Fjórðungur launafólks á erfitt með að láta enda ná saman

Erlendir rík­is­borg­arar misstu frekar vinn­una en inn­fæddir íbúar lands­ins þegar kór­ónu­veiru­kreppan skall á. Fjár­hags­staða þeirra er verri, þeir eiga erf­ið­ara með að láta enda ná sama og líða frekar skort. Ungt fólk glímir við verri and­legri heilsu.

Um fjórð­ungur launa­fólks á erfitt með að láta enda ná saman og fimmt­ungur þess getur ekki mætt óvæntum útgjöldum. Þeir sem eru atvinnu­lausir eiga erf­ið­ast með að láta enda ná sama og fleiri í hópi þeirra hafa þegið matar- eða fjár­hags­að­stoð og líða efn­is­legan skort en í öðrum hópum.

Fjár­hags­staða inn­flytj­enda er verri en þeirra sem telj­ast til inn­fæddra Íslend­inga. Þeir eiga erf­ið­ara með að láta enda ná saman, líða frekar efn­is­legan skort en inn­fæddir og hafa þegið matar- og/eða fjár­hags­að­stoð í meira mæli.

Þetta kemur fram í nið­ur­stöðu könn­unar sem lögð var fyrir félaga í aðild­ar­fé­lögum Alþýðu­sam­bands Íslands (ASÍ) og BSRB í nóv­em­ber og des­em­ber 2020 þar sem staða launa­fólks var könnuð. Könnunin var gerð af Vörðu, rann­sókn­ar­stofnun vinnu­mark­að­ar­ins, sem ASÍ og BSB settu á fót í fyrra.

[adspot]Könnunin var tví­skipt. Fyrri hluta könn­un­ar­innar svör­uðu allir þátt­tak­endur, þar voru spurn­ingar sem vörð­uðu fjár­hags­stöðu og heilsu. Seinni hluti könn­un­ar­innar var ein­göngu ætl­aður atvinnu­lausum og inni­hélt hann spurn­ingar um við­horf þeirra til atvinnu­leitar og þjón­ustu við atvinnu­leit­endur. Við grein­ingu gagn­anna var ákveðið að greina sér­stak­lega stöðu inn­flytj­enda og ungs fólks.

Kreppan bitnar verr á innflytjendum

Alls voru 51.367 erlendir rík­is­borg­arar skráðir á Íslandi í byrjun des­em­ber 2020. Á sama tíma mæld­ist atvinnu­leysi á meðal erlendra rík­is­borg­ara um 24 pró­sent á meðan að almennt atvinnu­leysi í land­inu var 10,7 pró­sent. Rúmlega 40 pró­sent allra sem voru atvinnu­lausir að öllu leyti voru því erlendir rík­is­borg­arar.

Nið­ur­stöður könn­un­ar­innar sýna að mun færri inn­flytj­endur búa í eigin hús­bæði en inn­fæddir Íslend­ingar. Hjá inn­flytj­endum er hlut­fallið 34,9 pró­sent en á meðal inn­fæddra er það 77,4 pró­sent. Það þýðir óhjá­kvæmi­lega að stærri hluti inn­flytj­enda (49,3 pró­sent) sé á almennum leigu­mark­aði en inn­fæddir Íslend­ingar, þar sem hlut­fallið er 11,1 pró­sent.

Andlegt heilsu­far inn­flytj­enda mæld­ist verra en inn­fæddra en lík­am­legt heilsu­far þeirra betra. Þá sýndi könn­unin að atvinnu­lausir inn­flytj­endur sýni almennt meiri virkni og sveigj­an­leika en inn­fæddir og að það eigi sér­stak­lega við atvinnu­lausar konur.

Andleg heilsa víða slæm

Samkvæmt nið­ur­stöðum könn­un­ar­innar er and­leg og lík­am­leg heilsa atvinnu­lausra verri en ann­arra og þeir eru lík­legri til að hafa neitað sér um heil­brigð­is­þjón­ustu.

[links]Alls mæld­ist and­leg heilsa 40,5 pró­sent atvinnu­lausra slæm en 21,4 pró­sent alls launa­fólks. þá sögð­ust 15,6 pró­sent atvinnu­lausra lík­am­legt heilsu­far sitt slæmt og 54,6 pró­sent þeirra sögð­ust hafa neitað sér um heil­brigð­is­þjón­ustu.

Andleg heilsa ungs fólks mæld­ist líka á alvar­legum slóðum, en 41,6 pró­sent aðspurðra sögðu hana vera slæma. Til sam­an­burðar sögð­ust 21,4 pró­sent þeirra sem voru eldri að þeir teldu and­lega heilsu sína slæma. Ungt fólk var líka mun lík­legra til að hafa neitað sér um heil­brigð­is­þjón­ustu (58,9 pró­sent) á síð­ustu sex mán­uðum en þeir sem eldri voru (33,8 pró­sent).

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár