Hlutabréfaeign almennings hefur fjórfaldast frá 2019

Fjöldi ein­stak­linga sem eiga hluta­bréf er nú fjórum sinnum meiri en hann var í árs­lok 2019. Hins vegar er hann enn langt frá því að vera sá sami og hann var á árunum fyrir hrun.

Um það bil 32 þús­und ein­stak­lingar áttu skráð hluta­bréf á Nasdaq Iceland fyrir viku síðan, eða um 9 pró­sent af heildar­í­búa­fjölda Íslands. Í lok árs 2019 áttu ein­ungis 8 þús­und ein­stak­lingar hluta­bréf og hafði því þátt­taka almenn­ings á hluta­bréfa­mark­aði fjór­fald­ast á innan við tveimur árum.

Þetta kemur fram í Facebook-færslu Nasdaq Iceland sem birt var í gær. Taln­ingin á fjölda ein­stak­linga sem eiga hluta­bréf var gerð þann 23. júní, en síðan þá hafa tvö hluta­fjár­út­boð átt sér stað í Kaup­höll­inni, ann­ars vegar í flug­fé­lag­inu PLAY og hins vegar í tölvu­leikja­fyr­ir­tæk­inu Solid Clouds. Nasdaq Iceland sagði í færslu sinni að áhuga­vert yrði að sjá hvað ger­ist í kjöl­far þess­ara útboða.

Viðbúið að fyrirtækjum muni fjölga á næstunni

Eggert Aðal­steins­son, sér­fræð­ingur hjá Kviku eign­ar­stýr­ingu, skrif­aði um hluta­bréfa­mark­að­inn hér á landi í tíma­rit­inu Vís­bend­ingu fyrr í mán­uð­inum. Þar sagði hann að það myndi ekki koma á óvart ef skráð félög, sem verða 25 tals­ins þegar PLAY og Solid Clouds verða opnuð fyrir við­skipti, muni verða meira en 30 fyrir lok árs. Þó segir hann að langt sé í land að ná þeim fjölda skráðra fyr­ir­tækja sem sást í kringum síð­ustu alda­mót, en þá voru þau flest 75 tals­ins.

Fjölgaði um 11 þúsund á síðustu vikum

Eggert sagði einnig að góð ávöxtun á hluta­bréfa­mark­aði und­an­farna mán­uði hafi vafa­laust aukið áhuga og traust fjár­festa á skráðum hluta­bréfum. Í byrjun mán­að­ar­ins, fyrir hluta­fjár­út­boð Íslands­banka, áttu 21 þús­und ein­stak­lingar hluta­bréf, sam­kvæmt við­tali Magnúsar Harð­ar­sonar, for­stjóra Kaup­hall­ar­innar í Dagmálum á Morg­un­blað­inu. Því hefur ein­stak­lingum sem eiga hluta­bréf fjölgað um 11 þús­und á einum mán­uði.

Töluvert minna en fyrir hrun

Hins vegar er hluta­bréfa­eign almenn­ings enn langt frá því að vera svipuð og hún var á árunum fyrir hrun. Samkvæmt færslu Nasdaq Iceland áttu vel yfir 50 þús­und ein­stak­lingar hluta­bréf á árunum 2006 og 2007, en sá fjöldi hafði svo minnkað niður í 40 þús­und árið 2008. Á árunum 2010-2019 var svo fjöldi ein­stak­linga sem áttu hluta­bréf undir tíu þús­und.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kauphöllin

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár