Metávöxtun hjá íslenskum hlutabréfasjóðum

Samhliða sögu­legri hækkun hluta­bréfa­verðs hér á landi hefur 12 mán­aða ávöxtum 13 íslenskra hluta­bréfa­sjóða verið með mesta móti. Virði tveggja sjóð­anna hefur meira en tvö­fald­ast.

Að með­al­tali hefur ávöxtun íslenskra hluta­bréfa­sjóða numið 74 pró­sentum á síð­ustu 12 mán­uðum. Ávöxtun allra sjóð­anna hefur verið nokkuð yfir 50 pró­sent, en tveir sjóðir hafa meira en tvö­fald­ast í virði.

Á vef Keld­unnar má sjá 12 mán­aða ávöxtun 13 íslenskra hluta­bréfa­sjóða. Sjóð­ur­inn Akta Stokkur var með mestu ávöxt­un­ina, en hún nam 117 pró­sentum. Ávöxt­unin var næst­hæst hjá hluta­bréfa­sjóðnum IS EQUUS frá Íslands­bréfum, en virði hans hefur hækkað um 110 pró­sent.

Á síð­ustu tólf mán­uðum hefur úrvals­vísi­tala Kaup­hall­ar­innar hækkað um 57 pró­sent, en líkt og sjá má á mynd hér að neðan hefur hún hækkað hratt og nær sam­fellt frá upp­hafi far­ald­urs­ins í mars í fyrra. Sam­bæri­legur vöxtur hefur ekki sést á hluta­bréfa­mörk­uðum hér­lendis eftir fjár­mála­hrunið.

Hækk­un­ina má að miklu leyti rekja til vaxta­lækk­ana Seðla­bank­ans í byrjun far­ald­urs­ins. Með þeim jókst hvat­inn til að fjár­festa í hluta­bréfum, ann­ars vegar vegna þess að lán­töku­kostn­aður hafði minnkað og hins vegar vegna þess að spari­fjár­eig­endur þyrftu að ráð­ast í áhættu­sam­ari fjár­fest­ingar til að við­halda sömu ávöxtun á fjár­magn­inu sínu.

Sama þróun hefur átt sér stað á öðrum Vest­ur­löndum, þar sem rík­is­stjórnir og seðla­bankar hafa gripið til marg­vís­legra aðgerða sem miða að því að auka magn lausa­fjár í umferð til þess að sporna gegn nei­kvæðum áhrifum far­ald­urs­ins á fjár­mála­kerfið. Á síð­ustu 12 mán­uðum hefur S&P 500 hluta­bréfa­vísi­talan í Banda­ríkj­unum hækkað um þriðj­ung, en svip­aða hækkun má einnig sjá hjá öðrum hluta­bréfa­vísi­tölum um allan heim.

Allir íslensku hluta­bréfa­sjóð­irnir hafa skilað hærri ávöxtun en úrvals­vísi­talan á síð­ustu tólf mán­uðum. Sjóð­ur­inn Stefnir ÍS-15 skil­aði minnstu ávöxt­un­ina, en hún nam 58 pró­sentum á árs­grund­velli.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kauphöllin

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár