Síldarvinnslan hagnaðist um 11,1 milljarða króna en borgaði 531 milljón króna í veiðigjald

Eigið fé Síld­ar­vinnsl­unnar var 55 millj­arðar króna um síð­ustu ára­mót og mark­aðsvirði félags­ins er 153 millj­arðar króna. Til stendur að greiða hlut­höfum út 3,4 millj­arða króna í arð en stærstu eig­end­urnir eru Samherji og Kjálka­nes.

Gunnþór Ingvarsson er forstjóri Síldarvinnslunnar. Hann sést hér hringja inn fyrstu viðskipti með bréf í félaginu eftir skráningu á markað í maí í fyrra.
Gunnþór Ingv­ars­son er for­stjóri Síld­ar­vinnsl­unnar. Hann sést hér hringja inn fyrstu við­skipti með bréf í félag­inu eftir skrán­ingu á markað í maí í fyrra. Mynd: Nasdaq Iceland

Síld­ar­vinnslan hagn­að­ist um 11,1 millj­arða króna á síð­asta ári, ef miðað er við með­al­gengi Banda­ríkja­dals en félagið gerir upp í þeirri mynt. Af þeirri upp­hæð féllu um þrír millj­arðar króna til vegna sölu­hagn­aðar sem mynd­að­ist þegar SVN eigna­fé­lag, stærsti eig­andi trygg­inga­fé­lags­ins Sjóvár, var afhentur fyrri hlut­höfum Síld­ar­vinnsl­unnar áður en félagið var skráð á markað í maí í fyrra.

Þetta kemur fram í árs­reikn­ingi Síld­ar­vinnsl­unnar, sem birtur var í dag.

Stjórn Síld­ar­vinnsl­unnar leggur til við aðal­fund að greiddur verði arður til hlut­hafa vegna reikn­ings­árs­ins 2021 upp á 3,4 millj­arða króna.

Félagið greiddi 531 millj­ónir króna í veiði­gjöld í fyrra og tæp­lega 2,1 millj­arð króna í tekju­skatt. Því námu sam­an­lagðar greiðslur vegna veiði­gjalds og tekju­skatts í rík­is­sjóð um 2,6 millj­örðum króna, eða 76 pró­sent af þeirri upp­hæð sem til stendur að greiða hlut­höfum í arð og 23 pró­sent af hagn­aði Síld­ar­vinnsl­unnar vegna síð­asta árs.

Eigið fé 55 milljarðar króna

Rekstr­ar­tekjur útgerð­ar­ris­ans voru 30,1 millj­arður króna og EBITDA-hagn­aður, hagn­aður fyrir afskriftir, fjár­magns­kostnað og skatta, var 10,7 millj­arðar króna.

Í árs­reikn­ingnum segir enn fremur að eigið fé félags­ins hafi verið um 55,1 millj­arðar króna í lok árs í fyrra miðað við gengi krónu gagn­vart Banda­ríkja­dali í lok árs og eig­in­fjár­hlut­fallið 67 pró­sent. Vert er að taka fram að afla­heim­ildir sem félagið hefur til umráða eru færðar á nafn­virði í efna­hags­reikn­ingi. Upp­lausn­ar­virði þeirra getur verið mun hærra.

[adspot]Mark­aðsvirði Síld­ar­vinnsl­unnar er 153 millj­arðar króna sem stendur og hefur hækkað um 38 pró­sent frá skrán­ingu. Þar munar mestu um þá aukn­ingu sem varð á virði félags­ins eftir að til­kynnt var um stór­auk­inn loðnu­kvóta í fyrra­haust, en Síld­ar­vinnslan og tengd félög fengu næst mest allra útgerða af honum, eða 18,49 pró­sent. Um var að ræða stærstu úthlutun í loðnu í næstum tvo ára­tugi en engum loðnu­kvóta hafði verið úthlutað í tvö ár á undan.

Risavaxin blokk í sjávarútvegi

Miðað við nýjasta birta lista Fiski­­stofu um þær afla­heim­ildir sem hvert fyr­ir­tæki heldur á þá er Síld­­ar­vinnslan, ásamt dótt­­ur­­fé­lög­um, í þriðja sæti yfir þær útgerðir sem ráða yfir mestum kvóta með 9,41 pró­­sent hans. Þá keypti Síld­ar­vinnslan útgerð­ar­fyr­ir­tækið Berg Hug­inn á árinu 2020 en það heldur á 1,03 pró­sent af öllum úthlut­uðum kvóta.

[links]Stærstu eig­endur Síld­ar­vinnsl­unn­ar, sem var skráð á hluta­bréfa­markað í fyrra, eru Sam­herji hf. (32,64 pró­sent) og Kjálka­nes ehf. (17,44 pró­sent), ­fé­lags í eigu Björg­­ólfs Jóhanns­­son­­ar, fyrr­ver­andi for­­stjóra Sam­herja, og fólks sem teng­ist honum fjöl­­skyld­u­­bönd­­um. Auk þess á Eign­ar­halds­fé­lagið Snæfugl, sem er meðal ann­ars í eigu Sam­herja og Björg­ólfs, fjögur pró­sent hlut. Sam­an­lagt halda því þessir þrír aðilar á um 54,1 pró­sent hlut í Síld­ar­vinnsl­unni og skipa þrjá af fimm stjórn­ar­mönnum þess. Þeir fá rúm­lega 1,8 millj­arða króna í arð verði til­laga stjórnar Síld­ar­vinnsl­unnar um arð­greiðslu sam­þykkt.

Útgerð­ar­fyr­ir­tækið Gjög­­ur er í eigu sömu aðila og eiga Kjálka­­nes. Sam­keppn­is­eft­ir­litið birti þá nið­­ur­­stöðu frum­­mats síns í febr­­úar 2021 að til staðar væru vís­bend­ingar um um yfir­­­ráð Sam­herja eða sam­eig­in­­­leg yfir­­­ráð Sam­herja og tengdra félaga yfir Síld­­­ar­vinnsl­unn­i. ­Síðan að sú nið­­ur­­staða var birt hef­­ur, sam­­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans, verið kallað eftir gögnum frá stjórn­­völd­um, Sam­herja, Síld­­ar­vinnsl­unni og öðrum tengdum aðilum vegna máls­ins. Sú gagna­öflun hafi gengið vel en ekki hefur verið tekin ákvörðun um hvort ráð­ist verði í for­m­­lega rann­­sókn á mál­in­u.

Þessir aðil­­ar: Síld­­ar­vinnslan, Sam­herji og Gjög­­ur, sem Sam­keppn­is­eft­ir­litið telur mög­u­­legt að séu tengd­ir, halda sam­tals á 22,14 pró­sent af öllum úthlut­uðum kvóta.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár