Rúmlega 217 þúsund manns á íslenskum vinnumarkaði

Samkvæmt nýrri vinnu­mark­aðs­rann­sókn Hag­stof­unnar mæld­ist atvinnu­leysi 3,5 pró­sent í júní síð­ast­liðnum sem er mikil lækkun frá fyrri mán­uði en þá mæld­ist atvinnu­leysi 9,9 pró­sent.

Samkvæmt nýrri vinnu­mark­aðs­rann­sókn Hag­stof­unnar er áætlað að rúm­lega 217.200 (± 6.200) ein­stak­lingar hafi að jafn­aði verið á vinnu­mark­aði í júní 2020 sem jafn­gildir 83,1 pró­sent (±2,4) atvinnu­þát­töku. Af þeim sem eru á vinnu­mark­aði er áætlað að 209.500 (±4.900) hafi verið starf­andi en 7.700 (± 2.500) án vinnu og í atvinnu­leit. Áætlað hlut­fall atvinnu­lausra var því 3,5 pró­sent (±1,1).

Á vef Hag­stof­unnar segir að mælt atvinnu­leysi í júní hafi lækkað frá fyrri mán­uði þegar það mæld­ist 9,9 pró­sent. Það sé nú svipað því sem var fyrir ári síðan þegar það var 3,2 pró­sent en á milli áranna 2015 og 2018 hafi mælt atvinnu­leysi verið á bil­inu 2,2 til 3,1 pró­sent.

„Samkvæmt árs­tíð­ar­leið­réttum tölum var fjöldi atvinnu­lausra í júní 8.300 eða um 4,1% af vinnu­afl­inu. Árs­tíð­ar­leið­rétt atvinnu­þátt­taka var 80,1% og árs­tíð­ar­leið­rétt hlut­fall starf­andi 75,5%. Árs­tíð­ar­leið­rétt atvinnu­þátt­taka jókst um hálft pró­sentu­stig og hlut­fall starf­andi hækk­aði um 2,7 pró­sentu­stig borið saman við maí 2020,“ segir í til­kynn­ingu.

Sér­stak­lega er tekið fram að árs­tíð­ar­leið­réttar tölur geti verið óná­kvæmar við óvenju­legar aðstæður líkt og nú eru uppi. „Árs­tíð­ar­leið­réttar tölur gera ráð fyrir almennum árs­tíð­ar­bundnum sveiflum á vinnu­mark­aði, til dæmis auknum fjölda atvinnu­lausra að vori þegar náms­menn hefja leit að sum­ar­vinnu, en slíkar leið­rétt­ingar duga skammt þegar óvæntir og ein­stakir atburðir hafa áhrif á atvinnu­stöðu fólks. Því er mik­il­vægt að horfa frekar til óleið­réttra mæl­inga við mat á skamm­tíma­á­hrifum,“ segir í til­kynn­ingu.

Þá er einnig tekið fram að um bráða­birgða­tölur sé að ræða sem verði end­ur­skoð­aðar þegar árs­fjórð­ungi lýkur. Vís­bend­ingar séu um að ein­stak­lingar sem fengu greiddar atvinnu­leys­is­bætur í júní hafi verið ólík­legri til að svara spurn­inga­lista rann­sókn­ar­innar heldur en þeir sem ekki fengu greiddar slíkar bætur. Það kann að hafa leitt til van­mats á atvinnu­leysi í júní­mán­uði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

atvinnuleysi

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár