Enn engin ákvörðun tekin um rannsókn á yfirráðum Samherja yfir Síldarvinnslunni

Sam­keppn­is­yf­ir­völd þurfa að sam­þykkja kaup Síld­ar­vinnsl­unnar á Vísi. Eft­ir­litið hefur þegar birt frum­mat um að Samherji og tengdir aðilar séu mögu­lega með yfir­ráð yfir útgerð­ar­ris­anum. Sam­þjöppun í íslenskum sjáv­ar­út­vegi er að aukast hratt.

Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, er stjórnarformaður Síldarvinnslunnar. Samherji er langstærsti einstaki eigandi hennar.
Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja, er stjórn­ar­for­maður Síld­ar­vinnsl­unnar. Samherji er langstærsti ein­staki eig­andi hennar. Mynd: Skjáskot/Samherji

Sam­keppn­is­eft­ir­litið hefur enn ekki tekið ákvörðun um hvort ráð­ist verði í form­lega rann­sókn á mögu­legum yfir­ráðum Samherja og tengdra félaga yfir Síld­ar­vinnsl­unni og sam­starfi þeirra á milli.

Eft­ir­litið birti nið­ur­stöðu frum­mats á mál­inu í febr­úar 2021 þar sem nið­ur­staðan var að vís­bend­ingar væru um slíkt yfir­ráð. Í kjöl­farið var kallað eftir frek­ari upp­lýs­ingum og sjón­ar­miðum frá aðilum og fylgst með eign­ar­halds­breyt­ingum sem urðu í tengslum við skrán­ingu Síld­ar­vinnsl­unnar á markað, að sögn Páls Gunnars Páls­sonar, for­stjóra Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins. „Hins vegar hefur ekki verið tekin ákvörðun um frek­ari form­lega rann­sókn sem þú spyrð um.“

Stærstu eig­endur Síld­­ar­vinnsl­unnar eru Sam­herji og félagið Kjálka­­nes, sem er í eigu sömu ein­stak­l­inga og eiga útgerð­ina Gjögur frá Gren­i­vík. Þar er meðal ann­­ars um að ræða Björgólf Jóhanns­­son, sem var um tíma annar for­­stjóri Sam­herja, og fólks sem teng­ist honum fjöl­skyldu­bönd­um, meðal ann­ars systk­ini hans. Auk þess á Kald­bak­­­­ur, félag í eigu Sam­herja, 15 pró­­­­sent hlut í öðru félagi, Eign­­ar­halds­­­fé­lag­inu Snæfugli, sem á hlut í Síld­­­­ar­vinnsl­unni. Á meðal ann­­arra hlut­hafa í Snæfugli er Björgólf­­ur.

Að mati eft­ir­lits­ins voru veru­­leg tengsl milli stórra hlut­hafa í Síld­­ar­vinnsl­unni og þrír af fimm stjórn­­­ar­­mönnum í Síld­­ar­vinnsl­unni á þeim tíma voru skip­aðir af eða tengdir Sam­herja og Kjálka­­nesi. Einn þeirra er Þor­­steinn Már Bald­vins­­son, for­­stjóri Sam­herja, sem er stjórn­­­ar­­for­­maður Síld­­ar­vinnsl­unn­­ar.

Skráð á markað en halda enn á meira en helming

Frá því að frummatið var birt í ákvörðun vegna sam­runa dótt­ur­fé­lags Síld­ar­vinnsl­unnar og útgerð­ar­fé­lags­ins Bergs hafa þær vend­ingar átt sér stað að Síld­ar­vinnslan var skráð á mark­að. Það gerð­ist í maí í fyrra.

[adspot]Þá seldu stærstu hlut­haf­arnir í Síld­ar­vinnsl­unni 29,3 pró­sent hlut fyrir 29,7 millj­arða króna. Mest seldu Sam­herji og Kjálka­­nes. Hvort félag fyrir sig seldi fyrir 12,2 millj­arða króna en Snæ­fugl seldi einnig fyrir um millj­arð króna. Kjálka­nes hefur síðan selt enn stærri hlut fyrir um tvo millj­arða króna og á nú 17,4 pró­sent eign­ar­hlut.

Kjarninn greindi frá því fyrir skemmstu að skrán­ing Síld­ar­vinnsl­unnar hefði haft gríð­ar­lega jákvæð áhrif á efna­hag Kjálka­ness, sem átti 25,5 millj­arða króna í eigið fé um síð­ustu ára­mót og greiddi hlut­höfum sínum tvo millj­arða króna í arð vegna frammi­stöðu síð­asta árs.

Sam­herji er áfram stærsti eig­andi Síld­­ar­vinnsl­unnar þrátt fyrir að selja ofan­­greindan hlut í henni með 32,6 pró­­sent eign­­ar­hlut. Þor­­steinn Már er enn stjórn­­­ar­­for­­maður Síld­­ar­vinnsl­unn­­ar. Snæ­fugl á svo 3,8 pró­sent hlut þannig að þessir þrjú félög, sem Sam­keppn­is­eft­ir­litið taldi vera með yfir­ráð í Síld­ar­vinnsl­unni, eiga enn meira en helm­ing alls útgefnis hluta­fjár í Síld­ar­vinnsl­unni. Aðrir stórir eig­endur eru Sam­vinnu­fé­lag útgerð­ar­manna á Nes­kaups­stað (10,97 pró­sent) og Gildi líf­eyr­is­sjóður (10,2 pró­sent).

Samherji hefur ekki birt árs­reikn­ing fyrir árið 2021.

Síldarvinnslan eyðir tugum milljarða á einum mánuði

Á sunnu­dag fékk Sam­keppn­is­eft­ir­litið svo í hend­urnar nýtt verk­efni tengt Síld­ar­vinnsl­unni, þegar til­kynnt var að hún hefði keypt útgerð­ar­fé­lagið Vísi í Grinda­vík á 31 millj­arð króna. Hluti af kaup­verð­inu er greiddur með nýju hlutafé í Síld­ar­vinnsl­unni og því ætti sam­eig­in­legur hlutur Samherja, Gjögurs og og Snæfugls farið niður fyrir helm­ing gangi áformin eftir.

Kaupin eru háð sam­þykki Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins, því að áreið­an­leika­könnun skili full­nægj­andi nið­ur­stöðu og að hlut­hafa­fundur Síld­ar­vinnsl­unnar sam­þykki kaup­in. Í til­kynn­ingu til Kaup­hallar Íslands kemur fram að höf­uð­stöðvar bol­fisk­vinnslu Síld­ar­vinnsl­unnar verði í Grinda­vík gangi áformin eft­ir.

Þetta eru önnur risa­við­skipti Síld­ar­vinnsl­unnar á skömmum tíma. Fyrir mán­uði síðan var til­kynnt um kaup á 34,2 pró­sent hlut í norska lax­eld­is­fé­lag­inu Arctic Fish Holding AS fyrir um 13,7 millj­arða króna. Það félag á allt hlutafé í Arctic Fish ehf. sem er eitt af stærstu lax­eld­is­fyr­ir­tækjum á Íslandi og rekur eld­is­stöðvar á Vest­fjörðum þar sem félagið er með rúm­lega 27 þús­und tonna leyfi fyrir eldi í sjó.

Fara yfir lög­legt kvóta­þak

Bæði Síld­ar­vinnslan og Vísir eru risa­stór útgerð­ar­fyr­ir­tæki á íslenskan mæli­kvarða. Það fyrr­nefnda var skráð á markað í fyrra, velti rúm­lega 30 millj­örðum króna á árinu 2021 og hagn­að­ist um ell­efu millj­arða króna. Því er sá hluti sem Síld­ar­vinnslan greiðir í reiðufé fyrir Vísi, sex millj­arðar króna, um 55 pró­sent af hagn­aði eins árs í rekstri Síld­ar­vinnsl­unn­ar.

Vísir velti um tíu millj­örðum króna í fyrra og hagn­að­ist um lið­lega 800 millj­ónir króna.

[adspot]Verði þessi við­skipti stað­fest af hlut­hafa­fundi Síld­ar­vinnsl­unnar hf. og Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu munu núver­andi fisk­veiði­heim­ildir Síld­ar­vinnsl­unnar fara yfir það tólf pró­sent hámark sem hver útgerð má sam­kvæmt lögum halda á af úthlut­uðum kvóta. Vísir hélt á 2,16 pró­sent af úthlut­uðum kvóta þegar greint var frá því hvernig hann skipt­ist á milli útgerða í nóv­em­ber í fyrra. Síld­ar­vinnslan var þá skráð með 9,41 pró­sent af úthlut­uðum kvóta.

Þegar við bæt­ist 1,03 pró­sent kvóti sem Bergur Huginn, sem Síld­ar­vinnslan keypti árið 2020, heldur á fer sam­stæðan yfir tólf pró­sent hámarkið.

Mikil sam­þjöppun í geir­anum

Mikil sam­­­­þjöppun hefur átt sér stað í sjá­v­­­­­ar­út­­­­­­­vegi á Íslandi á und­an­­­­förnum ára­tug­um, eftir að fram­­­­sal kvóta var gefið frjálst og sér­­­­stak­­­­lega eftir að heim­ilt var að veð­­­­setja afla­heim­ildir fyrir banka­lán­um, þótt útgerð­­­­ar­­­­fyr­ir­tækin eigi þær ekki í raun heldur þjóð­in. Slík heim­ild var veitt árið 1997.

Haustið 2020 héldu tíu stærstu útgerðir lands­ins með sam­an­lagt á 53 pró­­sent af úthlut­uðum kvóta, en Kjarn­inn greindi frá því í nóv­em­ber í fyrra að það hlut­­fall væri komið upp í rúm­­lega 67 pró­­sent. Sam­þjöpp­unin eykst enn við kaup Síld­ar­vinnsl­unnar á Vísi.

Þessir aðil­­ar: Síld­­ar­vinnslan, Sam­herji og Gjög­­ur, sem Sam­keppn­is­eft­ir­litið telur mög­u­­legt að séu tengd­ir, héldu sam­tals á 22,14 pró­sent af öllum úthlut­uðum kvóta í nóv­em­ber í fyrra. Nú bæt­ist 2,16 pró­sent kvóti Vísis við og sam­an­lagður úthlut­aður kvóti til Samherja og mögu­legra tengdra aðila fer upp í 24,3 pró­sent, eða næstum fjórð­ung allra úthlut­aðra afla­heim­ilda á Íslandi.

Sam­hliða þess­­ari þróun hefur hagn­aður sjá­v­­­ar­út­­­vegs­­fyr­ir­tækja auk­ist gríð­­ar­­lega. Hagn­aður geirans fyrir skatta og gjöld frá byrjun árs 2009 og út árið 2020 var alls um 665 millj­­­arðar króna á umræddu tíma­bili, sam­­kvæmt sjá­v­­­ar­út­­­vegs­­gagna­grunni Deloitte. Af þeirri upp­­­hæð fór undir 30 pró­­­sent til íslenskra rík­­­is­ins, eig­anda auð­lind­­­ar­inn­­­ar, í formi tekju­skatts, trygg­inga­gjalds og veið­i­­gjalda. En rúm­­­lega 70 pró­­­sent sat eftir hjá eig­endum fyr­ir­tækj­anna. Gera má ráð fyrir að hagn­aður geirans hafi verið gríð­ar­legur í fyrra og að hann verði mjög mik­ill í ár lík­a.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

efnhahagsmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár