Þótt almennt atvinnuleysi hafi dregist saman fjölgar í hópi langtímaatvinnulausra

Þeir sem hafa verið atvinnu­lausir í meira en tólf mán­uði fjölg­aði um 288 í síð­asta mán­uði þrátt fyrir að stjórn­völd hafi ráð­ist í átak til að draga úr atvinnu­leysi hóps­ins. Atvinnu­leysi hjá þeim sem hafa verið án vinnu skemur en sex mán­uði dregst saman.

Almennt atvinnu­leysi minnk­aði um 0,6 pró­sentu­stig í síð­asta mán­uði og mælist nú 10,4 pró­sent. Samkvæmt því þá voru 20.003 ein­stak­lingar atvinnu­lausir að öllu leyti í lok apríl og þeim fækk­aði um 1.016 milli mán­aða. Til við­bótar voru 4.268 á hluta­bóta­leið­inni svoköll­uðu og því alls 24.271 atvinnu­lausir að öllu leyti eða hluta í lok apríl, eða 11,5 pró­sent vinnu­aflsins. Heild­ar­at­vinnu­leysi hefur ekki mælst minna frá því í októ­ber í fyrra en það mæld­ist 12,8 pró­sent í jan­úar.

Ástæða þess að sam­dráttur er nú í atvinnu­leysi er rak­inn til sér­stakra atvinnu­á­taka stjórn­valda, þar sem rík­is­sjóður borgar hluta launa þeirra sem eru ráðnir í störf, og hefð­bund­inna árs­tíða­sveiflna, en störfum fjölgar iðu­lega í aðdrag­anda sum­ars. Til marks um þetta voru gerðir 650 ráðn­ing­ar­samn­ingar í apríl í átak­inu „Hefjum störf“, sem stjórn­völd kynntu til leiks í mars.

Vinnu­mála­stofnun spáir því að almenna atvinnu­leysið fari undir tveggja stafa tölu nú í mái og verði á bil­inu 9,2 til 9,8 pró­sent.

Þetta má lesa út úr skýrslu Vinnu­mála­stofn­unar um vinnu­mark­að­inn á Íslandi í apríl sem birt var í síð­ustu viku.

Koma í veg fyrir að langtímaatvinnuleysi verði böl

Rík­is­stjórnin setti í mars af stað sér­stakt atvinnu­á­tak undir yfir­skrift­inni „Hefjum störf“. Mark­miðið var að skapa allt að 7.000 tíma­bundin störf hjá einka­fyr­ir­tækj­um, félaga­sam­tökum og hinu opin­bera. Áætl­aður kostn­aður við þessar aðgerðir eru 4,5-5 millj­arðar króna. Í átak­inu felst að hið opin­bera greiðir hluta af launum starfs­fólks sem fyr­ir­tæki ráða til sín.

Með aðgerð­unum voru svo­kall­aðir ráðn­ing­ar­styrkir víkk­aðir út þannig að lítil og með­al­stór fyr­ir­tæki, með undir 70 starfs­menn, geta nú sótt um ráðn­ing­ar­styrki til þess að ráða starfs­menn sem hafa verið atvinnu­lausir í meira en eitt ár. Þannig mynd­ast hvati fyrir fyr­ir­tæki til þess að ráða fólk til starfa sem hefur verið lengi án vinnu.

[adspot]Hverjum nýjum starfs­manni fylgir allt að 472 þús­und króna stuðn­ingur á mán­uði, auk 11,5 pró­sent fram­lags í líf­eyr­is­sjóð, í allt að sex mán­uði og getur fyr­ir­tækið ráðið eins marga starfs­menn og það þarf þangað til heildar starfs­manna­fjöldi hefur náð 70. Ráðn­ing­ar­tíma­bilið er sex mán­uðir á tíma­bil­inu frá apríl til des­em­ber 2021.

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra sagði við kynn­ingu á átak­inu að aðgerð­irnar væru ætl­aðar til að koma í veg fyrir að lang­tíma­at­vinnu­leysi verði böl í sam­fé­lag­inu. „„Þarna erum við að horfa sér­stak­lega á þau sem hafa verið lengi á atvinnu­leys­is­skrá, að það sé stuðlað að því með þessum skýru aðgerðum að þau kom­ist aftur út á vinnu­markað og verði hluti af þeirri nauð­syn­legu við­spyrnu sem þarf að verða í íslensku sam­fé­lagi.“

Alls 6.495 atvinnulausir í meira en ár

Þótt aðgerð­unum sé sér­stak­lega beint að því að reyna að koma lang­tíma­at­vinnu­lausum í vinnu þá hefur þeim sem hafa atvinnu­lausir í að minnsta kosti eitt ár haldið áfram að fjölga eftir að þær tóku gildi.

Alls höfðu 6.495 almennir atvinnu­leit­endur verið án atvinnu að öllu leyti í meira en 12 mán­uði í lok apríl, en voru 6.207 í mars­lok 2021. Þeim fjölg­aði því um 288 í síð­asta mán­uði. Frá lokum febr­ú­ar­mán­aðar hefur þeim fjölgað um 1.776 og frá apríl í fyrra um 4.102.

Það bætt­ist líka lít­il­lega við hóp­inn sem hefur verið atvinnu­laus í sex mán­uði eða lengur. Hann taldi 13.656 um síð­ustu mán­aða­mót, sem eru níu fleiri ein­stak­lingar en til­heyrðu honum í lok mars.

Sam­fylk­ingin kynnti á mið­viku­dagtil­lögur um að hækka atvinnu­leys­is­bætur, gera ráðn­ing­ar­styrki mark­viss­ari og bjóða upp á sér­staka styrki til lista­fólks til að halda við­burði um allt land til að sporna við atvinnu­leysi. Þar að auki vill flokk­ur­inn veita þeim sem hafa verið atvinnu­lausir tvö­faldan per­sónu­af­slátt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

atvinnuleysi

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár