Stórir lífeyrissjóðir keypt fyrir milljarða í skráðum útgerðum á tveimur mánuðum

Líf­eyr­is­sjóðir eru hægt og rólega að styrkja stöður sínar í eig­enda­hópi þeirra tveggja útgerð­ar­fé­laga sem skráð eru á markað. Gildi hefur keypt hluti í Síld­ar­vinnsl­unni fyrir yfir tvo millj­arða á tveimur mán­uðum.

Sú mikla hækkun sem varð á bréfum í Síldarvinnslunni og Brimi í september í fyrra má rekja til stóraukins loðnukvóta. Fyrirséð er að sá kvóti mun dragast umtalsvert saman í ár, miðað við fyrirliggjandi veiðiráðgjöf.
Sú mikla hækkun sem varð á bréfum í Síld­ar­vinnsl­unni og Brimi í sept­em­ber í fyrra má rekja til stór­auk­ins loðnu­kvóta. Fyrirséð er að sá kvóti mun drag­ast umtals­vert saman í ár, miðað við fyr­ir­liggj­andi veiði­ráð­gjöf. Mynd: Úr safni

Stærstu líf­eyr­is­sjóðir lands­ins hafa bætt vel við sig beinum hlutum í útgerð­ar­fé­lög­unum tveimur sem skráð eru á Aðal­mark­aði í síð­ustu tvo mán­uði.

Mest hefur Gildi líf­eyr­is­sjóður, þriðji stærsti sjóður lands­ins, keypt eða sam­tals fyrir um 2,1 millj­arð króna í Síld­ar­vinnsl­unni. Hann er nú orð­inn þriðji stærsti hlut­hafi félags­ins á eftir Samherja og Kjálka­nesi, eftir að hafa tekið fram úr Sam­vinnu­fé­lagi útgerð­ar­manna á Nes­kaups­stað í sept­em­ber­mán­uði.

Tveir stærstu sjóðir lands­ins, Líf­eyr­is­sjóður starfs­manna rík­is­ins (LSR) og Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna, hafa bætt vel við sig í hinum skráða útgerð­ar­ris­anum, Brimi, og eru annar og þriðji stærsti eig­andi hans með sam­tals 29,2 pró­sent eign­ar­hlut.

Tveir stærstu stjóðirnir stórir í Brimi

LSR, bæði A- og B-deild, keyptu bréf í Brimi fyrir um 290 millj­ónir króna í ágúst og fyrir 167 millj­ónir króna í sept­em­ber. Þessi stærsti líf­eyr­is­sjóður lands­ins á nú sam­tals 18,4 pró­sent hlut í félag­inu.

Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna keypti fyrir rúm­lega 48 millj­ónir króna í Brimi í ágúst en fyrir tæp­lega 376 millj­ónir króna í sept­em­ber. Hann á nú 10,8 pró­sent hlut í Brimi.

Auk þess­ara tveggja stóru sjóða á Birta líf­eyr­is­sjóður 2,8 pró­sent hlut í Brimi og tveir aðrir líf­eyr­is­sjóðir, Söfn­un­ar­sjóður líf­eyr­is­rétt­inda sem á 1,6 pró­sent og Almenni líf­eyr­is­sjóð­ur­inn sem á 0,7 pró­sent, eru á meðal 20 stærstu hlut­hafa Brim. Sam­an­lagt eiga líf­eyr­is­sjóðir lands­ins því nú að minnsta kosti 34,3 pró­sent hlut í Brim­i, en ein­ungis er birtur listi yfir þá 20 hlut­hafa sem eiga mest í skráðu félagi hverju sinni. Í til­felli Brims eiga 20 stærstu 91,9 pró­sent alls hluta­fjár.

[adspot]Langstærsti eig­andi þess félags er þó enn Útgerð­­­­­­­ar­­­­­­­fé­lag Reykja­vík­­­­­­­­­­­­­ur, sem á 43,97 pró­­­­­­­sent hlut í Brim beint og í gegnum dótt­­­­­­­ur­­­­­­­fé­lag sitt RE-13 ehf. Það félag er að upp­­­i­­­­­stöðu í eigu Guð­­­­mundar Krist­jáns­­­­son­­­­ar.

Auk þess eiga félögin KG Fisk­verkun og Stekkja­sal­ir, í eigu Hjálm­­ars Krist­jáns­­sonar bróður Guð­­mundar og sona hans, 5,9 pró­­sent hlut í Brimi og félagið á 1,6 pró­­sent hlut í sjálfu sér. Bræð­­urnir halda því á 49,9 pró­­sent hlut í útgerð­­ar­ris­­anum og geta saman myndað meiri­hluta í honum ef atkvæða­vægi eigin hlutar Brims er dregið frá.

Brim hagn­að­ist um 6,9 millj­­arða króna á fyrstu sex mán­uðum þessa árs. Hagn­aður félags­­ins var 113 pró­­sent meiri en á sama tíma­bili í fyrra þegar hann er reikn­aður í evr­­um, upp­­­gjör­s­­mynt Brim­­s.

Tekjur Brims á fyrri helm­ingi árs­ins 2021 voru 34,3 millj­­arðar króna og eigið fé félags­­ins 58,6 millj­­arðar króna í lok júní síð­­ast­lið­ins. Eig­in­fjár­­hlut­­fallið var 50,4 pró­­sent um mitt þetta ár. Tekjur Brims á fyrri helm­ingi árs­ins 2021 voru 34,3 millj­­arðar króna og eigið fé félags­­ins 58,6 millj­­arðar króna í lok júní síð­­ast­lið­ins. Eig­in­fjár­­hlut­­fallið var 50,4 pró­­sent um mitt þetta ár.

Hluta­bréfa­verð í Brimi hefur lækkað um 15 pró­sent síð­ast­lið­inn mánuð. Mark­aðsvirði félags­ins nú er um 157 millj­arðar króna, sem er 26 millj­örðum krónum minna en það var fyrir rúmum mán­uði síðan. Það er þó enn rúm­lega 80 millj­örðum krónum meira en það var seint í sept­em­ber 2021.

Gildi orðinn þriðji stærsti eigandi Síldarvinnslunnar

Líf­eyr­is­sjóð­irnir hafa líka verið að byggja upp stærri stöður í Síld­ar­vinnsl­unni, en hún var skráð á markað í fyrra. Í ágúst­mán­uði keypti Gildi líf­eyr­is­sjóður hluta­bréf í útgerð­ar­fé­lag­inu fyrir tæp­lega 1,3 millj­arða króna og í síð­asta mán­uði bætti sjóð­ur­inn við bréfum fyrir 788 millj­ónir króna. Hann á nú 11,2 pró­sent hlut í Síld­ar­vinnsl­unni. Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna bætti sömu­leiðis við sig í síð­asta mán­uði og keypti hluti fyrir alls 162 millj­ónir króna.

[adspot]Þessi kaup koma til við­bótar því að líf­eyr­is­sjóður banka­manna keypti hluti fyrir 575 millj­ónir króna í ágúst­mán­uðin, og á nú 0,3 pró­sent, og líf­eyr­is­sjóður starfs­manna Reykja­vík­ur­borgar keypti 0,2 pró­sent hlut þá fyrir rúm­lega hálfan millj­arð króna.

Alls eiga þeir líf­eyr­is­sjóðir sem eru á meðal 20 stærstu eig­enda Síld­ar­vinnsl­unnar nú beint 21,5 pró­sent hlut í Sílda­vinnsl­unni. Í byrjun ágúst áttu slíkir 19,8 pró­sent hlut og hafa því bætt við sig 1,7 pró­sentu­stigum á tveimur mán­uðum. Auk ofan­greindra eru Stapi, Festa, Almenni líf­eyr­is­sjóð­ur­inn, Brú og líf­eyr­is­sjóður Vest­manna­eyja eru einnig á meðal stærstu hlut­hafa.

Auk þess eiga líf­eyr­is­sjóðir óbeina hluti í gegnum sjóð­stýr­inga­fyr­ir­tæki sem keypt hafa hluti í útgerð­ar­ris­unum tveim­ur.

Stærstu eig­endur Síld­­­­­­ar­vinnsl­unnar eru Sam­herji (32,6 pró­sent) og félagið Kjálka­­­­­­nes 17,4 pró­sent), sem er í eigu sömu ein­stak­l­inga og eiga útgerð­ina Gjögur frá Gren­i­vík. Þar er meðal ann­­­­­­ars um að ræða Björgólf Jóhanns­­­­­­son, sem var um tíma annar for­­­­­­stjóri Sam­herja, og fólks sem teng­ist honum fjöl­­­­­skyld­u­­­­­bönd­um, meðal ann­­­­ars syst­k­ini hans. Þá á Kald­bak­­­­­­­­ur, félag í eigu Sam­herja, 15 pró­­­­­­­­sent hlut í öðru félagi, Eign­­­­­­ar­halds­­­­­­­­­­­fé­lag­inu Snæfugli, sem á 3,8 pró­sent hlut í Síld­­­­­­­­ar­vinnsl­unni. Á meðal ann­­­­­­arra hlut­hafa í Snæfugli er Björgólf­­­­­­ur. Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Sam­herja, er stjórn­ar­for­maður Síld­ar­vinnsl­unn­ar.

Þá á félagið Hraun­lón, í eigu Gunn­þórs Ingva­son­ar, Axels Ísaks­sonar og Jóns Más Jóns­son­ar, sem allir eiga sæti í fram­kvæmda­stjórn Síld­ar­vinnsl­unn­ar, um eitt pró­sent hlut.

Sam­keppn­is­eft­ir­litið telur vís­bend­ingar um að þessir aðil­­­ar, Síld­­­­­­ar­vinnslan, Sam­herji og Gjög­­­­­­ur, eigi mög­u­­­lega að telj­­­ast tengdir í skiln­ingi laga. Þetta kom fram í ákvörðun sem eft­ir­litið birti í byrjun árs 2021. Þeir héldu sam­tals á 22,14 pró­­­­­sent af öllum úthlut­uðum kvóta í nóv­­­­em­ber í fyrra.

Sam­an­lagður eign­ar­hlutur þess­ara aðila, sem Sam­keppn­is­eft­ir­litið telur vís­bend­ingar um að séu tengd­ir, er því 54,8 pró­sent. Eft­ir­lit­inu var nýverið falið að kort­leggja stjórn­unar- og eigna­tengsl í sjáv­ar­út­vegi.

Síld­­ar­vinnslan birti upp­­­gjör sitt fyrir fyrri hluta árs­ins 2022 í ágúst­mán­uði. Þar kom fram að hagn­aður félags­­ins hafi verið 6,5 millj­­arðar króna á fyrstu sex mán­uðum árs­ins, ef miðað er við gengi Banda­­ríkja­dals í dag, en útgerðin gerir upp í þeim gjald­miðli.

Eigið fé Síld­­ar­vinnsl­unnar var 61,7 millj­­arðar króna um mitt þetta ár. Verð­­mætasta bók­­færðu eignir félags­­ins eru afla­heim­ildir sem eru sagðar 37,7 millj­­arða króna virð­i.

Hluta­bréfa­verð í Síld­ar­vinnsl­unni lækk­aði um 7,3 pró­sent síð­ast­lið­inn mánuð. Frá því seint í sept­em­ber og þangað til snemma í síð­asta mán­uði hækk­aði það hins vegar um rúm­lega 85 millj­arða króna, eða um 95 millj­arða króna. Mark­aðsvirði félags­ins í dag er 195 millj­arðar króna, sem er 16 millj­örðum króna lægra en fyrir mán­uði síðan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kauphöllin

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár