Eignir hlutabréfasjóða nær tvöfölduðust á einu ári

Mark­aðsvirði heild­ar­eigna íslenskra hluta­bréfa­sjóða hefur mælst í kringum 140 til 160 millj­arða króna síð­asta haust. Þetta er um tvö­falt meira en virði þeirra á haust­mán­uðum 2020.

Frá skráningu Íslandsbanka í Kauphöllinni í sumar.
Frá skrán­ingu Íslands­banka í Kaup­höll­inni í sumar. Mynd: Nasdaq Iceland

Eignir íslenskra hluta­bréfa­sjóða frá jan­úar til nóv­em­ber á síð­asta ári voru 85 pró­sent meiri þær voru á sama tíma­bili árið 2020, en heild­ar­virði þeirra nam alls 154 millj­örðum króna í nóv­em­ber. Þetta kemur fram í nýjum tölum Seðla­bank­ans um eignir verð­bréfa­sjóða.

Líkt og sjá má á mynd hér að neðan hefur 12 mán­aða aukn­ing í eignum sjóð­anna verið yfir 80 pró­sent nær allt árið. Til við­mið­unar juk­ust eignir sjóð­anna ein­ungis um 4 pró­sent á milli áranna 2019 og 2020, en þær rýrn­uðu um 3 pró­sent á milli áranna 2018 og 2019.

Eigna­aukn­ing­una má rekja til hærra hluta­bréfa­verðs, en úrvals­vísi­tala Kaup­hall­ar­innar hækk­aði um 60 pró­sent á milli nóv­em­ber­mán­aða 2020 og 2021.

Líkt og Kjarninn greindi frá í gær námu heild­ar­við­skipti með bréf alls 1.071 millj­arð króna og juk­ust þau um 77 pró­sent á milli ára. Við­skiptin á hluta­bréfa­mark­aðnum hafa ekki verið jafn umfangs­mikil frá hruni. [adspot]

Mest hækk­uðu hluta­bréf í Arion banka, en virði þeirra tvö­fald­að­ist á nýliðnu ári. Sömu­leiðis hækk­uðu bréf í Eim­skipa­fé­lag­inu um 95 pró­sent og bréf í Origo um 80,5 pró­sent. Minnst var hækk­unin í Marel, en virði bréfa fyr­ir­tæk­is­ins jókst um 10,9 pró­sent á tíma­bil­inu.

Á sama tíma hafa eignir skulda­bréfa­sjóða einnig auk­ist, en þó mun minna í pró­sentum talið. Í nóv­em­ber nam heild­ar­virði eigna í slíkum sjóðum um 510 millj­örðum króna, sem var fimmt­ungi meira en í sama mán­uði árið 2020. Eignir skulda­bréfa­sjóð­anna frá jan­úar til nóv­em­ber í fyrra voru að með­al­tali um 14 pró­sentum meiri en á sama tíma­bili í fyrra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kauphöllin

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár