Sagan af „smurningum“ Íslendinga í Nígeríu í ljósi Namibíumáls Samherja

Sagan um skreið­ar­við­skipti Íslands í Nígeríu kann að eiga þátt í skoð­unum sumra útgerð­ar­manna á Íslandi á Namib­íu­mál­inu þar sem mútur og hvers kyns sporslur tíðk­ist víða í löndum Afríku. Ólafur Björns­son hjá sam­lagi skreið­ar­fram­leið­enda tal­aði fjálg­lega um mútur og „smurn­ingar“ í bók sinni um við­skipti Íslend­inga með skreið til Nígeríu. Íslenskir útgerð­ar­menn, eins og Gunnar Tómasson, vísa til skreið­ar­við­skipt­anna sem ákveð­inni hlið­stæðu Namib­íu­máls Samherja þegar þeir eru spurðir um mat sitt á þessu máli.

Sagan af „smurningum“ Íslendinga í Nígeríu í ljósi Namibíumáls Samherja
Fjörleg frá­sögn um skraut­leg Níger­íu­við­skipti Bók Ólafs Björns­sonar er fjör­leg frá­sögn um skraut­leg og á kölfum rugl­kennd við­skipti Íslend­inga með skreið til Nígeríu á níunda ára­tugnum og í byrjun þess tíunda.

Heim­ildir eru um mútu­greiðslur íslenskra útgerð­ar­manna í Afríku á 9. ára­tugnum, sem stór­út­gerð­ar­menn vísa til í dag þegar rætt er um mútu­greiðslur Samherja í Namibíu.

Ein heim­ild­anna er frá­sögn Ólafs Björns­sonar, fyrr­ver­andi for­manns Samlags skreið­ar­fram­leið­enda á Íslandi, um við­skipti sam­lags­ins við þáver­andi iðn­aðar- og við­skipta­ráð­herra Nígeríu, Mahmud Tukur, árið 1984.

„Hann sagði að á síð­ustu stundu hefði Turkur [sic] við­skipta­ráð­herra neitað að skrifa undir nema hann fengi 2,5% í sinn vasa. Þótt ekki væri það okkur ljúft þorðum við ekki annað en að sam­þykkja það og skrif­uðum undir yfir­lýs­ingu um að jafn­harðan og að greiðslur bær­ust yrðu lögð inn á reikn­ing sem Turkur gæfi upp 2,5%,“ skrif­aði hann.

Ólafur var útgerð­ar­maður og bæj­ar­full­trúi fyrir Alþýðu­flokk­inn í Keflavík sem tók að sér störf fyrir Lands­sam­tök skreið­ar­fram­leið­enda. Hann var fæddur árið 1924 og lést 91 árs gam­all árið 2015.  Ólafur var for­maður skreið­ar­sam­lags­ins á árunum 1983 til 1992 þegar íslensk skreið var aðal­lega seld til Nígeríu og skrif­aði hann um þetta bók­ina Skreiðaran­nál: Reyfara­kennda sögu um sam­skipti Íslend­inga og Níger­íu­manna í skreið­ar­við­skiptum þess­ara þjóða sem kom út árið 1994. Bókin er sann­ar­lega „reyfara­kennd“ þar sem Ólafur lýsir þeim skraut­legu, erf­iðu og ótraustu við­skiptum sem hann og skreið­ar­sam­lagið reyndu að stunda í Nígeríu á þessu árum. 

Nokkrum sinnum talar Ólafur, eða Óli Björns eins og hann var kall­aður af þeim sem hann þekktu, um „smurn­ingar“ eða að „smyrja“ þegar hann talar um hvernig hafi verið gerðar kröfur um að liðka fyrir við­skiptum með greiðslum undir borðið eða til milli­liða.

Bað um 2,5 pró­sent undir borðiðÓlafur Björns­son lýsir því í bók sinni hvernig Mahmud Tukur, við­skipta­ráð­herra Nígeríu, bað um 2,5 pró­senta greiðslu undir borðið fyrir að kaupa skreið frá Íslandi.

Önnur elsta útflutningsvara Íslands

Á þessum árum var skreiðin frá Íslandi, aðal­lega þurrk­aður þorskur en einnig keila meðal ann­ars, afar mik­il­vægur hluti af útflutn­ingi Íslend­inga og var meðal ann­ars þriðja stærsta útflutn­ings­vara lands­ins sam­kvæmt því sem Ólafur segir í bók­inni. Vegna þessa mikla útflutn­ings til Nígeríu var landið yfir­leitt á milli þriggja og fjög­urra helstu útflutn­ings­landa Íslands á níunda ára­tugnum. Á Alþingi á þessum árum var meðal ann­ars talað um það að Ísland kæmi sér upp sér­stöku sendi­ráði í höf­uð­borg­inni Lagos vegna umfangs þess­ara við­skipta. 

Segja má með sanni að skreið sé önnur elsta útflutn­ings­vara Íslands þar sem þessi afurð hefur verið flutt út frá Íslandi frá því á 14. öld. Fram eftir öldum var skreiðin helsta und­ir­staðan í útflutn­ings­verslun lands­ins, ásamt vað­máli. Sú aðferð að loft­þurrka fisk eykur geymslu­þol mikið og var því hægt að flytja fisk­inn út fyrir vikið án þess að hann skemmd­ist. Síðustu ára­tug­ina hefur Nígería verið nær eini útflutn­ings­staður íslensku skreið­ar­innar. 

Við­skipti Íslands við Nígeríu eru enn þá mik­il­væg í útflutn­ingi lands­ins en landið hefur verið í topp tíu yfir helstu útflutn­ings­lönd sjáv­ar­af­urða á Íslandi í gegnum árin, meðal ann­ars í 9. sæti árið 2016. Útflutn­ingur á hertum fiski til Nígeríu hefur verið frá tæp­lega 10 þús­und tonnum og upp í rúm­lega 40 þús­und tonn á ári síð­ast­liðin 20 ár. Samkvæmt síð­ustu stað­festu tölum Hagstofu Íslands nam útflutn­ing­ur­inn til Nígeríu rúm­lega 20 þús­und tonnum árið 2019. 

Umfang skreiö­arsölu til NígeríuTaflan sýnir umfang skreið­ar­sölu frá Íslandi til Nígeríu síð­ast­liðin 20 ár.

Hálfopinber viðskipti 

Eitt af því sem vekur athygli við bók Ólafs Björns­sonar eru að þau við­skipti sem þar er lýst að farið hafi fram í gegnum skreið­ar­sam­lagið, þar sem meðal ann­ars samið var um að greiðslur til ráð­herra undir borðið vegna til­tek­inna samn­inga, voru hálf­op­in­ber. Þau voru hálf­op­in­ber í þeim skiln­ingi að sam­vinna sam­lags­ins við opin­bera aðila á Íslandi, eins og utan­rík­is­ráðu­neytið, sendi­herra, rík­is­bank­ann Lands­bank­ann, Seðla­banka Íslands og fleiri opin­bera aðila, voru mjög mikil á þessum tíma. 

Ekki er tekið beint fram að til­teknir nafn­tog­aðir aðilar hafi verið viðriðnir eða haft vit­neskju um þau skipti þar sem til­greint er að samið hafi verið sér­stak­lega við ein­hverja stjórn­mála­menn vegna til­tek­inna við­skipta um kaup á skreið. Hins vegar er að finna í bók­inni efn­is­greinar eins og þessa hérna þar sem verið er að lýsa því að íslensk rík­is­fyr­ir­tæki hafi verið höfð með í ráðum varð­andi greiðslur undir borðið í ein­staka við­skiptum. Í eft­ir­far­andi efn­is­grein eru bæði Lands­banki Íslands, sem þá var í meiri­hluta­eigu íslenska rík­is­ins, og sendi­ráð Íslands í London með í ráðum um ætl­aða greiðslu til ótil­greindra aðila. 

Orðrétt segir: „22. mars hringdi Felix Kalu í Ragnar og til­kynnti að fyrsta ábyrgðin upp á 11 til 12 millj­ónir doll­ara væri til­búin. Við yrðum að hafa til taks USD tvær millj. fyrir sína menn. Við fórum allir saman í Lands­bank­ann til þess að ræða málið. Nið­ur­staðan varð sú að við fengum tvær ávís­anir upp á USD eina milljón hvora. Tekin voru ljós­rit af þeim til þess að láta Felix hafa. Sjálfar ávís­an­irnar voru settar í umslag sem átti að fá geymt í sendi­ráð­inu í London. Það átti ekki að afhenda umslagið nema sam­kvæmt óyggj­andi fyr­ir­mælum frá okkur.“ 

Þarna var því um að ræða skipu­lagn­ingu á ætl­uðum greiðslum til milli­liða upp á tvær millj­ónir doll­ara sem allir hlut­að­eig­andi aðilar voru sam­mála um að það þyrfti að greiða til að verða myndi af samn­ingi um sölu á íslenskri skreið til Nígeríu. Þarna virð­ast því tveir opin­berar aðilar á Íslandi hafa verið með í ráðum um að greiða þyrfti fjár­muni til milli­liða í Nígeríu til að verða mætti af til­teknum við­skiptum.

Skreið er ein elsta útflutn­ings­vara ÍslandsSkreið hefur verið flutt út frá Íslandi frá því á 14. öld og er enn þá flutt úr landi í nokkuð stórum stíl, nær ein­göngu til Nígeríu.

Opinber heimsókn frá Nígeríu

Í annarri sögu er þessi sami Felix – Felix Kalu hét hann – að taka við 300 þús­und doll­ara ávísun frá Lands­banka Íslands árið 1984 sem þóknun til að tryggja það að við­skipta­ráðu­neytið í Nígeríu skrifi undir samn­ing um kaup á skreið af Íslend­ingnum. Ólafur segir svo frá því að hann hafi kraf­ist þess að Felix skrif­aði undir yfir­lýs­ingu um að hann myndi skila pen­ing­unum ef honum tæk­ist ekki að tryggja und­ir­skrift samn­ings­ins en að nokkuð hafi verið deilt um þetta. Einn fund­ar­manna sagði sem svo að í slíkum „bransa“ væri ekki til siðs að kvitta fyrir hlut­unum. „12. júlí kom Felix til Íslands og dag­inn eftir fór allt liðið með hann í Lands­bank­ann. Þar tóku á móti okkur allir aðal­banka­stjór­arnir ásamt Barða Árnasyni. Þegar Felix var búinn að fá ávís­un­ina spurði ég hvort hann ætti ekki að kvitta fyrir henni. Þeir Bjarni og Ragnar hlógu að því og sögðu að í svona „bransa“ væri ekki til siðs að kvitta. Ég krafð­ist þess að Felix kvitt­aði fyrir og skrif­aði jafn­framt undir að upp­hæðin yrði end­ur­greidd ef samn­ingar klár­uð­ust ekki á næst­unni. Um þetta varð tals­vert þjark. Þeir Bjarni og Ragnar fóru, sögðu þetta tóma vit­leysu. En ég lét mig ekki og mót­mælti að Felix færi út nema að kvitta fyrst. Hannes studdi mig og á end­anum útbjóa Barði kvittun eins og ég vildi hafa hana og Felix skrif­aði undir fyrir hönd Ikenze, en ávís­unin var stíluð á hann.“

Sama ár, 1984, í ágúst kom sendi­nefnd frá Nígeríu til Íslands í opin­bera heim­sókn og voru með­limir hennar leiddir á milli íslenskra ráð­herra, eins og Ólafur segir, auk þess sem farið var með nefnd­ina í heim­sókn í Versl­un­ar­ráð og Haf­rann­sókna­stofnun. Með þess­ari heim­sókn áttu skreið­ar­vanda­málin á milli Íslands og Nígeríu að vera úr sög­unni.

En í aðdrag­anda þeirrar samn­ings­gerðar á milli yfir­valda í Nígeríu og skreið­ar­sam­lags­ins sem leiddu til opin­beru heim­sókn­ar­innar höfðu að minnsta kosti verið gerðir tveir samn­ingar þar sem níger­ískir aðilar, einn við­skipta­ráð­herra og svo Felix Kalu, fengu greitt per­sónu­lega fyrir aðkomu sína að samn­ingnnum um skreið­ar­söl­una.

Samherji selur til NigeríuÞor­steinn Már Bald­vins­son hefur rætt opin­ber­lega um mik­il­vægi Níger­íu­mark­aðar fyrir Ísland en Samherji selur skreið og hausa til Nigeríu.

Þorbjörn, Vísir og Samherji meðal skreiðarútflytjenda

Ísland flytur enn þá út tals­vert af skreið til landa í Afríku, meðal ann­ars útgerð­ar­ris­inn Samherji og einnig fyr­ir­tæki eins og Haustak á Reykja­nesi, sem er í eigu útgerð­anna Þor­bjarnar og Vísis í Grinda­vík. Um 20 þurrrk­un­ar­verk­smiðjur eru á Íslandi og starfa alls í þeim um 350 manns í heild­ina. 

Einn af verk­stjórum Haustaks, Pálmi Krist­manns­son, hefur meðal ann­ars lýst því með eft­ir­far­andi orðum hversu brokk­geng við­skiptin geta verið. „Það hafa alltaf verið skin og skúrir á þessum mark­aði. Það hafa dottið niður sölur, sér­stak­lega þegar eru stjórn­ar­skipti í Nígeríu. Þá eru oft miklar vær­ingar og ný stjórn að koma sér fyrir og skipu­leggja hluti upp á nýtt. Þá hefur orðið tregða en það hefur aldrei verið til lang­frama,“ sagði hann í við­tali við RÚV árið 2015.  Haustak er stærsta þurrk­un­ar­fyr­ir­tæki Íslands. 

Útgerð­ar­ris­inn Samherji getur sömu­leiðis fram­leitt 15 þús­und tonn af skreið á ári í verk­smiðjum sínum á Dalvík og á Laugum. Þetta er eignir sem voru hluti af þeim sem Samherji keypti af útgerð­inni árið 2011 þegar Samherji eign­að­ist Útgerð­ar­fé­lag Akur­eyr­inga. 

Samherji seldi hluta af skreið­ar­fram­leiðslu sinni til Afríku í gegnum eign­ar­halds­fé­lag sitt á Kýpur, eins og Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja, ræddi um í við­tali við Stundina árið 2019. Árið 2014 seldi Samherji skreið til Afríku. „Árið 2013 byrjum við að flytja út þurrk­aðar afurðir til Afríku og gerum það undir vöru­merki Kötlu Seafood sem var eign Esju Seafood. Þegar við seljum útgerð­ina í Afríku gerðum við sam­komu­lag við kaup­and­ann um að fá að nota vöru­merkið Katla Seafood í eitt ár þar á eftir. Við not­uðum það til seinni parts 2014 og eftir það átti salan sér stað frá Icefresh á Íslandi,“ sagði Þor­steinn þegar hann var spurður að því af hverju Samherji hefði selt íslenska skreið til Afríku í gegnum Kýpur.

Frá kampavíni til lágra og hárra peningagreiðslna

Í bók sinni um skreið­ar­við­skipti Íslands við Nígeríu á níunda ára­tug síð­ustu aldar lýsir Ólafur Björns­son fjöl­mörgum dæmum um það hvernig liðkað var til fyrir við­skiptum í Nígeríu með greiðslum til milli­liða, eða jafn­vel ráð­herra eins og hér að ofan, og hvernig því sem hann kallar „smurn­ingum“ var ítrekað beitt til að opna dyr og til af við­skiptum mætti verða. Sögurnar sem Ólafur segir ná allt frá samn­ingi um greiðslur til ráð­herra eins og Mahmud Tukurs til sporslna eins og einnar kampa­víns­flösku til að kom­ast í gegnum toll­inn á flug­vell­inum í Lagos, höf­uð­borgar Nígeríu, í fyrstu heim­sókn sinni til lands­ins. Alltaf, sam­kvæmt frá­sögnum Ólafs, var verið að reyna að fá útlend­ing­ana til að láta eitt­hvað af hendi rakna; það þurfti að „smyrja“ eins og Ólafur segir á einum stað. 

Þessari kampa­víns­sögu lýsir Ólafur svo, með gam­an­sömum hætti: „Fyrsta ferð mín til þessa furðu­lands varð um margt reynslu- og lær­dóms­rík. Það fyrsta sem við tók var hita­stækja og löng bið­röð. Heima­menn rudd­ust fram fyrir okkur. Þegar loks­ins kom að mér var úrskurðað að of stutt væri liðið frá því ég fékk sprautu við gulu­sótt. Ég var leiddur afsíðis. Þeir sögð­ust lík­lega þurfa að senda mig heim með sömu vél. Engar nirur (svo heitir gjald­mið­ill­inn þeirra) hafði ég og strang­lega hafði ég verið var­aður við að flíka öðrum pen­ingum. Eftir nokk­urt þjark hug­kvæmd­ist mér að rétta þeim kampa­víns­flösku, sem ætluð var í gjöf til höfð­ingja. Þetta þótti þeim svo rausn­ar­legt að þeir sáu um að ég komst klakk­laust í gegnum það sem eftir var í flug­stöð­inni.“

Í annarri sögu greinir Ólafur frá því hvernig hann þurfti að múta þjóni á hót­eli í Lagos tví­vegis til að fá hann til að hleypa sér inn á her­bergi íslensks manns, Bjarna Magn­ús­sonar, sem hafði verið hand­tek­inn af Interpol vegna meintra ólög­legra við­skipta. Ólafur þurfti að ná í vega­bréf manns­ins til að freista þess að leysa hann úr fang­elsi:  „Miðað við þær sögur sem ég hafði heyrt um vist­ina í fang­elsum í Nígeríu vildi ég ekki gef­ast upp við svo búið. Ég bað George að lána mér bíl­inn sinn, að sjálf­sögðu með bíl­stjóra. Við gátum ekki kom­ist í síma þarna. Ég fór á Eko hotel. Þar var ég vel kunn­ugur og vissi her­berg­is­númer Bjarna. Þegar ég var búinn að þamba nægju mína mút­aði ég þjóni sem ég þekkti til þess að hleypa mér inn á her­bergið. Áður en við fórum vék ég ein­hverju að síma­stelp­unum.“ Á meðan, segir Ólafur, var Bjarni að „smyrja“ starfs­menn Interpol til að losna úr fang­els­inu. 

Í annarri sögu verður Ólafur Björns­son fyrir lík­ams­árás frá milli­lið í skreið­ar­við­skiptum sem hafði átt að fá 20 pró­sent í afslátt af íslenskri skreið undir borðið en vegna geng­is­falls níger­íska gjald­mið­ils­ins hafi þetta ekki gengið eftir. Svo segir Ólafur frá þessu: „Ég mætti á til­settum tíma og komst beint til rit­ar­ans. Hún fylgdi mér til mr. Emma Egbunike, yfir­manns utan­rík­is­við­skipta, sem við Barði hittum í okkar ferð. Meðan hann var að ganga frá fyr­ir­mælum til úti­bús­ins í Lagos, rudd­ist Okeke inn á skrif­stof­una. Hann er með stærstu mönnum og að sama skapi ljótur. Hann var ofsareiður, slengdi mér út í horn og sagði að ég skyldi ekki sleppa út með eina niru öðru­vísi en að hann fengi sinn hlut út úr henni. Hann hafði átt að fá 20% í afslátt undir borðið en við það fall sem orðið hafði á nirunni var fyr­ir­fram­greiðslan sem hann fékk orðin mikið meira en það. Ég neit­aði að semja við hann um eitt eða neitt, sagði hann vera búinn að ræna okkur nóg.“

Svona er bók Ólafs um við­skiptin með skreið­ina í Nígeríu; hún er full af skraut­legum sögum um hvernig kaupin gengu fyrir sig á eyr­inni og ruglið og hringa­vit­leysan er oft þannig í fram­vindu við­skipt­anna og stöðu að erfitt getur verið að halda þræði. Ólafur segir meðal ann­ars frá því að þegar Sverrir Her­manns­son varð banka­stjóri Lands­banka Íslands hafi hann ekki haft áhuga á að setja sig inn í þessar „skreið­ar­flækjur“ eins og fyr­ir­renn­ari hans, Helgi Bergs, hafði gert og því hafi hann látið næst­ráð­anda sinn í bank­anum sjá um sam­skiptin við skreið­ar­sölu­menn­ina eins og Ólaf Björns­son.

Bræð­urnir Eiríkur og Gunnar Tómassynir í Þor­birn­inumEiríkur og Gunnar Tómassynir eru eig­endur Þor­bjarnar í Grinda­vík sem á stærsta skreið­ar­fyr­ir­tæki á Íslandi. Bræð­urnir hafa lengi komið að við­skipt­unum með skreið­ina og sat Eiríkur meðal ann­ars í stjórn skreið­ar­sam­lags­ins á níunda ára­tug síð­ustu aldar.

Skreiðarviðskiptin og orð Gunnars í Þorbirni

Þegar Stundin hefur rætt við íslenska útgerð­ar­menn um Namib­íu­mál útgerð­ar­innar Samherja hafa sumir þeirra minnst á það, on the record eða off the record, að ýmiss konar óvana­legar greiðslur hafi tíðkast í Afríku og víða ann­ars staðar til að liðka fyrir við­skiptum. 

Einn íslenskur útgerð­ar­maður sagði til dæmis við Stundina off the record að það hafi gerst í sjó­ferðum íslenskra skipa í Afríku gegnum árin að sígar­ettum hafi verið gaukað  að opin­berum starfs­mönnum eins og toll­vörðum ef upp kæmu vanda­mál í sam­skiptum áhafn­anna við þá.  

Annar útgerð­ar­maður segir við Stundina off the record að það sé svona sem kaupin gangi fyrir sig á eyr­inni víða í Afríku og að það viti allir. Fáir vilji hins vegar segja þetta undir nafni, rétt eins og fáir vilja segja sínar skoð­anir á Sam­herj­a­mál­inu. Sjálfur seg­ist hann aldrei hafa viljað koma nálægt við­skiptum í sjáv­ar­út­vegi í Afríku, meðal ann­ars vegna þess. 

Annar útgerð­ar­maður, Gunnar Tómasson, fram­kvæmda­stjóri Þor­bjarnar hf. í Grinda­vík, sagði við Stundina að „alls konar greiðslur“ hefðu tíðkast þar en að kannski væri Namib­íu­mál Samherja „eitt­hvað af öðrum toga“. „Við höfum verið í við­skiptum í Afríku með sölu á skreið í gegnum tíð­ina. Við­skipti við Afríku hafa alltaf verið erfið. Þar hafa alls konar svona greiðslur til að liðka til fyrir við­skiptum tíðkast lengi og við þekkjum það lang­best úr skreið­inni. Þannig að við höfum þurft að glíma oft við það og fengið stjórn­völd á Íslandi með okkur í þann slag. Þannig að það er ekki nýtt fyrir okkur. En þetta Namib­íu­mál er kannski eitt­hvað af öðrum toga en ég þekki það bara ekki.“

Gunnar gerir því þennan sam­an­burð á við­skipt­unum með skreið frá Íslandi í gegnum tíð­ina og svo í Namib­íu­mál­inu í þeim skiln­ingi að í báðum til­fellum hafi „alls konar greiðslur“ átt sér stað. En hann segir jafn­framt að Namib­íu­málið sé „kannski eitt­hvað af öðrum toga“, án þess að fara nánar út í það. 

Áður­nefnt fyr­ir­tæki, Haustak á Reykja­nesi, er meðal ann­ars í eigu Þor­bjarnar í Grinda­vík og heyrir því undir útgerð­ina. Bróðir Gunnars Tóm­as­sonar, Eiríkur, var í stjórn skreið­ar­sam­lags­ins á þeim tíma sem Ólafur stýrði því og er sam­skiptum við hann meðal ann­ars lýst í bók­inni. Gunnar, sem er að nálg­ast sjö­tugt, ætti því að vita um hvað hann er að tala.

Þegar Gunnar er inntur eftir frek­ari útskýr­ingum á orðum sínum um skreið­ar­við­skiptin vísar hann til bókar Ólafs Björns­sonar sem hér er fjallað um. 

 

Ekki sambærilegt við Namibíu en mútur nefndar 

Frá­sagn­irnar um greiðsl­urnar í skreið­ar­við­skipt­unum frá Íslandi á níunda ára­tugnum eru auð­vitað alls ekki einu heim­ild­irnar um slíkar óeðli­legar greiðslur undir borðið vegna við­skipta Íslend­inga í sjáv­ar­út­vegi í Afríku.

Eins og Stundin hefur greint frá upp úr gögn­unum sem umfjöllun blaðs­ins, Kveiks og Wikileaks um Namib­íu­málið byggði á árið 2019 þá gerðu vinnu­gögn frá Samherja í Marokkó og Márit­aníu á árunum 2007 til 2013 ráð fyrir því að greiða þyrfti mútur í lönd­unum. Í við­skipta­á­ætl­unum Samherja var sér­stakur rekstr­ar­liður sem nefndur er „mútur“. Þessi ætl­aði kostn­aður var settur undir „annan kostnað“ í kostn­að­ar­grein­ingum.

Í göng­unum var hins vegar ekki að finna nein eig­in­leg dæmi um slíkar mútu­greiðslur í þessum löndum en gögnin sýna hins vegar að gert hafi verið ráð fyrir þeim.

Annað sam­bæri­legt dæmi um ætl­aðar mútu­greiðslur í Marokkó er bók­halds­lyk­ill sem finna má í gögn­unum með yfir­skrift­inni „mútur til tolls­ins“ [e. bribe to customs].  

Jóhannes Stef­áns­son hefur sagt við Stundina að þetta gagn sé til­komið vegna þess að á sínum tíma, þegar Samherji stund­aði veiðar í Marokkó, þá hafi fyr­ir­tækið flutt þangað inn dýr tæki sem félagið hefði átt að borga tolla af. Í stað­inn fyrir að greiða toll­ana af tækj­unum hafi Samherji hins vegar greitt toll­vörðum í Marokkó til að fá þá til að horfa fram­hjá umræddum tækjum við toll­skoðun. 

Í máli Jóhann­esar kom hins vegar jan­framt fram að upp­hæð­irnar sem um ræddi undir þessum bók­halds­lykli hafi verið lágar og ekk­ert í lík­ingu við umfang þeirra greiðslna sem kom fram að Samherji hefði síðar reitt af hendi í Namibíu. „Fyrir þeim voru mút­urnar bara ein talan inn í Excel-skjalið. Þetta var bara spurn­ing um hvernig nið­ur­staðan kæmi út, þetta var bara sjálf­sagður hlutur. […] Þetta var bara ein breytan í heild­ar­dæm­inu,“ sagði Jóhannes við Stundina. 

Aftur þá má nefna, rétt eins og Gunnar Tómasson, impraði á í til­felli skreið­ar­við­skipt­anna, þá má segja að fyrri heim­ildir um ætl­aðar mútu­greiðslur og sporslur í veiðum Samherja í Márit­aníu og Marokkó hafi verið ann­ars eðlis en síðar í Namibíu.

„Ómögulegt að segja hvert peningarnir fara“

Í gögn­unum um veiðar Samherja og áður Sjóla­skipa í Márít­aníu og Marokkó kom einnig fram að að  Samherji, og þar á undan Sjóla­skip sem Samherji keypti Afr­íku­út­gerð­ina af árið 2007 og end­ur­skírði Kötlu Seafood, hafi keypt kvóta sinnaf svoköll­uðum kvóta­höfum þar í landi. 

Eins og Stundin hefur greint frá veiddu þessar útgerðir sam­tals um meira en 200 þús­und tonn af hesta­makríl og öðrum teg­undum í lönd­unum á árunum 2004 til 2008. Þetta kom fram í  Power Point-kynn­ingu sem var hluti af gögn­unum í Namib­íu­mál­inu. Þennan kvóta komust útgerð­irnar yfir meðal ann­ars með samn­ingum við kvóta­grúppur sem lutu stjórn þing­manna á marokkóska þing­inu. Tveir af þing­mönn­unum hétu Slimane Derham og Cheikh Amar sam­kvæmt gögn­unum. 

Alls 57 pró­sent af kvót­anum sem þessar útgerðir veiddu í Marokkó kom frá kvóta­grúppu þar í landi sem heitir Frigroupe sem laut stjórn Slimane Derhams og valda­fjöl­skyldu í stjórn­mála- og við­skipta­lífi Marokkó sem heitir Kabbage.

Í gögn­unum kemur fram að á árunum 2004 til 2008 hafi Sjóla­skip og Samherji greitt rúm­lega 9,6 millj­ónir Banda­ríkja­dala, tæp­lega 1.200 millj­ónir króna, til kvóta­hafa í Marokkó á árunum í skiptum fyrir kvót­ann. 

Aftur má nefna að þessi við­skipti við kvóta­haf­ana eru ann­ars eðlis en síðar í Namibíu.

Sjóla­skip og Samherji ein­fald­lega keyptu kvót­ann af aðilum sem höfðu fengið hann úthlut­aðan. Þetta reynd­ust vera meðal ann­ars hópar sem voru tengdir inn í stjórn- og valda­kerfi Marokkó. Í Namibíu voru þeir sem nú sitja í gæslu­varð­haldi grun­aðir um að hafa þegið mútur frá Samherja ekki kvóta­hafar heldur stjórn­mála- og emb­ætt­is­menn og tengdir aðilar sem sáu til þess að Samherji fengi úthlut­aðan kvóta frá rík­inu gegn því að þeir fengju greitt fyrir það.

Muninn á þessu tvennu má meðal ann­ars útskýra með þeim orðum sem einn af sjó­mönnum Samherja í Marokkó og Márit­aníu lét falla í við­tali við DV árið 2012 þar sem hann sagði að Samherji vissi ekk­ert endi­lega hvert pen­ing­arnir sem félagið greiddi fyrir kvót­ann færu. „Menn eru ekki að veiða þarna þvert gegn vilja stjórn­valda. Ef það væri til­fellið þá værum við ekki að veiða þarna. […] Fulltrúi stjórn­valda selur okkur veiði­leyfin og er tengiliður okkar. Við kaupum bara leyfin frá stjórn­völdum. Hver það er sem á end­anum fær pen­ing­ana er ómögu­legt að segja.“

Upp­hæð­irnar sem um ræðir í Namib­íu­mál­inu, sem og eðli þeirra við­skipta sem nú eru til rann­sóknar þar í landi og Íslandi, eru því nokkuð ann­ars eðlis en aðrar heim­ildir um „smurn­ingar“ og mútu­greiðslur sem hingað til hafa komið fram í íslenskum sjáv­ar­út­vegi og fisk­sölu í Afríku. Samherji var miklu beinni þátt­tak­andi í því sem er til rann­sóknar í Namib­íu­mál­inu á meðan Samherji kom ekki með beinum hætti að því að til­teknir þing­menn í Marokkó fengu kvóta þar í landi sem þeir áfram­seldu svo til ein­stakra útgerða. 

Muninn á Namib­íu­mál­inu og öðrum sam­bæri­legum málum í Afríku má kannski meðal ann­ars skýra með því sem Þor­steinn Már Bald­vins­son sagði eitt sinn um veiðar félags­ins á umdeildu haf­svæði í Marokkó. „Við erum ekki að blanda okkur í inn­an­rík­is­mál.“ Í Namibíu má hins vegar segja að Samherji hafi byrjað að blanda sér í inn­an­rík­is­mál þar sem lögum í land­inu var meðal ann­ars breytt svo Samherji gæti fengið kvóta.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Samherjamálið

Hluthafar Samherja taka út milljarð í arð eftir uppskiptingu félagsins
FréttirSamherjamálið

Hlut­hafar Samherja taka út millj­arð í arð eftir upp­skipt­ingu félags­ins

Veru­legar breyt­ingar voru gerðar á upp­bygg­ingu útgerð­ar­ris­ans Samherja í fyrra þegar fjár­fest­ing­ar­starf­semin var aðskilin frá útgerð­ar­rekstri með stofnun eign­ar­halds­fé­lags­ins Látra­fjalla ehf. Líklegt er að eig­endur Samherja ætli sér einnig að færa útgerð­ar­fé­lagið inn í eign­ar­halds­fé­lagið Látra­fjöll en skatta­legar ástæður geta legið þar að baki.
Almenningshlutafélag í stórri eigu Samherja kaupir í sölufyrirtæki Samherja
FréttirSamherjamálið

Almenn­ings­hluta­fé­lag í stórri eigu Samherja kaupir í sölu­fyr­ir­tæki Samherja

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja og stjórn­ar­for­maður Síld­ar­vinnsl­unnar, vék sæti þegar almenn­ings­hluta­fé­lagið ákvað að kaupa hluta­bréf í sölu­fyr­ir­tæki Samherja af útgerð­inni. Síld­ar­vinnslan ákvað einnig að kaupa hluta­bréf af fyr­ir­tæki í eigu Þor­steins Más og Krist­jáns Vil­helms­sonar fyrir rúm­lega 2 millj­arða króna.
„Þetta eru glæpamenn og hegða sér eftir því“
ViðtalSamherjaskjölin

„Þetta eru glæpa­menn og hegða sér eftir því“

Jóhannes Stef­áns­son, upp­ljóstr­ari í Sam­herj­a­mál­inu, er sáttur við gang rann­sókn­ar­innar hér á landi og segir að fátt geti komið í veg fyrir að málið endi með dómi. Hann gagn­rýnir þó aðgerð­ar­leysi yfir­valda við því þegar Sam­herj­a­menn hafa áreitt, njósnað um eða reynt að hræða hann frá því að bera vitni. Fátt í við­brögðum Sam­herj­a­fólks hafi þó komið honum á óvart, enda fái þau að ganga mun lengra en öðrum lið­ist.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár