Á fjórða þúsund manns hafa verið meira en heilt ár í atvinnuleit

Atvinnu­leysi á Íslandi var 9 pró­sent í lok sept­em­ber – og þá er ekki horft til hluta­bóta­leið­ar­innar. Fjöldi þeirra sem hafa verið lengi á atvinnu­leys­is­skrá eykst í þessu ástandi. Atvinnu­staðan er hlut­falls­lega lang­þyngst á Suð­ur­nesjum.

Almennt atvinnuleysi á Íslandi var 9 prósent í lok septembermánaðar. Mynd úr safni.
Almennt atvinnu­leysi á Íslandi var 9 pró­sent í lok sept­em­ber­mán­aðar. Mynd úr safni. Mynd: Bára Huld Beck

Alls voru 18.443 ein­stak­lingar á atvinnu­leys­is­skrá í lok sept­em­ber­mán­aðar og 3.319 manns til við­bótar voru í minnk­uðu starfs­hlut­falli. Þetta sam­svarar 9,8 pró­sent heild­ar­at­vinnu­leysi á íslenskum vinnu­mark­aði og þess er vænst að það haldi áfram að aukast næstu mán­uði. Almennt atvinnu­leysi mæld­ist 9 pró­sent og jókst um hálft pró­sentu­stig frá því í lok ágúst.

Af þeim sem voru á atvinnu­leys­is­skrá höfðu 3.274 verið í atvinnu­leit í meira en 12 mán­uði í lok síð­asta mán­aðar, en 1.389 höfðu verið án vinnu í meira en ár í sept­em­ber­lok 2019. Því hefur fjölgað um hart­nær tvö­þús­und manns í þessum hópi á milli ára. Þeim sem verið hafa atvinnu­lausir í 6-12 mán­uði fer einnig fjölg­andi, en þeir voru 5.143 tals­ins í lok sept­em­ber en 2.045 fyrir ári.

Þetta er á meðal þess sem kemur fram í nýj­ustu vinnu­mark­aðs­skýrslu Vinnu­mála­stofn­unar sem birt var í gær og sýnir stöðu mála á vinnu­mark­aði um síð­ustu mán­aða­mót.

Staðan í atvinnu­málum er sem fyrr lang­þyngst á Suð­ur­nesjum, en almennt atvinnu­leysi þar var 18,6 pró­sent í lok sept­em­ber, eða rúm­lega tvö­falt meira en á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, þar sem hlut­falls­legt atvinnu­leysi er næst mest, eða 9,2 pró­sent.

Í spám Vinnu­mála­stofn­unar er ráð fyrir að atvinnu­leysi á Suð­ur­nesjum haldi áfram að aukast og fari í um 19,8 pró­sent í þessum mán­uði.

Um 20 prósent atvinnuleysi meðal erlendra ríkisborgara

Samkvæmt tölum Vinnu­mála­stofn­unar er um 20 pró­sent atvinnu­leysi á meðal erlendra rík­is­borg­ara á íslenskum vinnu­mark­aði, en atvinnu­leysi hjá hópnum var 7,5 pró­sent í lok sept­em­ber í fyrra.

Alls voru 7.671 erlendir rík­is­borg­arar á atvinnu­leys­is­skrá í lok sept­em­ber og 941 til við­bótar á hluta­bóta­leið­inni. Heild­ar­at­vinnu­leysi erlendra rík­is­borg­ara var því í grennd við 22,7 pró­sent í sept­em­ber­mán­uði.

Í ítar­efni með skýrslu Vinnu­mála­stofn­unar má sjá að rúm­lega 2.200 úr hópi erlendra rík­is­borg­ara sem eru á atvinnu­leys­is­skrá störf­uðu áður við gist­ingar- og/eða veit­inga­starf­semi, þeim greinum sem hafa orðið einna verst úti vegna sam­dráttar í komum erlendra ferða­manna til lands­ins.

Alls eru yfir 3.200 ein­stak­lingar skráðir á atvinnu­leys­is­skrá undir þessum flokki og eru erlendir rík­is­borg­arar því í miklum meiri­hluta þeirra sem hafa misst vinn­una í gisti- og veit­inga­starf­semi.

Svipað menntunarstig á atvinnuleysisskrá og fyrir COVID-kreppuna

Tæplega fimm þús­und manns á atvinnu­leys­is­skrá eru með háskóla­próf, sam­kvæmt tölum Vinnu­mála­stofn­unar og sam­svarar það 27 pró­sentum allra atvinnu­lausra. Yfir sjö þús­und og fimm­hund­ruð manns á atvinnu­leys­is­skrá hafa ein­ungis grunn­skóla­menntun að baki, sem sam­svarar 41 pró­senti.

Þessi hlut­föll eru svipuð og þau voru í lok sept­em­ber í fyrra, en þá voru um 26 pró­sent þeirra sem voru á atvinnu­leys­is­skrá með háskóla­menntun en rúm 43 pró­sent með grunn­skóla­próf. Þetta virð­ist því hald­ast nokkuð stöðugt þrátt fyrir að margt annað sé breytt á íslenskum vinnu­mark­aði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

atvinnuleysi

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár