Trump hótar þeim sem nota hugtakið gervigreind

Donald Trump stimplar þá sem óvini sem halda áfram að nota hug­takið gervi­greind en ekki „ofur­greind“, líkt og hann vill að sé notað.

Trump hótar þeim sem nota hugtakið gervigreind
Á fundi for­stjór­anna Donald Trump, for­seti Banda­ríkj­anna, á fundi með stjórn­endum fyr­ir­tækja sem leiða þróun gervi­greindar í Hvíta húss­ins í Washington nú í haust. Fund­ur­inn var hald­inn skömmu eftir að tækni­fyr­ir­tækið OpenAI hætti við útgáfu nýjasta gervi­greind­ar­lík­ans síns vegna örygg­is­á­hyggna og í kjöl­far fjölda upp­ljóstrana um að gervi­greind­ar­kerfi hefðu farið að hegða sér með ófyr­ir­séðum hætti og farið út fyrir þau mörk sem þeim voru sett. Mynd: AFP

Donald Trump Banda­ríkja­for­seti vill að hug­takið „ofur­greind“ leysi „gervi­greind“ af hólmi og segir þá sem ekki fara að vilja hans telj­ast óvini. Þeir sem virðu ekki vilja hans verði álitnir óvinir. Hann til­greindi þó ekki hvaða afleið­ingar það kynni að hafa.

„Hvíta húsið lítur á alla sem nota hug­takið ‚gervi­greind‘ í stað hins nýja, mun við­ur­kennd­ara og nákvæmara hug­taks ‚ofur­greind‘ sem ÓVINI!“ skrif­aði Trump á sam­fé­lags­miðli sínum, Truth Social.

Trump nefndi fyr­ir­hug­aða nafn­breyt­ingu í ræðu sinni á alls­herj­ar­þingi Sam­ein­uðu þjóð­anna í síð­asta mán­uði og sagði nýja hug­takið „hljóma miklu betur“.

Í lok sept­em­ber und­ir­rit­aði Trump síðan for­seta­til­skipun um að hug­takið „ofur­greind“ skyldi notað í allri starf­semi banda­rískra alrík­is­stofn­ana. Sama skylda nær ekki til einka­fyr­ir­tækja, en sum þeirra hafa þegar tekið hug­takið upp, þar á meðal Meta, fyr­ir­tæki Marks Zuckerbergs. Elon Musk, banda­maður Trumps, notar einnig hug­takið „ofur­greind“ í færslum sínum á sam­fé­lags­miðl­inum X.

„Hvíta húsið …
Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár