Um ellefu þúsund manns hafa verið atvinnulaus í hálft ár eða lengur

26.437 manns eru atvinnu­laus að öllu leyti eða hluta. Lang­tíma­at­vinnu­leysi hefur stór­auk­ist og þeir sem hafa verið án atvinnu í eitt ár eða lengur eru nú 156 pró­sent fleiri en fyrir ári.

Kórónuveirufaraldurinn leiddi af sér gríðarlega aukningu á atvinnuleysi.
Kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn leiddi af sér gríð­ar­lega aukn­ingu á atvinnu­leysi. Mynd: Bára Huld Beck

Alls voru 26.437 atvinnu­lausir að öllu leyti eða hluta í des­em­ber­mán­uði. Af þeim voru 21.365 atvinnu­lausir að öllu leyti en 5.108 voru á hluta­bóta­leið­inni. Þetta kemur fram í nýrri mán­aða­skýrslu Vinnu­mála­stofn­unar um vinnu­mark­að­inn.

[links]Þar kemur einnig fram að ein­ungis 20 pró­sent þeirra sem hafa fengið hluta­bætur á árinu 2020 hafa komið aftur inn á atvinn­leys­is­skrá sem bendir til þess að leiðin hafi nýst vel til að við­halda vinnu­sam­bandi milli fyr­ir­tækja sem lentu í tíma­bundnum rekstr­ar­vand­ræðum vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins og starfs­manna þeirra.

Kostn­aður rík­is­sjóðs vegna hluta­bóta á árinu 2020 var 21,3 millj­arðar króna, en vegna almennra atvinnu­leys­is­bóta alls 30,8 millj­arðar króna, sam­kvæmt tölum sem birtar eru á vef stjórn­ar­ráðs­ins.

Langtímaatvinnuleysi aukist mikið

Lang­tíma­at­vinnu­leysi hefur auk­ist gríð­ar­lega síð­ast­liðið ár. Alls höfðu 4.213 verið án atvinnu í meira en tólf mán­uði í lok des­em­ber­mán­aðar 2020, sem er 2.565 fleiri en voru í þeirri stöðu ári áður. Hlut­falls­lega hefur lang­tíma­at­vinnu­lausum því fjölgað um 156 pró­sent milli ára.

Á tölum Vinnu­mála­stofn­unar má sjá að 6.705 til við­bótar hafa verið án atvinnu í hálft ár eða meira. Það þýðir að 10.918 manns hafa verið atvinnu­lausir í hálft ár eða lengur. Sá hópur taldi 4.374 manns fyrir ári síðan og því hefur orðið 150 pró­sent aukn­ing innan hans.

[adspot]Alls luku 87 ein­stak­lingar bóta­rétti sínum í des­em­ber 2020. Bóta­tíma­bil atvinnu­leys­is­bóta er 30 mán­uðir og mun því núver­andi atvinnu­á­stand ekki valda mik­illi sveiflu í fjölda þeirra sem ljúka bóta­rétti sínum til skemmri tíma litið.

Suðurnes í sérflokki

Sem fyrr er atvinnu­leysi mest á meðal erlendra rík­is­borg­ara, en þeir voru 51.120 alls í lok sept­em­ber síð­ast­lið­ins. Innan þess hóps mælist nú 24 pró­sent atvinnu­leysi.

Þegar horft er til svæða er atvinnu­leysið lang­mest á Suð­ur­nesj­unum þar sem það mælist 23,3 pró­sent. Næst mest mælist það á höf­uð­borg­ar­svæð­inu þar sem það var tólf pró­sent, eða rétt um helm­ingur þess hlut­falls sem mælist atvinnu­laus á Suð­ur­nesj­unum.

Atvinnu­leysi er hærra meðal kvenna en karla á flestum svæðum nema á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og á Norð­ur­landi eystra. Á Norð­ur­landi vestra er það svipað hjá körlum og konum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár