Samherji keypti kvóta á hernumdu svæði í Marokkó í gegnum fyrirtæki þingmanna

Samherji stund­aði arð­bærar veiðar í Marokkó og Márit­aníu á árunum 2007 til 2013. Útgerð­ar­fé­lagið keypti kvóta af fyr­ir­tækjum sem tengd­ust þing­mönnum í Marokkó og fundað var með syni hers­höfð­ingja sem sagður er hafa stór­efn­ast á sjáv­ar­út­vegi. Gert var ráð fyrir mútu­greiðslum sem „öðrum kostn­aði“ í rekstr­ar­á­ætl­unum.

Samherji keypti kvóta á hernumdu svæði í Marokkó í gegnum fyrirtæki þingmanna
Með sjáv­ar­út­vegs­ráð­herran Marokkó Þor­steinn Már Bald­vins­son fund­aði með sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra Marokkó, Aziz Akhennouch, í sept­em­ber 2011. Samherji lagði mikið upp úr því að hafa öruggt aðgengi að sjó­frystikvóta í land­inu til lengri tíma.

Útgerð­ar­fé­lagið Samherji keypti kvóta í Marokkó á árunum 2007 til 2009 í gegnum kvóta­hafa sem voru bein­tengdir inn í stjórn­mála­lífið í land­inu, meðal ann­ars þing­menn. Kvótinn var keyptur af kvóta­höfum sem höfðu fengið hann í gegnum rík­is­valdið í Marokkó en óljóst er hvernig kvóta­haf­arnir fengu aðgang að honum.

Þetta kemur fram í gögnum um starf­semi Samherja í Marokkó sem Stundin hefur undir höndum í gegnum Wikileaks. Skjölin eru hluti af gagna­pakka sem Wikileaks fékk aðgang að og hefur birt á heima­síðu sinni að hluta og deilt með nokkrum fjöl­miðlum. Umrædd gögn fjalla aðal­lega um starf­semi Samherja í Namibíu og greindu Kveikur, Stundin og Al Jazeera frá helsta inn­taki þeirra – stór­felldum mútu­greiðslum Samherja til áhrifa­manna í Namibíu í skiptum fyrir hesta­makríl­skvóta – fyrir skömmu.  

Á árunum 2007 til 2013 rak Samherji arð­bæra útgerð í Marokkó …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

„Tími á að íslensk stjórnvöld axli siðferðislega ábyrgð á Samherja“
FréttirSamherjaskjölin

„Tími á að íslensk stjórn­völd axli sið­ferð­is­lega ábyrgð á Samherja“

Leiðtogi namibísku stjón­ar­and­stöð­unnar segir landa sína undr­ast þögn íslenskra stjórn­valda um þá stað­reynd að stærsta spill­ing­ar­mál í sögu Namibíu hafi orðið til fyrir til­stilli íslensks fyr­ir­tækis. Spyr hvort hund­rað millj­óna styrkur Orku­sjóðs sé rík­is­styrkt spill­ing og sendir for­sæt­is­ráð­herra opið bréf og óskar lið­sinnis hennar við að fá Samherja til að greiða bætur og svara til saka.
Samherji sakaður um stórfelld skattalaga- og gjaldeyrisbrot í Namibíu og framsalskrafa væntanleg
RannsóknirSamherjaskjölin

Samherji sak­aður um stór­felld skatta­laga- og gjald­eyr­is­brot í Namibíu og fram­sal­skrafa vænt­an­leg

Rík­is­sak­sókn­ari Namibíu er enn ákveð­inn í því að óska eftir fram­sali þriggja stjórn­enda Sam­herj­a­fé­laga í Namibíu og segir brot á skatta- og gjald­eyr­is­lögum muni mögu­lega bæt­ast við sak­ar­efnin á hendur þeim. Stór­felld skatta­laga­brot Sam­herj­a­fé­laga sögð til rann­sóknar. Sam­herj­a­maður segir íslensk yfir­völd þegar hafa neitað að fram­selja sig.
Íslandsvinkona svo gott sem orðin forseti Namibíu
FréttirSamherjaskjölin

Íslands­vin­kona svo gott sem orðin for­seti Namibíu

Netumbo Nandi-Ndaitwah, utan­rík­is­ráð­herra Namibíu, sem kom hingað til lands í júní og ræddi Sam­herj­a­málið við íslenska ráð­herra og aðstoð­ar­mann eins þeirra, er nú svo gott sem búin að tryggja sér for­seta­emb­ættið í Namibíu. Hún var í morgun kjörin arf­taki for­manns flokks­ins, sitj­andi for­seta sem hyggst setj­ast í helgan stein. Flokk­ur­inn nýtur slíks yfir­burð­ar­fylgis að inn­an­flokks­kosn­ingin er sögð raun­veru­legt for­seta­kjör.
„Þetta eru glæpamenn og hegða sér eftir því“
ViðtalSamherjaskjölin

„Þetta eru glæpa­menn og hegða sér eftir því“

Jóhannes Stef­áns­son, upp­ljóstr­ari í Sam­herj­a­mál­inu, er sáttur við gang rann­sókn­ar­innar hér á landi og segir að fátt geti komið í veg fyrir að málið endi með dómi. Hann gagn­rýnir þó aðgerð­ar­leysi yfir­valda við því þegar Sam­herj­a­menn hafa áreitt, njósnað um eða reynt að hræða hann frá því að bera vitni. Fátt í við­brögðum Sam­herj­a­fólks hafi þó komið honum á óvart, enda fái þau að ganga mun lengra en öðrum lið­ist.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár