Lífeyrissjóðir bæta við sig í útgerðarfélögum – Kaupverðið á Vísi hækkað um 4,5 milljarða

Virði skráðra félaga í Kauphöll Íslands dróst saman að nýju í ágúst eftir að hafa hækkað í júlí. Stórir líf­eyr­is­sjóðir eru að bæta við sig hlutum í skráðum sjáv­ar­út­vegs­fé­lögum, en virði þeirra hefur auk­ist gríð­ar­lega á tæpu ári.

Virði útgerðarfélaga sem skráð eru á íslenskan hlutabréfamarkað hefur aukist gríðarlega frá því í september í fyrra.
Virði útgerð­ar­fé­laga sem skráð eru á íslenskan hluta­bréfa­markað hefur auk­ist gríð­ar­lega frá því í sept­em­ber í fyrra. Mynd: EPA

Heild­ar­mark­aðsvirði allra þeirra 29 félaga sem skráð eru á Aðal­markað og First North mark­að­inn dróst saman um 14 millj­arða króna í ágúst­mán­uði og var 2.607 millj­arðar króna í lok þess mán­aðar. Alls lækk­aði úrvals­vísi­talan, sem mælir gengi þeirra tíu félaga sem eru með mestan selj­an­leika hverju sinni, um 5,5 pró­sent í mán­uð­inum.

Stærstu líf­eyr­is­sjóðir lands­ins bættu við sig beinum hlutum í útgerð­ar­fé­lög­unum tveimur sem skráð eru á Aðal­mark­aði í síð­asta mán­uði. Líf­eyr­is­sjóður starfs­manna rík­is­ins (LSR), bæði A- og B-deild, keyptu bréf í Brimi fyrir um 290 millj­ónir króna og eig nú sam­tals 18,3 pró­sent hlut í félag­inu. Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna keypti fyrir rúm­lega 48 millj­ónir króna í Brimi og á nú 10,6 pró­sent hlut og Birta líf­eyr­is­sjóður keypti fyrir sömu upp­hæð sem leiddi til þess að eign­ar­hlutur hans fór í 2,8 pró­sent. Auk þess­ara sjóða eru tveir aðrir slíkir á meðal 20 stærstu hlut­hafa Brims, Söfn­un­ar­sjóður líf­eyr­is­rétt­inda á 1,6 pró­sent hlut og Almenni líf­eyr­is­sjóð­ur­inn á 0,7 pró­sent. Sam­an­lagt eiga líf­eyr­is­sjóðir lands­ins því nú að minnsta kosti 34 pró­sent hlut í Brimi.

Langstærsti eig­andi þess félags er þó enn Útgerð­­­­­­ar­­­­­­fé­lag Reykja­vík­­­­­­­­­­­ur, sem á 43,97 pró­­­­­­sent hlut í Brim beint og í gegnum dótt­­­­­­ur­­­­­­fé­lag sitt RE-13 ehf. Það félag er að upp­­i­­­­stöðu í eigu Guð­­­mundar Krist­jáns­­­son­­­ar.

Auk þess eiga félögin KG Fisk­verkun og Stekkja­sal­ir, í eigu Hjálm­ars Krist­jáns­sonar bróður Guð­mundar og sona hans, 5,9 pró­sent hlut í Brimi og félagið á 1,6 pró­sent hlut í sjálfu sér. Bræð­urnir halda því á 49,9 pró­sent hlut í útgerð­ar­ris­anum og geta saman myndað meiri­hluta í honum ef atkvæða­vægi eigin hlutar Brims er dregið frá.

[adspot]

Brim hagn­að­ist um 6,9 millj­arða króna á fyrstu sex mán­uðum þessa árs. Hagn­aður félags­ins var 113 pró­sent meiri en á sama tíma­bili í fyrra þegar hann er reikn­aður í evr­um, upp­gjörs­mynt Brim­s.

Tekjur Brims á fyrri helm­ingi árs­ins 2021 voru 34,3 millj­arðar króna og eigið fé félags­ins 58,6 millj­arðar króna í lok júní síð­ast­lið­ins. Eig­in­fjár­hlut­fallið var 50,4 pró­sent um mitt þetta ár. Tekjur Brims á fyrri helm­ingi árs­ins 2021 voru 34,3 millj­arðar króna og eigið fé félags­ins 58,6 millj­arðar króna í lok júní síð­ast­lið­ins. Eig­in­fjár­hlut­fallið var 50,4 pró­sent um mitt þetta ár.

Hluta­bréfa­verð í Brimi hefur hækkað um 73 pró­sent frá því seint í sept­em­ber í fyrra, eða um rúm­leg 107 millj­arða króna. Mark­aðsvirði félags­ins nú er um 183 millj­arðar króna.

Lífeyrissjóðir komnir með fimmtung í Síldarvinnslunni

Líf­eyr­is­sjóð­irnir hafa líka verið að byggja upp stærri stöður í Síld­ar­vinnsl­unni, en hún var skráð á markað í fyrra. Í ágúst­mán­uði keypti Gildi líf­eyr­is­sjóður hluta­bréf í útgerð­ar­fé­lag­inu fyrir tæp­lega 1,3 millj­arða króna og á nú 10,8 pró­sent hlut. Líf­eyr­is­sjóður banka­manna keypti hluti fyrir 575 millj­ónir króna í mán­uð­inum, og á nú 0,3 pró­sent, og líf­eyr­is­sjóður starfs­manna Reykja­vík­ur­borgar keypti 0,2 pró­sent hlut fyrir rúm­lega hálfan millj­arð króna.

Alls eiga þeir líf­eyr­is­sjóðir sem eru á meðal 20 stærstu eig­enda Síld­ar­vinnsl­unnar nú beint 20,8 pró­sent hlut í félag­inu, en Stapi, Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna, Festa, Almenni líf­eyr­is­sjóð­ur­inn, Brú og líf­eyr­is­sjóður Vest­manna­eyja eru einnig á meðal hlut­hafa.

Auk þess eiga líf­eyr­is­sjóðir óbeina hluti í gegnum sjóð­stýr­inga­fyr­ir­tæki sem keypt hafa hluti í útð­gerð­ar­ris­unum tveimur.

[links]Stærstu eig­endur Síld­­­­­ar­vinnsl­unnar eru Sam­herji (32,6 pró­sent) og félagið Kjálka­­­­­nes 17,4 pró­sent), sem er í eigu sömu ein­stak­l­inga og eiga útgerð­ina Gjögur frá Gren­i­vík. Þar er meðal ann­­­­­ars um að ræða Björgólf Jóhanns­­­­­son, sem var um tíma annar for­­­­­stjóri Sam­herja, og fólks sem teng­ist honum fjöl­­­­skyld­u­­­­bönd­um, meðal ann­­­ars syst­k­ini hans. Þá á Kald­bak­­­­­­­ur, félag í eigu Sam­herja, 15 pró­­­­­­­sent hlut í öðru félagi, Eign­­­­­ar­halds­­­­­­­­­fé­lag­inu Snæfugli, sem á 3,8 pró­sent hlut í Síld­­­­­­­ar­vinnsl­unni. Á meðal ann­­­­­arra hlut­hafa í Snæfugli er Björgólf­­­­­ur. Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja, er stjórn­ar­for­maður Síld­ar­vinnsl­unnar.

Þá á félagið Hraunlón, í eigu Gunnþórs Ingva­sonar, Axels Ísaks­sonar og Jóns Más Jóns­sonar, sem allir eiga sæti í fram­kvæmda­stjórn Síld­ar­vinnsl­unnar, um eitt pró­sent hlut.

Sam­keppn­is­eft­ir­litið telur vís­bend­ingar um að þessir aðil­­ar, Síld­­­­­ar­vinnslan, Sam­herji og Gjög­­­­­ur, eigi mög­u­­lega að telj­­ast tengdir í skiln­ingi laga. Þetta kom fram í ákvörðun sem eft­ir­litið birti í byrjun árs 2021. Þeir héldu sam­tals á 22,14 pró­­­­sent af öllum úthlut­uðum kvóta í nóv­­­em­ber í fyrra.

Sam­an­lagður eign­ar­hlutur þess­ara aðila, sem Sam­keppn­is­eft­ir­litið telur vís­bend­ingar um að séu tengdir, er því 54,8 pró­sent.

Síld­ar­vinnslan birti upp­gjör sitt fyrir fyrri hluta árs­ins 2022 í síð­asta mán­uði. Þar kom fram að hagn­aður félags­ins hafi verið 6,5 millj­arðar króna á fyrstu sex mán­uðum árs­ins, ef miðað er við gengi Banda­ríkja­dals í dag, en útgerðin gerir upp í þeim gjald­miðli.

Eigið fé Síld­ar­vinnsl­unnar var 61,7 millj­arðar króna um mitt þetta ár. Verð­mætasta bók­færðu eignir félags­ins eru afla­heim­ildir sem eru sagðar 37,7 millj­arða króna virð­i.

Hluta­bréfa­verð í Sílda­vinnsl­unni hefur hækkað um rúm­lega 85 pró­sent frá því seint í sept­em­ber í fyrra, eða um 95 millj­arða króna. Mark­aðsvirði félags­ins nú er um 211 millj­arðar króna. Hlutur stærsta ein­staka eig­and­ans, Samherja, hefur einn og sér hækkað um 31 millj­arð króna.

Kaupverðið á Vísi hækkað um 4,5 milljarða

Verði fyr­ir­huguð kaup Síld­ar­vinnsl­unnar á útgerð­ar­fyr­ir­tæk­inu Vísi í Grinda­vík sam­þykkt af Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu munu eign­ar­hlutir ann­arra hlut­hafa þynn­ast niður. Þegar greint var frá kaup­unum var kaup­verðið sagt 31 millj­arður króna. Af þeirri upp­hæð eru 11 millj­arðar króna í formi yfir­töku skulda og sex millj­arðar króna verða greiddir í reiðufé. Alls 14 millj­arðar króna áttu hins vegar að greið­ast með útgáfu nýs hluta­fjár í Síld­ar­vinnsl­unni.

Þar var miðað við gengið 95,93 krónur á hlut. Síðan að kaupin voru til­kynnt 10. júlí síð­ast­lið­inn hefur hluta­bréfa­verð Síld­ar­vinnsl­unnar hins vegar hækkað um 32 pró­sent. Hlut­ur­inn sem systk­inin sex sem eiga Vísi í dag fá í Síld­ar­vinnsl­unni, gangi við­skiptin eftir, er því nú met­inn á 18,5 millj­arða króna og hefur hækkað um 4,5 millj­arða króna á tæpum tveimur mán­uðum.

Verði af kaup­unum bæt­ist 2,16 pró­­­sent kvóti Vísis við og sam­an­lagður úthlut­aður kvóti til Sam­herja og mög­u­­­legra tengdra aðila fer upp í 24,3 pró­­­sent, eða næstum fjórð­ung allra úthlut­aðra afla­heim­ilda á Íslandi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kauphöllin

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár