rekja til sveiflna í hluta­bréfa­verði, en úrvals­vísi­tala Kaup­hall­ar­innar dróst saman um 4 pró­sent á sama tíma.

Erlend hluta­bréfa­eign dróst hins vegar ein­ungis saman um eitt pró­sent, eða um 31 millj­arð króna, á sama tíma. Lækkunin er þó svipuð ef tekið er til­lit til krón­unnar, sem styrkt­ist um tæp tvö pró­sent í mán­uð­inum.

Líf­eyr­is­sjóð­irnir högn­uð­ust þó á því að ávöxtun skulda­bréfa jókst sam­hliða lægra verði á hluta­bréfum, en skulda­bréfa­vísi­tala Kaup­hall­ar­innar hækk­aði um tæpt pró­sent í mán­uð­inum. Virði inn­lendrar skulda­bréfa­eignar sjóð­anna hækk­aði hins vegar um 1,5 pró­sent, eða um 34 millj­arða króna. Einnig jókst erlend skulda­bréfa­eign sjóð­anna um rúman millj­arð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár