Nýtt COVID-afbrigði orsakar svartan föstudag í Kauphöllinni

Fjár­festar um allan heim brugð­ust illa við fréttum af nýju afbrigði kór­ónu­veirunnar í morgun. Ekkert félag á aðal­mark­aði hækk­aði í virði við lokun mark­aða, en hluta­bréfa­verð í Icelandair og Play lækk­aði um rúm 4 pró­sent yfir dag­inn.

Úrvals­vísi­tala Kaup­hall­ar­innar lækk­aði um eitt og hálft pró­sent í dag í kjöl­far frétta af nýju smit­andi afbrigði af kór­ónu­veirunni. Mesta lækk­unin á aðal­mark­aði var hjá Icelandair, en virði bréfa í Play minnk­aði einnig tölu­vert á First North mark­aðnum.

Lækkun á heimsvísu

Líkt og greint er frá í frétt Financial Times hefur verð á hluta­bréfum lækkað á heims­vísu í dag, en S&P 500 hluta­bréfa­vísi­talan í Banda­ríkj­unum lækk­aði um 1,4 pró­sent í fyrstu við­skiptum. Samkvæmt miðl­inum má rekja lækk­un­ina til frétta af nýju afbrigði kór­ónu­veirunnar sem greind­ist fyrst í Botswana og veldur mik­illi aukn­ingu í Suður-Afríku.

Lækkunin var enn meiri á evr­ópskum hluta­bréfa­mörk­uðum, en hluta­bréfa­vísi­talan Stoxx 600 hafði lækkað um 2,8 pró­sent yfir dag­inn um síð­degið. Franska CAC 40 vísi­talan lækk­aði svo um 3,9 pró­sent, á meðan þýska Dax vísi­talan lækk­aði um 3,1 pró­sent.

Lækkunin var ein­stak­lega mikil á meðal félaga tengd flug­geir­anum, en hún nam 10 pró­sentum hjá þýska flug­fé­lag­inu Luft­hansa og flug­véla­fram­leið­and­anum Airbus. Aftur á móti hækk­aði hluta­bréf lyfja­fyr­ir­tækja tölu­vert, en virði bólu­efna­fram­leið­and­ans Moderna er nú 16 pró­sentum hærra en það var í gær. Sömu­leiðis hækk­aði hluta­bréfa­verð Pfizer um 6 pró­sent.

Svipuð lækkun hjá Play og Icelandair

Hér­lendis var lækk­unin líka mest á meðal flug­fé­laga, en skömmu eftir að frétt­irnar bár­ust fór hluta­bréfa­verð Icelandair niður um 11 pró­sent. Þegar mark­aðir lok­uðu síð­degis í dag hafði verðið hins vegar hækkað nokkuð aftur, en heild­ar­lækkun á virði bréf­anna yfir dag­inn nam 4,73 pró­sentum. Alls nam heild­ar­virði við­skipt­anna með bréf í félag­inu 419 millj­ónum króna.

Lækkunin var svipuð hjá Play á First North mark­aðnum, en hluta­bréf í flug­fé­lag­inu eru nú 4,42 pró­sentum ódýr­ari en þau voru við lokun mark­aða í gær. Heild­ar­virði við­skipta með bréfum félags­ins nam 48 millj­ónum króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kauphöllin

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár