Tæplega tólf þúsund manns hafa verið án atvinnu í meira en hálft ár

Þeim sem hafa verið atvinnu­lausir í að minnsta kosti hálft ár hefur fjölgað um 200 pró­sent á einu ári. Þeim fjölg­aði um rúm­lega 900 í jan­úar. Alls eru 26.403 án atvinnu að öllu leyti eða hluta hér­lendis.

Mikill samdráttur í byggingaframkvæmdum vegna ferðaþjónustu, t.d. í tengslum við byggingu hótela, hefur vigtað inn í aukið atvinnuleysi.
Mikill sam­dráttur í bygg­inga­fram­kvæmdum vegna ferða­þjón­ustu, t.d. í tengslum við bygg­ingu hót­ela, hefur vigtað inn í aukið atvinnu­leysi. Mynd: Bára Huld Beck

Alls höfðu 11.780 manns verið án atvinnu í lengri tíma en sex mán­uði hér­lendis í lok jan­ú­ar­mán­aðar. Þeim fjölg­aði um 902 á milli mán­aða og hafa aldrei verið fleiri frá því að mæl­ingar Vinnu­mála­stofn­unar á atvinnu­leysi hófust. Í jan­úar 2020 höfðu 3.920 manns verið án atvinnu í að minnsta kosti sex mán­uði. Því hefur fjölgað um 200 pró­sent í þessum hópi á einu ári.

Af þeim sem voru atvinnu­lausir um síð­ustu mán­aða­mót höfðu 4.508 verið án atvinnu í meira en eitt ár, sem er aukn­ing um 155 pró­sent frá því í jan­úar í fyrra. Þeim sem hafa verið atvinnu­lausir í sex til tólf mán­uði hefur fjölgað um 240 pró­sent á einu ári.

Þetta má lesa út úr tölum sem Vinnu­mála­stofnun birti í nýlið­inni viku.

Alls voru 21.809 ein­stak­lingar atvinnu­lausir í almenna bóta­kerf­inu í lok jan­ú­ar­mán­aðar og 4.594 voru á hluta­bóta­leið­inni svoköll­uðu. Það þýðir að sam­tals voru 26.403 atvinnu­lausir að hluta eða öllu leyti um síð­ustu mán­aða­mót. Sam­an­lagt atvinnu­leysi í almenna bóta­kerf­inu og minnk­aða starfs­hlut­fall­inu var 12,8 pró­sent í jan­úar.

[adspot]Til sam­an­burðar náði atvinnu­leysi hlut­falls­legu hámarki snemma árs 2010 eftir banka­hrunið, þegar það var 9,3 pró­sent. Flestir ein­stak­lingar voru þá atvinnu­lausir í mars 2009, alls 16.822 tals­ins. Hluti þess erlenda vinnu­afls sem hafði streymt til Íslands í aðdrag­anda hruns­ins sneri hins vegar til baka þá og við það fækk­aði atvinnu­lausum umtals­vert. Nú eru um tíu þús­und fleiri án atvinnu að öllu leyti eða hluta en voru þegar mest var eftir banka­hrunið.

Atvinnuleysi á meðal erlendra orðið 26 prósent

Erlenda vinnu­aflið sem mann­aði störf á Íslandi í síð­asta góð­æri er ekki að fara aftur til upp­runa­landa sinna. Þvert á móti hefur erlendum rík­is­borg­urum á Íslandi fjölgað frá því að kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn skall á.

Alls voru 51.367 erlendir rík­is­borg­arar skráðir á Íslandi í byrjun des­em­ber 2020. Í lok síð­asta mán­aðar mæld­ist atvinnu­leysi á meðal þeirra um 24 pró­sent, enda 8.794 erlendir atvinnu­leit­endur án atvinnu, á meðan að almennt atvinnu­leysi í land­inu var 11,6 pró­sent. Að teknu til­liti til þeirra sem voru á hluta­bótum var heild­ar­at­vinnu­leysi erlendra rík­is­borg­ara nálægt 26 pró­sent. Rúm­lega 40 pró­sent allra sem voru atvinnu­lausir að öllu leyti voru því erlendir rík­is­borg­ar­ar.

Flestir erlendir rík­is­borg­arar á atvinnu­leys­is­skrá án minnk­aðs starfs­hlut­falls komu frá Póllandi eða 4.284 sem er tæpur helm­ingur allra erlendra rík­is­borg­ara á atvinnu­leys­is­skrá. Því næst koma Litháar, Lettar og Rúmenar en færri af öðrum þjóð­ernum.

Erfitt að láta enda ná saman

Kjarninn greindi í lið­inni viku frá nið­ur­stöðu könn­unar sem lögð var fyrir félaga í aðild­ar­fé­lögum Alþýðu­sam­bands Íslands (ASÍ) og BSRB í nóv­em­ber og des­em­ber 2020 þar sem staða launa­fólks var könn­uð.

[links]Könn­unin var gerð af Vörðu, rann­sókn­ar­stofnun vinnu­mark­að­ar­ins, sem ASÍ og BSB settu á fót í fyrra.

Þar kom fram að um fjórð­ungur launa­fólks á erfitt með að láta enda ná saman sem stendur og fimmt­ungur þess getur ekki mætt óvæntum útgjöld­um. Þeir sem eru atvinnu­lausir eiga erf­ið­ast með að láta enda ná sama og fleiri í hópi þeirra hafa þegið mat­ar- eða fjár­hags­að­stoð og líða efn­is­legan skort en í öðrum hóp­um.

Fjár­hags­staða inn­flytj­enda er verri en þeirra sem telj­ast til inn­fæddra Íslend­inga. Þeir eiga erf­ið­ara með að láta enda ná sam­an, líða frekar efn­is­legan skort en inn­fæddir og hafa þegið mat­ar- og/eða fjár­hags­að­stoð í meira mæli.

And­legt heilsu­far inn­flytj­enda mæld­ist líka verra en inn­fæddra en lík­am­legt heilsu­far þeirra betra. Þá sýndi könn­unin að atvinnu­lausir inn­flytj­endur sýni almennt meiri virkni og sveigj­an­leika en inn­fæddir og að það eigi sér­stak­lega við atvinnu­lausar kon­ur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

atvinnuleysi

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár