Hlutabréfamarkaðurinn stöðvaður vegna tæknilegra vandræða

Tækni­legir örð­ug­leikar ollu því að Kaup­höllin birti rangt dagsloka­verð fyrir dag­inn í gær. Kaup­höllin biðst vel­virð­ingar á mis­tök­unum og seg­ist líta þetta mjög alvar­legum augum.

Kaup­höllin birti rangt dagsloka­verð á hluta­bréfum skráðra fyr­ir­tækja eftir gær­dag­inn vegna tækni­legra örð­ug­leika. Enn eru dags­breyt­ing­arnar á vef Keld­unnar rangar, en þær miða við dagsloka­verð fyr­ir­tækj­anna á mið­viku­dag­inn.

Vandræði í dreifingu markaðsgagna

Nasdaq Iceland greindi frá örð­ug­leik­unum í til­kyn­inngu til fjöl­miðla í morgun, en þar kom fram rétt dagsloka­verð fyr­ir­tækj­anna í gær. Kristín Jóhanns­dóttir, sam­skipta­stjóri hjá Kaup­höll­inni, sagði í sam­tali við Kjarnann að vand­ræði hafi komið upp við dreif­ingu mark­aðs­gagna í gegnum upp­lýs­inga­veitu­kerfi sem íslenski mark­að­ur­inn styðst við, sem hafði áhrif á mark­að­inn og kaup­hall­ar­að­ila.

Fyrir vikið hafi mark­aðnum verið lokað á undan áætlun í gær og ákveðið var að fella niður öll við­skipti frá því vanda­málið kom upp, sem var kl. 14:48. Kristín segir þó að málið sé leyst og að mark­að­ur­inn hafi opnað með eðli­legum hætti í morgun.

Aðspurð hvort loka hafi þurft mark­aðnum áður vegna tækni­legra örð­ug­leika segir hún að það sé sem betur fer frekar sjald­gæft. Þó hafi slíkt gerst, en það kom síð­ast fyrir í nóv­em­ber 2019. „Hafandi sagt það, þá lítum við alltaf á svona atburð mjög alvar­legum augum og biðj­umst vel­firð­ingar á þessu,“ bætir hún við.

Græn Kauphöll í stað rauðrar

Flest fyr­ir­tæki eru rauð á vef Keld­unnar, sem gefur til kynna að virði þeirra hafi lækkað í dag. Þessar tölur miða hins vegar við dagsloka­gengi fyr­ir­tækj­anna í á mið­viku­dag­inn, áður en mark­aðir hrundu í kjöl­far inn­rásar Rússa inn í Úkraínu. Ef miðað væri við rétta dagsloka­gengi gær­dags­ins væru öll fyr­ir­tæki græn þessa stund­ina, þar sem þau hækk­uðu öll í verði frá því í gær.

Verð­hækk­unin hefur verið mest hjá Brim, en hún nam rúm­lega ell­efu pró­sentum í dag, ef miðað er við rétt dagsloka­gengi. Virði bréfa í Icelandair hækk­aði einnig um sjö pró­sent í dag, en bréf fyr­ir­tæk­is­ins eru tæpum þremur pró­sentum ódýr­ari en þau voru við lokun mark­aða á mið­viku­dag­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kauphöllin

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár