Segja stærri aðgerðir á vinnumarkaði geta sparað ríkissjóði tugi milljarða

Sam­fylk­ingin kynnti nýjar til­lögur um vinnu­mark­aðsúr­ræði í dag sem flokk­ur­inn segir að gætu lækkað atvinnu­leysi og sparað rík­is­sjóði tugi millj­arða króna þegar fram í sækir.

Kristrún Frostadóttir, frambjóðandi Samfylkingarinnar í Reykjavík
Kristrún Frosta­dóttir, fram­bjóð­andi Sam­fylk­ing­ar­innar í Reykja­vík Mynd: Aðsend/Samfylkingin

Hægt væri að draga úr atvinnu­leysi og spara í rík­is­fjár­málum til lengri tíma ef rík­is­stjórnin myndi ráð­ast í stór­tækar aðgerðir á vinnu­mark­aði, að mati Sam­fylk­ing­ar­innar. Þessar aðgerðir fælu meðal ann­ars í sér hækkun atvinnu­leys­is­bóta, mark­viss­ari ráðn­ing­ar­styrki og sér­staka styrki til lista­fólks til að halda við­burði um allt land.

Þetta kom fram á blaða­manna­fundi Sam­fylk­ing­ar­innar í morgun þar sem til­lögur um ný úrræði gegn atvinnu­leysi voru kynntar. Glær­urnar af fund­inum má nálg­ast með því að smella hér.

Gætu sparað ríkissjóði allt að 50 milljarða

Samkvæmt Oddnýju Harð­ar­dóttur, þing­flokks­for­manni flokks­ins, kostar hver pró­senta af atvinnu­leysi rík­is­sjóð 6 millj­arða króna á ári. Aðgerð­irnar sem flokk­ur­inn kynnti myndu hins vegar kosta rík­is­sjóð 18 millj­arða og myndu þær því ekki hafa nei­kvæð áhrif á afkomu hins opin­bera ef atvinnu­leysi yrði pró­sentu­stigi lægra næstu þrjú árin vegna þess.

Kristrún Frosta­dóttir, hag­fræð­ingur og fram­bjóð­andi Sam­fylk­ing­ar­innar í Reykja­vík, sagði hins vegar að úrræðin gætu borgað sig upp á 1-2 árum, þar sem þau vinna hraðar á atvinnu­leys­inu. Á tíma­bil­inu 2021-2025 gæti rík­is­sjóður sparað allt að 50 millj­arða vegna verk­efn­is­ins ef atvinnu­leysi minnkar strax um 2 pró­sent vegna aðgerð­anna.

„Við viljum sjá nýjan tón sem tekur mið af raun­veru­legri dýnamík í rík­is­fjár­málum,“ bætti Kristrún við á fund­inum og ítrek­aði að mik­il­vægt væri að gera sér grein fyrir að kostn­aður hins opin­bera í dag gæti dregið úr kostn­aði þess í fram­tíð­inni svo um munar.

Hækkun bóta og stuðningur við listamenn

Sam­fylk­ingin lagði til hækkun atvinnu­leys­is­bóta upp í 95 pró­sent af lág­marks­tekju­trygg­ingu og leng­ingu tíma­bils þeirra í 12 mán­uði. Auk þess lagði hún til að ráðn­ing­ar­styrkir yrðu lengdir, og að úrræðið yrði útvíkkað svo það tæki einnig til þeirra sem hefðu verið vinnu­litlir síðan 2019.

Þar að auki vill flokk­ur­inn veita þeim sem hafa verið atvinnu­lausir tvö­faldan per­sónu­af­slátt, sem væri sam­kvæmt þeim ígildi aft­ur­virks tekju­falls­styrks fyrir heim­ilin. Flokk­ur­inn vill einnig fram­lengja tíma­bundna hækkun end­ur­greiðslna á rann­sóknar- og þró­un­ar­kostn­aði og setja 800 millj­ónir í Tækni­þró­un­ar­sjóð.

Þess utan lagði flokk­ur­inn til að ungt fólk og lista­menn yrðu styrktir sér­stak­lega einnig, en Kristrún sagði það vera þekkt fyr­ir­bæri í kreppum að störfin sem færu fyrst væru störfin sem ungt fólk vinnur. Styrkirnir fælu í sér lengri tíma­bil fyrir sum­ar­störf náms­manna og að þeim yrði tryggður réttur til atvinnu­leys­is­bóta í náms­hléum. Einnig yrði 250 millj­ónum króna varið í að styrkja lista­fólk til að halda við­burði um allt land.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár