Þeir sem hafa verið atvinnulausir í meira en hálft ár eru fleiri en allir sem búa á Akranesi

Þótt atvinnu­leysi hafi dreg­ist lít­il­lega saman í síð­asta mán­uði hélt þeim sem hafa verið án vinnu í lengri tíma en sex mán­uði áfram að fjölga. Sömu sögu er að segja af þeim sem hafa verið atvinnu­lausir í meira en ár.

Fjöldi þeirra sem hefur verið atvinnulaus í lengri tíma eykst mánuði til mánaðar á Íslandi.
Fjöldi þeirra sem hefur verið atvinnu­laus í lengri tíma eykst mán­uði til mán­aðar á Íslandi. Mynd: Pexels

Þeir sem hafa verið atvinnu­lausir að öllu leyti hér­lendis í meira en sex mán­uði voru 12.761 tals­ins um síð­ustu mán­aða­mót. Það fjölg­aði í hópnum um rúm­lega þús­und manns milli mán­aða og frá ára­mótum hefur fjöldin auk­ist um tæp­lega 1.900 manns.

Ef horft er rúm­lega eitt ár aftur í tím­ann, til byrjun jan­ú­ar­mán­aðar 2020, þá voru alls 3.820 manns á land­inu öllu sem höfðu verið án atvinnu í sex mán­uði eða lengur. Síðan þá hefur fjölgað í þeim hópi um 8.941 manns. Það eru rúm­lega eitt þús­und fleiri en búa á Akranesi og næstum tvisvar sinnum allur sá fjöldi sem býr á Sel­tjarn­ar­nesi.

Þetta kemur fram í við­bót­ar­upp­lýs­ingum sem Vinnu­mála­stofnun birtir um stöðu vinnu­mark­aðar á Íslandi í hverjum mán­uði.

[adspot]Þeim sem hafa verið atvinnu­lausir í meira en eitt ár voru 4.719 í lok síð­asta mán­aðar. Þeim hefur fjölgað um tæp­lega þrjú þús­und á rúmu ári.

Atvinnulausum fækkaði en langtímaatvinnulausum fjölgaði

Heild­ar­at­vinnu­leysi dróst saman í síð­asta mán­uði. Almennt atvinnu­leysi mæld­ist 11,4 pró­sent og lækk­aði um 0,2 pró­sentu­stig milli mán­aða. Ástæða þessa er rakin að mestu til þess að sam­komu­tak­mark­anir voru rýmkaðar í febr­úar sem leiddi til þess að fleiri voru ráðnir til starfa í veit­inga­þjón­ustu og ferða­þjón­ustu. Þá var einnig fjölgun í sjáv­ar­út­vegi, að öllum lík­indum í tengslum við loðnu­ver­tíð, sem nú er að mestu afstaðin.

Heild­ar­at­vinnu­leysið, þegar þeir sem nýta hluta­bóta­leið­ina eru með­taldir, mæld­ist 12,5 pró­sent. Alls fækk­aði þeim sem eru atvinnu­lausir að öllu leyti um 457 í þeim mán­uði. Það var í fyrsta sinn síðan því í maí í fyrra sem fjöldi atvinnu­lausra dróst saman milli mán­aða.

Hlutfall þeirra sem hafa verið atvinnu­lausir í meira en sex mán­uði, af heild­ar­fjölda atvinnu­lausra, hefur hins vegar ekki verið hærra síðan í ágúst 2012 enda fjölg­aði þeim í síð­asta mán­uði. Þá voru 63 pró­sent allra atvinnu­lausra búnir að vera án vinnu í að minnsta kosti sex mán­uði en það hlut­fall er nú 60 pró­sent. Heild­ar­fjöldi atvinnu­lausra var hins vegar lægri þá, eða 8.346 alls.

Ríkisstjórnin ræðst í átak

Rík­is­stjórnin kynnti atvinnu­á­tak undir yfir­skrift­inni „Hefjum störf“ síð­ast­lið­inn föstu­dag þegar Ásmundur Einar Daða­son félags- og barna­mála­ráð­herra, fór yfir inni­hald þess á blaða­manna­fundi ásamt Katrínu Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra. Mark­miðið er að skapa allt að 7.000 tíma­bundin störf hjá einka­fyr­ir­tækj­um, félaga­sam­tökum og hinu opin­bera. Áætl­aður kostn­aður við þessar aðgerðir er allt að fimm millj­arðar króna.

Að meg­in­uppi­stöðu snýst átakið um að víkka út svo­kall­aða ráðn­ing­ar­styrki, sem kynntir voru til leiks sem COVID-19 úrræði haustið 2020.

Lítil og með­al­stór fyr­ir­tæki, með undir 70 starfs­menn, munu geta sótt um ráðn­ing­ar­styrki til þess að ráða starfs­menn sem hafa verið atvinnu­lausir í meira en eitt ár. Það mynd­ast þannig hvati fyrir fyr­ir­tæki til þess að ráða fólk til starfa sem hefur verið lengi án vinnu, en sá hópur hefur farið ört vax­andi í COVID-krepp­unni. Hverjum nýjum starfs­manni mun fylgja allt að 472 þús­und króna stuðn­ingur á mán­uði, auk 11,5 pró­sent fram­lags í líf­eyr­is­sjóð, í allt að sex mán­uði og getur fyr­ir­tækið ráðið eins marga starfs­menn og það þarf þangað til heildar starfs­manna­fjöldi hefur náð 70. Ráðn­ing­ar­tíma­bilið er sex mán­uðir á tíma­bil­inu frá apríl til des­em­ber 2021.

Fyr­ir­tæki af öllum stærðum munu áfram geta fengið ráðn­ing­ar­styrk sem nemur grunnatvinnu­leys­is­bótum ef þau ráða starfs­menn sem hafa verið án vinnu í 30 daga eða leng­ur. Styrk­ur­inn með hverjum starfs­manni er til allt að sex mán­aða. Fyr­ir­tæki af öllum stærðum munu áfram geta fengið ráðn­ing­ar­styrk sem nemur grunnatvinnu­leys­is­bótum ef þau ráða starfs­menn sem hafa verið án vinnu í 30 daga eða leng­ur. Styrk­ur­inn með hverjum starfs­manni er til allt að sex mán­aða. Þetta úrræði er ekki nýtt heldur hefur staðið til boða frá því í fyrra­haust.

Sérstakar aðgerðir fyrir þá sem fullnýta bótarétt

Sér­stakar aðgerðir eru fyrir þá eru við það að full­nýta bóta­rétt sinn í atvinnu­leys­is­trygg­inga­kerf­inu.

[links]Vinnu­mála­stofnun greiðir ráðn­inga­styrk í allt að sex mán­uði, og er heim­ilt að lengja um aðra sex fyrir ein­stak­linga með skerta starfs­getu, vegna ráðn­ingu ein­stak­linga sem eru við það að ljúka bóta­rétti.

Stofn­un­inni er heim­ilt að greiða ráðn­ing­ar­styrki sem nema fullum launum sam­kvæmt kjara­samn­ingum að hámarki kr. 472.835 á mán­uði sem er hámark tekju­tengdra bóta auk 11,5% mót­fram­lags í líf­eyr­is­sjóð. Skil­yrði fyrir þessu er að ráð­inn sé ein­stak­lingur sem á sex mán­uði eða minna eftir af bóta­rétti.

Sveit­ar­fé­lögum er einnig heim­ilt að ráða til sín ein­stak­linga sem full­nýttu bóta­rétt sinn innan atvinnu­leys­is­trygg­ing­ar­kerf­is­ins á tíma­bil­inu 1. októ­ber. til 31. des­em­ber 2020.

Félaga­sam­tök geta fengið styrk fyrir tíma­bundna starfs­krafta

Félaga­sam­tökum sem rekin eru til almanna­heilla og án hagn­að­ar­sjón­ar­miða er gert kleift að stofna til tíma­bund­inna átaks­verk­efna í vor og sumar með ráðn­ing­ar­styrk sem nemur fullum launum sam­kvæmt kjara­samn­ingum að hámarki kr. 472.835 á mán­uði auk 11,5 pró­senta mót­fram­lags í líf­eyr­is­sjóð. Krafa er að þeir sem ráðnir eru til félaga­sam­taka hafi verið án atvinnu í meira en eitt ár.

Einnig verður greitt 25 pró­sent álag til þess að standa straum af kostn­aði við verk­efn­in, svo sem við land­vernd, við­hald göngu­stíga, land­hreins­un, gróð­ur­setn­ingu, íþróttir og afþr­ey­ingu fyrir börn og ung­linga og fleira.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

atvinnuleysi

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár