Kauphöllin eldrauð – evrópskir fjárfestar óttast innrás

Nær öll skráðu félögin í Kaup­höll­inni lækk­uðu í verði skömmu eftir opnun mark­aða í morgun. Hluta­bréfa­verð í Evrópu og Asíu hefur einnig hrunið eftir því sem ótt­inn um inn­rás Rússa í Úkraínu hefur auk­ist og olíu­verð hefur hækkað.

Hluta­bréfa­verð allra Kaup­hall­ar­fé­lag­anna, fyrir utan fast­eigna­fé­lag­anna Reita og Eikar, lækk­aði á fyrsta klukku­tím­anum eftir að hluta­bréfa­mark­að­ur­inn opn­að­ist hér á landi í morgun. Virði Icelandair hefur lækkað mest, en bréf í félag­inu hafa hrunið um rúm­lega fimm pró­sent.

Sama þróun hefur átt sér stað á hluta­bréfa­mörk­uðum í Evrópu og Asíu. Samkvæmt frétt Financial Times eru fjár­festar farnir að ótt­ast hugs­an­lega inn­rás Rússa í Úkraínu, eftir að Olaf Scholz, kansl­ari Þýska­lands, lýsti því yfir að hann ætl­aði til Moskvu til að biðja Vladímir Pútín Rúss­lands­for­seta að ráð­ast ekki inn í landið.

Forseti Banda­ríkj­anna, Joe Biden, ræddi einnig við rík­is­stjórn Úkraínu í gær­kvöldi, en þar sagði hann að stjórn­völd í Washington myndu bregð­ast „fljótt og harka­lega“ við hvers kyns hern­að­ar­að­gerðum Rússa.

Samhliða auk­inni hættu á inn­rás heldur orku­verð á heims­vísu áfram að hækka. Hrá­ol­íu­verð hefur hækkað um 1,8 pró­sent í dag, en sam­kvæmt Financial Times hefur það ekki verið hærra síðan í sept­em­ber árið 2014. Verð á jarð­gasi í Evrópu tók enn hærra stökk á sama tíma, en það er nú 12 pró­sentum hærra.

Mikil verð­lækkun átti sér einnig stað á Wall Street hluta­bréfa­mark­aðnum í New York síð­asta föstu­dag vegna ótta við inn­rás í Úkraínu. Þar lækk­aði hluta­bréfa­vísi­talan S&P 500 um tæp tvö pró­sent. en Nasdaq-vísi­talan, sem inni­heldur fleiri tækni­fyr­ir­tæki, lækk­aði um tæp þrjú pró­sent.

Líkt og Kjarninn fjall­aði um í gær um hafa tækni­fyr­ir­tæki og önnur fyr­ir­tæki sem hækk­uðu skarpt í kjöl­far far­ald­urs­ins þurft að þola miklar verð­lækk­anir á hluta­bréfa­mörk­uðum á síð­ustu vikum. Sum þeirra hafa lent í lausa­fjár­vanda vegna ástands­ins, þar sem erfitt hefur reynst að fjár­magna sig með nýju hlutafé.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kauphöllin

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár