Mesti samdráttur hjá lífeyrissjóðunum frá hruni

Eignir líf­eyr­is­sjóð­anna dróg­ust saman um 184 millj­arða króna í byrjun árs­ins og hafa þær ekki minnkað jafn­mikið síðan í októ­ber 2008. Rýrn­un­ina má rekja til styrk­ingar á gengi krón­unnar og mót­vinda á hluta­bréfa­mörk­uðum hér­lendis og erlendis.

Þrír stærstu lífeyrissjóðir Íslands, Lífeyrissjóður verzlunarmanna, Gildi og Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins.
Þrír stærstu líf­eyr­is­sjóðir Íslands, Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna, Gildi og Líf­eyr­is­sjóður starfs­manna rík­is­ins. Mynd: Samsett mynd

Heild­ar­eignir íslenskra líf­eyr­is­sjóða rýrn­uðu um 184 millj­arða króna í jan­úar. Þetta er í fyrsta skiptið sem eignir líf­eyr­is­sjóð­anna hafa rýrnað síðan í byrjun far­ald­urs­ins og lang­mesta rýrn­unin á milli mán­aða síðan í fjár­mála­hrun­inu árið 2008. Þetta kemur fram í nýbirtum hag­tölum frá Seðla­banka Íslands.

Erlendar eignir aldrei rýrnað jafnmikið

Lang­mesta virð­is­rýrn­unin var í erlendum eignum, en þær dróg­ust saman um 166 millj­arða króna á tíma­bil­inu, eða um sjö pró­sent. Hluta þess­arar rýrn­unar má rekja til lækk­andi hluta­bréfa­verðs á alþjóða­mörk­uðum, en S&P 500 hluta­bréfa­vísi­talan lækk­aði um fimm pró­sent á tíma­bil­inu.

Á sama tíma styrkt­ist gengi krón­unnar um rúm tvö pró­sent gagn­vart helstu við­skipta­myntum hennar, sem leiðir til þess að erlendar eignir lækka í virði í krónum talið.

Erlendar eignir líf­eyr­is­sjóð­anna hafa aldrei dreg­ist jafn­mikið saman í einum mán­uði í krónum talið síðan Seðla­bank­inn byrj­aði að mæla þær í árs­byrjun 1997. Næst­mesta rýrn­unin var í árs­lok 2018, en þá dróg­ust erlendar eignir saman um tæpa 90 millj­arða króna. Þó hafa erlendu eign­irnar áður rýrnað meira í pró­sentum talið, til að mynda dróg­ust þær saman um 13 pró­sent í októ­ber 2008.

Hlutabréf lækka en iðgjaldakröfur aukast

Virð­is­rýrnun inn­lendra eigna nam 17 millj­örðum króna og var hún innan við 0,4 pró­sent. Hana má alfarið rekja til minni hluta­bréfa­eignar, en virði þeirra dróst saman um 38 millj­arða, eða um þrjú pró­sent. Hér hefur lægra hluta­bréfa­verð einnig haft áhrif á eigna­safnið, en úrvals­vísi­tala Kaup­hall­ar­innar lækk­aði um fimm pró­sent í mán­uð­inum.

Á sama tíma jókst útlána­safn sjóð­anna um rúma tvo millj­arða króna, en skulda­bréfa­eign þeirra jókst um svip­aða upp­hæð. Mest var þó aukn­ingin í iðgjalda­kröfum sjóð­anna, en þær juk­ust um 13 millj­arða, sem nemur um 60 pró­sentum á milli mán­aða.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár