Með 5,6 milljónir á mánuði og á hlut í Síldarvinnslunni sem er metinn á um milljarð

Laun Gunnþórs Ingva­sonar, for­stjóra Síld­ar­vinnsl­unnar, hækk­uðu um 18,5 pró­sent í fyrra. Eitt pró­sent hlutur félags sem hann á 60 pró­sent á móti tveimur öðrum í er met­inn á um 1,6 millj­arð króna. Þeir borg­uðu 32 millj­ónir fyrir hlut­inn.

Gunnþór Ingvason, forstjóri Síldarvinnslunnar.
Gunnþór Ingvason, for­stjóri Síld­ar­vinnsl­unnar. Mynd: Skjáskot/Youtube

Launa- og líf­eyr­is­sjóðs­greiðslur til Gunnþórs Ingva­sonar, for­stjóra Síld­ar­vinnsl­unnar, hækk­uðu um 18,5 pró­sent á síð­asta ári. Miða greiðslur til hans á mán­uði voru 5,6 millj­ónir króna á árinu 2021 en 4,7 millj­ónir króna árið 2020. Laun Gunnþórs og mót­fram­lag í líf­eyr­is­sjóð hækk­uðu um 880 þús­und krónur á mán­uði að með­al­tali í fyrra.

Þetta kemur fram í árs­reikn­ingi Síld­ar­vinnsl­unnar sem birtur var í gær.

Laun hans eru við með­al­tal launa for­stjóra skráðra félaga, sem voru tæp­lega 5,7 millj­ónir króna á mán­uði að teknu til­liti til launa­hækk­unar Gunnþórs.

Rekstur Síld­ar­vinnsl­unnar gekk vel í fyrra. Hún hagn­að­ist um 11,1 millj­arða króna, ef miðað er við með­al­gengi Banda­ríkja­dals en félagið gerir upp í þeirri mynt. Af þeirri upp­hæð féllu um þrír millj­arðar króna til vegna sölu­hagn­aðar sem mynd­að­ist þegar SVN eigna­fé­lag, stærsti eig­andi trygg­inga­fé­lags­ins Sjóvár, var afhentur fyrri hlut­höfum Síld­ar­vinnsl­unnar í fyrra­vor.

[adspot]Stjórn Síld­ar­vinnsl­unnar leggur til við aðal­fund að greiddur verði arður til hlut­hafa vegna reikn­ings­árs­ins 2021 upp á 3,4 millj­arða króna.

Félagið greiddi 531 millj­ónir króna í veiði­gjöld í fyrra og tæp­lega 2,1 millj­arð króna í tekju­skatt. Því námu sam­an­lagðar greiðslur vegna veiði­gjalds og tekju­skatts í rík­is­sjóð um 2,6 millj­örðum króna, eða 76 pró­sent af þeirri upp­hæð sem til stendur að greiða hlut­höfum í arð og 23 pró­sent af hagn­aði Síld­ar­vinnsl­unnar vegna síð­asta árs.

Miðað við nýjasta birta lista Fiski­­­stofu um þær afla­heim­ildir sem hvert fyr­ir­tæki heldur á þá er Síld­­­ar­vinnslan, ásamt dótt­­­ur­­­fé­lög­um, í þriðja sæti yfir þær útgerðir sem ráða yfir mestum kvóta með 9,41 pró­­­sent hans. Þá keypti Síld­­ar­vinnslan útgerð­­ar­­fyr­ir­tækið Berg Hug­inn á árinu 2020 en það heldur á 1,03 pró­­sent af öllum úthlut­uðum kvóta.

Hafa hagnast um 1,6 milljarð króna á því að kaupa hlut

Síld­ar­vinnslan var skráð á markað í maí í fyrra. Í skrán­ing­ar­lýs­ingu Síld­ar­vinnsl­unnar kom fram að Gunn­þór, Axel Ísaks­son og Jón Már Jóns­son, sem allir eiga sæti í fram­kvæmda­stjórn Síld­ar­vinnsl­unnar væru eig­endur félags­ins Hraun­lóns. Þeir keyptu félagið í lok árs 2020 á 640 millj­ónir króna en Hraunlón átti þá 27,5 millj­ónir hluta í Síld­ar­vinnsl­unni.

Þegar Síld­ar­vinnslan var skráð á markað hafði virði hlut­ar­ins hækkað upp í 1.595 millj­ónir króna á fjórum mán­uðum, eða um 955 millj­ónir króna.

Í hluta­fjár­út­boði sem fór fram í aðdrag­anda skrán­ingar Síld­ar­vinnsl­unnar á markað ákvað Hraunlón að selja 37 pró­sent af bréfum sínum. Fyrir það fékk félagið 608 millj­ónir króna. Því má segja, þegar kaup­verðið á heild­ar­hlutnum í lok árs 2020 er dregið frá því sem fékkst fyrir það selt var í hluta­fjár­út­boð­inu í fyrra­vor, að eig­endur Hraun­lóns hafi greitt 32 millj­ónir króna fyrir þann hlut sem þeir halda á í dag.

Það er sem stendur um eitt pró­sent hlutur í Síld­ar­vinnsl­unni sem met­inn er á um 1,6 millj­arð króna, en mark­aðsvirði félags­ins hefur hækkað um 41 pró­sent frá skrán­ingu.

Þar munar mestu um þá aukn­ingu sem varð á virði félags­ins eftir að til­kynnt var um stór­auk­inn loðnu­kvóta í fyrra­haust, en Síld­ar­vinnslan og tengd félög fengu næst mest allra útgerða af hon­um, eða 18,49 pró­sent. Um var að ræða stærstu úthlutun í loðnu í næstum tvo ára­tugi en engum loðnu­kvóta hafði verið úthlutað í tvö ár á und­an.

Virðið tífaldaðist

Hraun­lón var áður í jafnri eigu Ein­ars Bene­dikts­son­ar, fyrr­ver­andi for­stjóra Olís, og Gísla Bald­urs Garð­ars­sonar lög­manns. Sam­herji fjár­festi í Olís árið 2012 þegar þeir tveir áttu félagið að fullu og árið 2017 voru þeir að öllu leyti keyptir út úr Olís, meðal ann­ars af Sam­herj­a. Olís rann síðar saman við smá­söluris­ann Haga.

[links]Hraun­lón skil­aði ekki árs­reikn­ing á árunum 2010 til 2015. Á síð­ara árinu er komin inn eign­ar­hlutur í öðru félagi, Síld­ar­vinnsl­unni, sem met­inn var á 213 millj­ónir króna. Í árs­reikn­ingi 2020 var hlut­ur­inn enn verð­met­inn á þá tölu, eða þriðj­ung af því sem hlut­ur­inn var seldur á í lok þess árs.

Þegar það verð sem nýir eig­endur fengu fyrir 37 pró­sent af eign­inni í hluta­fjár­út­boð­inu í fyrra vor er lagt við mark­aðsvirði eft­ir­stand­andi eitt pró­sent hlutar í Síld­ar­vinnsl­unni nú er virði þess hlutar sem Hraunlón átti í lok árs 2020 um 2,2 millj­arður króna, eða tíu sinnum meira en bók­fært virði hlut­ar­ins var fyrir rúmum 14 mán­uðum.

Því hafa Gunnþór, Axel og Jón Már hagn­ast um tæp­lega 1,6 millj­arð króna á því að kaupa Hraunlón í lok árs 2020, nokkrum mán­uðum áður en Síld­ar­vinnslan var skráð á markað.

Þorri þess hagn­aðar lendir hjá Gunnþóri. Í árs­reikn­ingi Síld­ar­vinnsl­unnar kemur fram að Gunnþór eigi 60 pró­sent hlut í L1197 ehf. sem á 100 pró­sent hlut í Hraun­lóni. Því er beinn hlutur Gunnþórs í Hraun­lóni 940 millj­óna króna virði. Auk þess á hann 100.306 hluti í eigin nafni í Síld­ar­vinnsl­unni, en mark­aðsvirði þeirra er rúm­lega níu millj­ónir króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár