Tæplega 21 þúsund manns eru án atvinnu á Íslandi

Almennt atvinnu­leysi mæld­ist 10,6 pró­sent í nóv­em­ber. Til við­bótar er 1,4 pró­sent vinnu­aflsins á hluta­bóta­leið­inni. Heild­ar­at­vinnu­leysi mæld­ist því 12 pró­sent. Ein af hverjum fjórum konum á Suð­ur­nesjum er án vinnu eða í skertu starfs­hlut­falli.

Unnur Sverrisdóttir er forstjóri Vinnumálastofnunar.
Unnur Sverr­is­dóttir er for­stjóri Vinnu­mála­stofn­unar. Mynd: Almannavarnir

Tæplega 21 þús­und manns voru alveg án vinnu í nóv­em­ber og hart­nær 5.500 manns til við­bótar voru í minnk­uðu starfs­hlut­falli, á hluta­at­vinnu­leys­is­bótum. Búist er við að atvinnu­leysi í land­inu haldi áfram að aukast, sam­kvæmt nýj­ustu mán­að­ar­skýrslu Vinnu­mála­stofn­unar sem gefin var út í dag.

Almennt atvinnu­leysi mæld­ist 10,6 pró­sent í nóv­em­ber­mán­uði, en heild­ar­at­vinnu­leysi að hluta­bóta­leið­inni með­tal­inni mæld­ist heil 12 pró­sent.

Atvinnu­leysi jókst í öllum lands­hlutum, en er sem fyrr til­finn­an­lega mest á Suð­ur­nesjum. Þar var staðan sú í nóv­em­ber var sú að 21,4 pró­sent, eða rösk­lega einn af hverjum fimm vinn­andi ein­stak­lingum, hafði ekki vinnu.

Næst mest er atvinnu­leysið á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, eða 10,6 pró­sent almennt atvinnu­leysi, sem er á pari við lands­með­al­tal. Atvinnu­leysi er lægra í öðrum lands­hlutum, eða á bil­inu 4,8 pró­sent á Vest­fjörðum og upp í 9,6 pró­sent á Suð­ur­landi. Atvinnu­leysi er hærra meðal kvenna en karla alls staðar á land­inu nema á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Um fjórðungsatvinnuleysi meðal erlendra ríkisborgara

Margir erlendir rík­is­borg­arar hafa misst vinn­una í þeirri atvinnu­leysiskreppu sem nú ríður yfir á Íslandi. Fjöldi erlendra atvinnu­leit­enda í nóv­em­ber var 8.553, sem sam­svarar um 24 pró­sent atvinnu­leysi meðal erlendra rík­is­borg­ara á Íslandi.

Við þetta bæt­ist að rösk­lega 1.500 erlendir rík­is­borg­arar voru á hluta­bóta­leið í nóv­em­ber og er því heild­ar­at­vinnu­leysi hjá erlendum rík­is­borg­urum um 26 pró­sent. Erlendir rík­is­borg­arar voru um 41 pró­sent af öllum þeim sem voru á atvinnu­leys­is­skrá í nóv­em­ber­mán­uði, sam­kvæmt tölum Vinnu­mála­stofn­unar.

Mikið af ungu fólki er á atvinnu­leys­is­skrá miðað við fyrri ár, en alls voru 2.240 manns á aldr­inum 18-24 ára án atvinnu í lok nóv­em­ber. Atvinnu­lausum ung­mennum hefur fjölgað um 1.234 frá nóv­em­ber 2019 þegar fjöldi atvinnu­lausra á þessu ald­urs­bili var 1.006.

[adspot]

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

atvinnuleysi

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár