Almenna atvinnuleysið stefnir í að verða jafn mikið og eftir bankahrunið

Almennt atvinnu­leysið verður komið í 9,3 pró­sent í lok októ­ber gangi spá Vinnu­mála­stofn­unar eftir. Það yrði jafn mikið atvinnu­leysi og mest var snemma á árinu 2010. Heild­ar­at­vinnu­leysið, að hluta­bóta­leið­inni með­tal­inni, verður 10,2 pró­sent í lok októ­ber.

Eftir að ferðamönnum tók að hríðfækka hérlendis vegna kórónuveirufaraldursins hefur atvinnuleysi vaxið hratt.
Eftir að ferða­mönnum tók að hríð­fækka hér­lendis vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins hefur atvinnu­leysi vaxið hratt. Mynd: Bára Huld Beck

Sam­an­lagt atvinnu­leysi þeirra sem eru í almenna bóta­kerf­inu eða á hinni svoköll­uðu hluta­bóta­leið var 9,4 pró­sent í lok síð­asta mán­aðar. Það er umtals­verð aukn­ing frá mán­uð­inum á undan þegar það var 8,8 pró­sent og meira en spá Vinnu­mála­stofn­unar hafði gert ráð fyrir.

Búist er við því að atvinnu­lausi haldi áfram að vaxa næstu mán­uði. Spá Vinnu­mála­stofn­unar gerir ráð fyrir að það verði 9,6 pró­sent í lok þessa mán­aðar og 10,2 pró­sent í lok októ­ber. Mest fór heild­ar­at­vinnu­leysið upp í 17,8 pró­sent í apríl en 10,3 pró­sentu­stig voru þá vegna hluta­bóta­leið­ar­innar. Nýting á henni hefur dreg­ist veru­lega saman síðan þá.

Þetta kemur fram í nýrri vinnu­mark­aðs­skýrslu Vinnu­mála­stofn­unar sem birt var nýlega og sýnir stöðu mála á vinnu­mark­aði um síð­ustu mán­aða­mót.

[adspot]Almennt atvinnu­leysi var 8,5 pró­sent í lok ágúst og jókst úr 7,9 pró­sent mán­uði fyrr. Spáin gerir ráð fyrir því að það verði 9,3 pró­sent í lok októ­ber. Gangi hún eftir verður um hlut­falls­lega mesta almenna atvinnu­leysi sem mælst hefur á Íslandi frá því í febr­úar og mars 2010, þegar það náði hámarki eftir banka­hrunið.

Fjöldi þeirra sem var í minnk­uðu starfs­hlut­falli vegna hluta­bóta­leið­ar­úr­ræð­is­ins var sá sami og í júlí­lok, en atvinnu­leysi tengt þeirri leið var 0,9 pró­sent.

Flestir úr ferðaþjónustu

Alls voru 17.788 ein­stak­lingar atvinnu­lausir í almenna bóta­kerf­inu um síð­ustu mán­aða­mót og 3.483 á hluta­bóta­leið­inni. Þeim sem voru almenna bóta­kerf­inu fjölg­aði um 684 en þeim sem nýttu hluta­bóta­leið­ina fækk­aði um 328. Alls voru 21.271 manns sam­an­lagt atvinnu­lausir að öllu leyti eða að hluta.

Flestir þeirra sem eru að missa vinn­una störf­uðu áður í ferða­þjón­ustu­tengdum geir­um, eða 36 pró­sent. Atvinnu­leysið er áfram sem áður hlut­falls­lega lang­mest á Suð­ur­nesj­un­um, sem er afar háð ferða­þjón­ustu um atvinnu þar sem alþjóða­flug­völlur lands­ins er stað­settur þar. Alls mælist 18 pró­sent heild­ar­at­vinnu­leysi á svæð­inu en 16,9 pró­sent almennt atvinnu­leysi. Næst mest heild­ar­at­vinnu­leysi mælist á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, eða 9,9 pró­sent.

Rúmlega fimmti hver útlend­ingur atvinnulaus

Erlendir rík­­is­­borg­­arar léku lyk­il­hlut­verk í hag­­vaxt­­ar­­skeið­inu sem hófst árið 2011 og ómög­u­­legt hefði veið að manna öll þau störf sem sköp­uð­ust á tíma­bil­inu ef ekki hefði verið fyrir erlent vinn­u­afl. Frá miðju ári 2012 og fram til loka júní­mán­aðar fjölg­aði þeim úr 20.570 í 50.701 hér­lend­is, eða um yfir 30 þús­und. Af þeim eru um 75 pró­sent á vinnu­mark­að­i.

Rúm­lega fjórð­ungur erlends vinnu­afls hér­lendis á síð­asta ári starf­aði í ferða­þjón­ustu. Þessi hópur varð því sá fyrsti til missa vinn­una þegar mik­ill sam­dráttur varð í ferða­þjón­ustu sam­hliða kór­ónu­veiru­far­ald­in­um.

[links]Í skýrslu Vinnu­mála­stofn­unar kemur fram að heild­ar­at­vinnu­leysi erlendra rík­is­borg­ara hafi verið nálægt 20,7 pró­sent ágúst og jókst það lít­il­lega milli mán­aða. Það þýðir að rúm­lega fimmti hver erlendur rík­is­borg­ari á íslenskum vinnu­mark­aði var án atvinnu um síð­ustu mán­aða­mót, eða alls 7.173 manns. Auk þess voru 723 erlendir rík­is­borg­arar á hluta­bóta­leið­inn­i. Í fyrra á sama tíma var 2.605 erlendur rík­is­borg­ari án atvinnu og hefur þeim sem eru almennt atvinnu­lausir því fjölgað um 175 pró­sent fá einu ári.

Flestir erlendir rík­is­borg­arar á atvinnu­leys­is­skrá komu frá Pól­landi eða 3.644, sem er um 51 pró­sent allra erlendra rík­is­borg­ara á atvinnu­leys­is­skrá. Pól­verjar eru lang­fjöl­menn­asti hópur erlendra rík­is­borg­ara sem búsettur er á Íslandi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

atvinnuleysi

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár