Vilja skapa allt að 7.000 tímabundin störf með 4,5-5 milljarða aðgerðum

Nýtt atvinnu­á­tak rík­is­stjórn­ar­innar útvíkkar ráðn­ing­ar­styrk­ina sem hafa verið til staðar til að mæta afleið­ingum heims­far­ald­urs­ins. Áhersla er lögð á að skapa hvata fyrir fyr­ir­tæki til að ráða fólk sem hefur verið lengi án atvinnu.

Katrín Jakobsdóttir og Ásmundur Einar Daðason kynntu átakið á blaðamannafundi í dag.
Katrín Jak­obs­dóttir og Ásmundur Einar Daðason kynntu átakið á blaða­manna­fundi í dag. Mynd: Aðsend

Rík­is­stjórnin hefur sett af stað sér­stakt atvinnu­á­tak undir yfir­skrift­inni „Hefjum störf“. Mark­miðið er að skapa allt að 7.000 tíma­bundin störf hjá einka­fyr­ir­tækjum, félaga­sam­tökum og hinu opin­bera. Áætlaður kostn­aður við þessar aðgerðir eru 4,5-5 millj­arðar króna.

Frá þessu greindi Ásmundur Einar Daðason félags- og barna­mála­ráð­herra á blaða­manna­fundi sem hann hélt í dag ásamt Katrínu Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra. Kjarninn tók saman það helsta sem felst í aðgerð­unum, sam­kvæmt frétta­til­kynn­ingu sem barst frá félags­mála­ráðu­neyt­inu.

Lítil fyrirtæki geta fengið 472 þúsund með langtímaatvinnulausum

Verið er að víkka út ráðn­ing­ar­styrk­ina, en þeir eru eitt COVID-19 úrræða stjórn­valda og voru kynntir til sög­unnar síð­asta haust.

Lítil og með­al­stór fyr­ir­tæki, með undir 70 starfs­menn, munu geta sótt um ráðn­ing­ar­styrki til þess að ráða starfs­menn sem hafa verið atvinnu­lausir í meira en eitt ár. Það mynd­ast þannig hvati fyrir fyr­ir­tæki til þess að ráða fólk til starfa sem hefur verið lengi án vinnu, en sá hópur hefur farið ört vax­andi í COVID-krepp­unni.

„Hverjum nýjum starfs­manni fylgir allt að 472 þús­und króna stuðn­ingur á mán­uði, auk 11,5% fram­lags í líf­eyr­is­sjóð, í allt að sex mán­uði og getur fyr­ir­tækið ráðið eins marga starfs­menn og það þarf þangað til heildar starfs­manna­fjöldi hefur náð 70. Ráðn­ing­ar­tíma­bilið er sex mán­uðir á tíma­bil­inu frá apríl til des­em­ber 2021,“ segir í til­kynn­ingu ráðu­neyt­is­ins.

Grunnatvinnuleysisbætur með öllum sem hafa verið án vinnu í 30 daga

Fyr­ir­tæki af öllum stærðum munu áfram geta fengið ráðn­ing­ar­styrk sem nemur grunnatvinnu­leys­is­bótum ef þau ráða starfs­menn sem hafa verið án vinnu í 30 daga eða lengur. Styrk­ur­inn með hverjum starfs­menni er til allt að sex mán­aða.[links]

Grunnatvinnu­leysi­bætur eru 307.430 krónur á mán­uði, en að auki fær fyr­ir­tækið styrk til að standa straum af 11,5 pró­sentum af fram­lagi í líf­eyr­is­sjóð. Ekkert þak er á fjölda starfs­manna sem fyr­ir­tæki geta ráðið.

Allt að 472 þúsund með öllum sem eru að fullnýta bótarétt

Sér­stakar aðgerðir eru fyrir þá eru við það að full­nýta bóta­rétt sinn í atvinnu­leys­is­trygg­inga­kerf­inu.

Vinnu­mála­stofnun greiðir ráðn­inga­styrk í allt að sex mán­uði, og er heim­ilt að lengja um aðra sex fyrir ein­stak­linga með skerta starfs­getu, vegna ráðn­ingu ein­stak­linga sem eru við það að ljúka bóta­rétti.

Stofn­un­inni er heim­ilt að greiða ráðn­ing­ar­styrki sem nema fullum launum sam­kvæmt kjara­samn­ingum að hámarki kr. 472.835 á mán­uði sem er hámark tekju­tengdra bóta auk 11,5% mót­fram­lags í líf­eyr­is­sjóð. Skilyrði fyrir þessu er að ráð­inn sé ein­stak­lingur sem á sex mán­uði eða minna eftir af bóta­rétti.

[adspot]

Sveit­ar­fé­lögum er einnig heim­ilt að ráða til sín ein­stak­linga sem full­nýttu bóta­rétt sinn innan atvinnu­leys­is­trygg­ing­ar­kerf­is­ins á tíma­bil­inu 1. októ­ber. til 31. des­em­ber 2020.

Félagasamtök geta fengið styrk fyrir tímabundna starfskrafta

Félaga­sam­tökum sem rekin eru til almanna­heilla og án hagn­að­ar­sjón­ar­miða er gert kleift að stofna til tíma­bund­inna átaks­verk­efna í vor og sumar með ráðn­ing­ar­styrk sem nemur fullum launum sam­kvæmt kjara­samn­ingum að hámarki kr. 472.835 á mán­uði auk 11,5 pró­senta mót­fram­lags í líf­eyr­is­sjóð. Krafa er að þeir sem ráðnir eru til félaga­sam­taka hafi verið án atvinnu í meira en eitt ár.

Einnig verður greitt 25 pró­sent álag til þess að standa straum af kostn­aði við verk­efnin, svo sem við land­vernd, við­hald göngu­stíga, land­hreinsun, gróð­ur­setn­ingu, íþróttir og afþr­ey­ingu fyrir börn og ung­linga og fleira.

Sumarstörf fyrir námsmenn kynnt síðar

Boðað er í til­kynn­ingu ráðu­neyt­is­ins að stjórn­völd ætli sér að ná til þess hóps náms­manna sem ekki fær starf eða aðgang að öðru úrræði í sumar. Það verður kynnt síðar í sam­starfi við mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neytið.

Félags-og barna­mála­ráð­herra segir að um sér að ræða „gríð­ar­lega stórar aðgerðir fyrir bæði atvinnu­leit­endur og atvinnu­lífið“ sem hjálpi til við öfl­uga við­spyrnu að loknum far­aldri.

„Ég hvet fyr­ir­tæki, stofn­anir, sveit­ar­fé­lög og félaga­sam­tök til að nýta þetta úrræði og ráða fólk. Við mætum óviss­unni með krafti og bjart­sýni og saman keyrum við þetta í gang,” er haft eftir Ásmundi Einari í til­kynn­ingu ráðu­neyt­is­ins.

Athuga­semd rit­stjórnar: Í fyrri útgáfu frétt­ar­innar sagði rang­lega að það væri nýnæmi að fyr­ir­tæki gætu fengið 100 pró­sent af grunnatvinnu­leys­is­bótum í styrk með starfs­mönnum sem hefðu verið 30 daga á atvinnu­leys­is­skrá. Þannig hefur það verið und­an­farna mán­uði, en þá á grund­velli und­an­þágu vegna mik­ils atvinnu­leysis í land­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár